þriðjudagur, desember 29, 2009
miðvikudagur, desember 16, 2009
Jólaskógarferð
Familían fór í skógarhöggsferð með vinnunni minni á sunnudaginn var. Við héldum í skógræktina í Brynjudal þar sem arkað var um í rigningunni og leitað að hinu fullkomna jólatré. Ótrúlegt en satt þá fundum við það eftir mjög stutta leit. Tréið góða var sagað fljótt og fumlaust niður. Þá var haldið í eitt gott rjóður þar sem búið var að kynda bál og þar fengu allir kakó og kleinur, jólasveinarnir komu og sungu og gáfu stubbunum mandarínur. Svo gátu stubbarnir fiktað í eldinum og fullorðna fólkið spjallað þar til tími var kominn til að halda heim með fenginn.
Og nú sefur jólatréið vært út á svölum....

föstudagur, desember 11, 2009
Splatter-Tobbi
Tobbi er með þvílíkt splatter ímyndunarafl.
Þessa dagana er teiknimyndin Madagaskar voða vinsæl enda er hann forfallinn dýraáhugamaður. Getur endalaust leikið með dýrin sín. Og oftar en ekki er hann að leika senuna úr myndinni þegar ljónið bítur sebrahestinn í rassinn. Og senan er leikin með tilþrifum, ópum og allt!
Svo elskar hann að fara í bað. Í baði um daginn höfðu tveir litli fiskar úr baðdótinu breyst í hákarla og þessir tveir hákarlar voru að éta endurnar. Reglulega heyrðist úr baðinu: "Nei nei, hákarl, ekki éta mig. Jú ég ætla að éta þig. Kjamms kjamms. Ég er að drukkna. Hákarlinn er að éta mig".
Á maður að hafa áhyggjur eða... ???

fimmtudagur, desember 10, 2009
Skyrptu bara!
Þeir bræður Þorbjörn og Kjartan föndruðu fín jólakerti á jólaföndrinu með ömmu um daginn. Þessi kerti þurfa að sjálfsögðu að vera á eldhúsborðinu og helst á að kveikja á þeim í hverjum matmálstíma. Og það er þvílíkt passað upp á það að hvor um sig fái að kveikja og slökkva á sínu kerti!
Voða kósý hjá okkur að sitja við kertaljós við morgunmatinn.
Einn morguninn þegar við vorum að fara þá þurfti að sjálfsögðu að slökkva á kertunum. Kjartan blés á sitt kerti fljótt og vel en bróðir hans átti í meira basli, blés og blés á kertið en aldrei slokknaði loginn.
Þá segir Kjartan: skyrptu bara á það!
Áður en ég gat mótmælt þá var sá stutti búinn að safna í væna slummu og lét vaða á kertið!
Og það slökknaði....

miðvikudagur, desember 02, 2009
Ég kemst í jólafíling....
Við höfum verið að jólast undanfarna daga.
Fórum með ömmu í jólaföndur sem var skipulagt í vinnunni hjá henni. Kötturinn Njáll og Kjartan, sem stundum er páfagaukur, voru voða duglegir að föndra jólaskraut og jólakerti!
Einbeittir með pensilinn bræðurnir!
Svo svissum við yfir í "Piparkökusönginn"

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)