mánudagur, október 31, 2005

Vissuð þið að sniglar hneggja?

Hjá Kjartani hneggja öll dýr. Sérlega athyglisvert og ég hef mikið spáð í af hverju hann valdi hneggið. Kannski er það skemmtilegast? Við, eins og flestir, barnaforeldrar höfum verið dugleg við að útskýra fyrir honum hvað dýrin segja. Kötturinn segir mjá, hundarnir segja voff, bíbí segir fuglinn og allt þetta klassíska. Nema hneggið er skemmtilegast og öll dýr hneggja. Hvort sem hann sér hund, kött, eða fugl, þá hneggjar Kjartan. Maður getur bókað það að ef Kjartan fer að hneggja þá hefur hann einhversstaðar komið auga á dýr! Best var þó um helgina þegar við vorum út í garði að leika og ég fann snigla. Var að sýna Kjartani þessa skrýtnu skepnu, sem reyndar var svo kurteis að koma út úr skelinni og sýna sig aðeins fyrir okkur; nema hvað, Kjartan fór að hneggja! Ég hélt ég yrði ekki eldri, dó næstum úr hlátri! Þessi elska!

Kjartan tekur nú þvílíkum framförum í málinu. Hann talar enn mjög mikið en það skilst nú ekki nema 10% af því sem hann segir. Nema við erum núna að uppgötva að ýmsilegt sem hann er að segja eru "alvöru" orð ef betur er að gáð. Það uppgötvaðist um helgina að "éttee" sem heyrist alltaf þegar hann tekur einhvern hlut upp og hendir honum sem lengst frá sér (og er orðin frekar vinsæl iðja hjá ungum herramanni) er franska orðið "jetter", útleggst á íslensku "henda eða kasta". Jamms, orðin sem sagt skríða inn, en þau eru íslensk og frönsk í bland.

3 ummæli:

  1. Ég ætla rétt að vona að þú kennir barninu hvað fiskarnir segja...

    SvaraEyða
  2. Auðvitað kenni ég honum hvað fiskarnir segja!

    Smá update: Jakob bangsi hneggjar líka!

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus1:20 e.h.

    Láttu mig vita þegar þú færð þýðingu á groin-groin!!
    Kv. Helga Hrönn

    SvaraEyða