miðvikudagur, nóvember 02, 2005

Geislabaugur og kínamatur

Við hjónakornin vorum svo dugleg í gær. Þar sem haustið er gengið í garð og lítið spennandi veður fyrir skógartúr eða annað sniðugt þá innipúkuðumst við í gær og tókum til í skrifstofunni. Bunkum af blöðum og dóti hefur nú verið útrýmt, búið til skjalaflokkunarkerfi fyrir mikilvæga og ómikilvæga pappíra, og við hentum út heilum kassa af pappír! Geislabaugurinn er kominn til vegna þess! Þar að auki er búið að koma upp voða fínni aðstöðu fyrir vínáhugamanninn inni við vínskápinn. Svo núna heitir það ekki lengur "Kjartansbílskúr" heldur "vínkjallarinn". Ég bíð svo bara eftir því að vínáhugamaðurinn hendi kerrunum hans Kjartans út til að fá meira pláss (undir vín auðvitað).

Í gær var nefnilega frídagur hér í Belgíu, Allrarheilagrarmessa. Þið sjáið að við eyddum þeim frídegi mjög gáfulega. Við komumst svo að því að Belgarnir eru kaþólskari en páfinn. Húsmóðirin var nefnilega svo gáfuð að hugsa ekkert út í frídaginn á mánudaginn og steingleymdi að fara í búð og kaupa í matinn. Hún var of upptekin við að ákveða í hverju hún ætti að fara á stelpudjamm um kvöldið! Nema hvað, við ætluðum að redda okkur á því að finna eitthvað af þessum búðum sem eru opnar á sunnudögum! Við komumst hins vegar að því að á svona helgidögum eru ENGAR búðir opnar! Við enduðum niðri í bæ og sáum þar okkur til mikillar lukku að kínverski súpermarkaðurinn var opinn. Fórum og lögðum bílnum, nema á meðan lokuðu þeir búðinni! Svo við stóðum í kínahverfinu í Brussel (sem er ekki stærra en ein gata), matarlaus. Það vildi okkur til happs að kínverjarnir eru nú ekki svo kaþólskir og þarna var opinn lítill kínastaður. Þar gæddum við okkur á þvílíkum krásum og Kjartan var óvenju stilltur, sat eins og lítill herramaður í voðalega flottum kínverskum barnastól, og smjattaði á vorrúllum. Ekki amalegt að enda matarleytina á þennan hátt.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli