Sýnir færslur með efnisorðinu Hornstrandir. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Hornstrandir. Sýna allar færslur

sunnudagur, janúar 06, 2008

Sögur af Hornströndum #9

Kjartan nær að kíkja ofan í hálsmálið hjá ömmu.

Kjartan: Hvað er þetta?

Amma: Þetta er brjóstahaldari.

Kjartan: Hvað gerir hann?

Amma: Hann heldur brjóstunum.

Kjartan: Svo brjóstin detti ekki af!!!!

Sögur af Hornströndum #8

Kjartan var búinn að hanna flugvél/strætó úr stólum. Pabbi er farþegi. Eftir að beltin hafa verið spennt og Kjartan flugþjónn búinn að fara yfir helstu öryggisatriði um borð er komið að "in-flight entertainment". Af hálfu flugfélagsins er boðið upp á sjónvarpsdagskrá (dótapoki Kjartans). Farþeginn ætlar frekar að grípa í kilju. Þá heyrist í flugþjóninum: "Nei, pabbi, þú mátt ekki lesa bókina. Það er hættulegt!"
Svona er að ala upp börn eftir 11. september.

Sögur af Hornströndum #7

Kjartan var búinn að vera úti í rigningunni að leika með Tótu frænku. Svo komu þau inn og hófst þá heljarmikil reikistefna við að koma Kjartani úr regnfötunum. Það hafðist þó og kom sá stutti skoppandi til mömmu sinnar og útiskýrði fyrir henni að þetta voru ekki regnbuxur heldur svona "bláar sokkabuxur fyrir Kjartan til að vera í í rigningu".

Sögur af Hornströndum #6

Afi kom hundvotur inn úr veiðiferð, fór strax og skipti um föt. Kjartan þurfti að fylgjast með öllu saman, kom svo hlaupandi til ömmu sinnar og galaði hástöfum: "Amma, hann afi er allsber á maganum!"

Sögur af Hornströndum #5

Fyrsta kvöldið var Kjartan lengi að sofna og mátti amma liggja lengi hjá snáðanum, spjall við hann og syngja. Loks segir amma góða nótt og fer niður. Stuttu síðar heyrist snáðinn skæla. Mamma fer til hans og huggar hann. Þá segir sá stutti með tárvotum augum: "Amma bara gleymdi að knúsa mig áður en hún fór að vaska upp!"
Þótt ekkert væri hæft í þeirri fullyrðingu þurfti amma samt að fara upp aftur og knúsa snáða.

Sögur af Hornströndum #4

Kjartan fór að veiða með afa í fyrsta skipti. Þá hrundu mörg gullkornin af vörum barnsins.


Aðspurður um hvað hann væri að gera:

- Veiða!!! (sagt í mjög pirruðum tóni)


Stendur við bakkann með veiðistöngina í höndunum:

"Afi komdu að veiða með mér!"

Og afi þurfti að koma með sína veiðistöng, standa við hliðina á Kjartani og veiða líka.


Þegar afinn var búinn að draga fiskinn á land (með smá hjálp frá Kjartani) og fiskurinn dinglaði á stönginni spurði Kjartan: "Hvað er fiskurinn að gera?"


Afi reyndi að fá Kjartan til að halda á fiskinum en Kjartan neitaði. Spurði: "Er hann lifandi?"

Loks fékkst hann til að koma við fiskinn, potaði í hann með einum fingri og hryllti sig allur. "Þetta er skrýtið!"

Sögur af Hornströndum #3

Kjartan var settur í balabað, líkt og gert hafði verið við fjöldan allan af frænkum og frændum á undan honum. Balinn var settur inn í sturtuna og þar fékk sá stutti að sulla. Enda taldi snáðinn að allir hinir væru að fara í balabað þegar þeir fóru í sturtu.

Sögur af Hornströndum #2

Amma og Kjartan sátu inni. Amman var búin að vera að tala um að fara í sturtu en ekki farin enn. Svo heyrist í stráksa: "Amma, farðu í sturtu, það er vond lykt af þér!"

Sögur af Hornströndum #1

Kjartan og afi voru að labba niðri í fjöru. Afi vildi leiða stráksa til að passa að hann dytti ekki. Það vildi Kjartan ekki og gekk eitthvað á undan afa sínum.

Kjartani þótti afi taka langan tíma að koma til sín, svo stráksi kallaði: "Afi, komdu, leiddu mig".

Bætti svo við: "Afi, ertu alltaf svona latur???"