Ég held bara að sæti hafi átt góðan afmælisdag í gær. Að vísu þurfti hann í vinnuna, mér finnst nú að maður eigi alltaf að fá frí í vinnunni á afmælisdaginn!Við Kjartan sváfum nú á okkar græna þegar afmælisbarnið vaknaði þannig að hann fékk ekki morgunkaffi í rúmið, uss uss uss, en hann fékk stóran knús og afmæliskossa. Við reyndum nú að bæta honum það upp þegar hann kom heim, tókum á móti honum með pökkum! Fullt af þeim! Besta afmælisgjöfin var frá foreldrum mínum, ég er enn að hlæja að því! Við eignuðumst nefnilega forláta kaffikvörn, handsnúna, og hún hefur farið mikið í taugarnar á mér. Ég þoli ekki hvað það tekur langan tíma og mikla orku að snúa og mala til að fá sér almennilegt kaffi! Við hjónakornin höfum ólíkar skoðanir á kaffikvörnum og ég var alltaf á leiðinni að kaupa eina rafknúna þótt Hrafnkell væri ekkert hrifinn af þeim! Og svo kom rafmagnsknúin kaffikvörn upp úr pakkanum frá tengdaforeldrunum!!! Híhíhí, ég er enn að hlæja! En ég er búin að prófa græjuna og hún er alveg eðal.
Þeir feðgar skemmtu sér svo konunglega heima en ég þurfti að fara í skólann. Og akkúrat þegar heima beið afmælisbarn og fondue-veisla þá þurfti kennarinn að vera með málæði og í þvílíku stuði. Við vorum líka með gest, project manager frá European Space Agency, og hann hafði sko frá nóg af segja enda vorum við að ræða Risk Management. Þetta var eiginlega fyndið því þeir kepptust við að segja frá og koma með dæmi, kennarinn og gesturinn! Svo við sluppum ekki út fyrr en korter í tíu!!!
Fyrsti í afmælisveislu varð því frekar seint að kvöldi, bara á spænskum tíma. Voða notó hjá okkur með fondue og rauðvín! Annar í afmæli er svo í kvöld en ég ætla að bjóða sæta út að borða á mjög spes stað, algjört leyndó, hann fær ekkert að vita fyrr en í kvöld! Segi ykkur kannski frá því síðar...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli