sunnudagur, nóvember 06, 2005

Berberamatur og helgarblogg

Ég fór með sæta á La maison berbère, marokkanskan veitingastað hér í bænum. Staðurinn er geggjaður og maturinn frábær. Myndin er tekin af loftinu í salnum, ótrúlega flott! Við fengum risa-menu, allskyns salöt og smárétti í forrétt, Hrafnkell fékk kúskús í aðalrétt en ég tajine, og svo fengum við allskyns ávexti og kökur í eftirrétt. Það eru meðmæli með matnum að Mohammad félagi minn úr BU náminu sagði að þarna fengist besti marokkanski matur í Brussel, hann ætti að vita það enda frá Marokkó! Þegar við ætluðum svo að stinga af eftir ljúfa kvöldstund þá stoppaði þjónustustúlkan okkur og bað okkur að bíða því magadansmær væri væntanleg. Svo við settumst bara aftur með fíkjubrennivín í glasi og fyrr en varði var dansmærin mætt. Þetta var skemmtilegt show hjá henni, hún gat vel dansað og var dugleg að draga gesti upp og pynta þá svolítið!!! En eftir að hafa lært smá magadans sjálf þá varð ég frekar fyrir vonbrigðum. Hún kunni alveg einhver spor en þetta var allt frekar auðvelt hjá henni og mikið af snúa-hárinu-hreyfingum og dilla brjóstunum, bara svona til að fela hvað hún kunni nú raunar lítið! Eftir að hafa séð kennarann minn í Kramhúsinu dansa magadans þá var þetta ekki neitt!!! Segi samt ekki að ég hafi getað betur...

Helgin er svo að verða svolítil innipúkahelgi þrátt fyrir góða veðrið. Ég þurfti að mæta í tíma í gærmorgun og lifði það af. Þeir feðgarnir notuðu tímann og fóru á kaffihús og kíktu á markaðinn. Seinnipartinn kíktum við svo í bæinn, tókum göngutúr í kringum St. Catherine torgið og komum við í kínahverfinu (sem er ein gata) og versluðum í kínverska súpermarkaðnum. Á heimleiðinni var svo kíkt í tvær búðir til að kaupa í matinn og það segi ég, aldrei aftur. Það verður að verslunarferð dauðans á laugardögum! Við komum því seint og síðarmeir heim til okkar, öll orðin pirruð og þreytt! En það læknaðist eftir eldhúsþerapíu, góðan mat og afslöppun. Þeir feðgarnir voru svo sætir í morgun að leyfa mér að sofa út og fóru á meðan í bakaríið. Svo hér var kaffi og súkkulaðibrauð í morgunmat. Núna er ég á fullu að læra, þarf að skila verkefni á þriðjudaginn. Og meðan ég vinn er Hrafnkell að snattast við ýmislegt smotterí sem þarf að gera fyrir veturinn. Hér er nefnilega að vetra, orðið miklu kaldara úti þrátt fyrir sól og eftir að við breyttum klukkunni er orðið dimmt um 5-leytið. Mér finnst fátt vetrarlegra en dimma og kuldi! En núna get ég líka látið mér hlakka til jólanna!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli