Vá hvað tíminn líður hratt, þetta er síðasti dagurinn í janúar. Hafið þið gert ykkur grein fyrir því? Ég veit ekki hvað hefur orðin um þennan mánuðinn... úff tíminn líður svo hratt.
Við Kjartan vorum í okkar venjulegu dagsverkum í morgun, hann á garderíinu og ég fór í ræktina. Tók vel á því enda með gott pepp. Ég hlóð inn öllu U2 safninu inn á fína MP3 spilarann sem Kjartan var svo sætur að gefa mömmu sinni í jólagjöf og með U2 í eyrunum hreinlega flaug ég! Alltaf gott að fara í ræktina.
Við erum farin að telja dagana þar til amma og afi koma, þau mæta á fimmtudaginn í bæinn! Við Kjartan ætlum svo sannarlega að bíða eftir þeim á brautarstöðinni þegar þau koma. Hann veit ekki hverju hann á von á! Foreldrarnir gera sér hins vegar fulla grein fyrir því að litla dýrið verður fordekrað allan þann tíma sem þau verða hérna, á eflaust eftir að taka tíma að vinda ofan af því eftir að þau fara aftur.
En planið er að hafa þau bara í slökun og að leika við Kjartan. Mér skilst samt að mamma ætli að hafa með sér smá heimaverkefni, ekki alltaf auðvelt að gíra sig alveg út úr náminu. Og við erum smám saman að bæta á listann fyrir pabba hlutum til að bricolera, því auðvitað verður hann að hafa eitthvað fyrir stafni. Við Kjartan lögðum meira segja sérstaklega á okkur á föstudaginn að fara í ljósabúð sem er í einum af "Garðabæjum" Brussel... eða kannski er þetta meira "Kópavogur"... allaveganna, við brunuðum eftir hraðbrautinni sem liggur hringinn í kringum Brussel í sirka hálftíma til að komast í þessa búð, vorum í 10 mínútur að kaupa ljósið, og svo aftur rúman hálftíma á leiðinni heim! Svo það verður loksins komið ljós í borðstofuna á næstunni!
En næsta stóra verkefni er að plana afmælisdaginn. Fyrir utan ömmu og afa þá er búið að bjóða mömmuklúbbnum í afmæliskaffi svo við þurfum að fara að baka og undirbúa eitthvað skemmtilegt.... Innan við vika þar til litli prinsinn okkar á afmæli, ég trúi varla að það sé að verða ár síðan hann fæddist. Mér finnst eins og að það hafi verið í fyrradag en samt er alltaf eins og að hann hafi alltaf verið til. Mjög furðuleg tilfinning! En þetta litla ljós á gjörsamlega í manni hvert einasta bein....
mánudagur, janúar 31, 2005
sunnudagur, janúar 30, 2005
Sunnudagur!
Það er algjör sunnudagur í familíunni í dag, sem þýðir letilíf út í eitt. Það hjálpar kannski ekki að foreldrarnir voru á þorrablóti í gær og eru bæði frekar mygluð þrátt fyrir að hafa verið mjög pen, en þegar beigt er út af 8 tíma svefninum þá er það fljótt að segja til sín! Við erum orðin svo gömul!!!! Segi svona!
Þorrablótið var mjög skemmtilegt. Það var haldið í gamalli hlöðu í einum af "Garðabæjum" Brussel, svona sveit í borg stemming. Tekið á móti hópnum með fordrykk og síðan var gengið til stofu. Auðvitað voru þjóðlegar veitingar á borðum, allt frá lundaböggum, hrútspungum og öðrum súrmat í svið og fleira kræsilegt. Svo var hangikjöt og uppstúfur, reyktur og grafinn lax fyrir þá sem lögðu ekki í að vera þjóðlegir! Ég tók út minn skammt af hákarli og brennivíni fyrir næstu árin... og smakkaði aftur hrútspunga. Í minningunni voru þessir sem pabbi gerði í denn miklu betri! En það leit nú illa út fyrir þorrablótinu. Belgískir tollgæslumenn ætluðu nú ekki að hleypa þessum stórskrítna mat inn í landið. Það voru tveir menn frá sendiráðinu í 9 og hálfan tíma að fá þetta leyst út úr tollinum! Við erum viss um að yfirdýralæknirinn í Belgíu hefur ekki sofið vel síðustu nætur!
Það var góður Raufarhafnarandi yfir blótinu, heimalöguð skemmtiatriði og svo stóð diskótekið Dollý fyrir stuði fram á nótt. Ég dansaði af mér skóna en Hrafnkell aðeins minna... en við skemmtum okkur nú samt vel. Að vísu var eitt klúður, það klikkaði að fjölrita söngheftið sem ég var búin að vinna við að taka saman og útbúa, svo það var lítið um fjöldasöng eins og ætti að vera á góðu Raufarhafnarblóti...
Á meðan skemmti Kjartan sér vel heima. Hann fékk barnapíuna Vanessu til að leika við, fékk meira að segja vaka aðeins fram yfir háttatíma því það var svo gaman hjá þeim. En svo leið hann út af án þess að mótmæla og Vanessa átti bara náðugt kvöld. Heppnar barnapíur... En við höfum verið ótrúlega heppin með þessar stelpur sem hafa komið og passað, mjög yndælar stelpur. Og Kjartani er alveg saman þótt það sé einhver annar sem svæfir hann.
En aftur að sunnudeginum! Við tókum okkur til í svefngengislástandinu og keyrðum til Waterloo þar sem ein góð teppabúð hafði auglýst 80% afslátt. Okkur langar nefnilega svo í teppi fyrir stofuna sem svona "ties the room together" og höfum haft augastað á austurlenskum teppum. Eitthvað sjarmerandi við þau! Við mætum í teppabúðina og fengum crash course í austurlenskum teppum. Við sáum nokkur sem okkur leist á og sölumennirnir voru fljótir að draga þau fram til að leyfa okkur að sjá þau frá öllum hliðum. Þið getið ímyndað ykkur settið, full búð af austurlenskum teppum og það voru teppi út um allt, lágu þvers og krus um öll gólf, stórir bunkar með reglulegu millibili og jafnvel upp á veggjum. Við fundum 2 teppi sem okkur fannst lang fallegust en svo kom að því að spyrja um verðið. Ég hef sjaldan verið jafn fljót að setja upp pókersvip og þegar tölur eins og 3200 evrur fóru að fljúga út úr sölumanninum. Hann var reyndar komin niður í 2500 € en tókst ekki að sannfæra okkur! Þetta er meira en borðstofusettið kostaði!!! Ímyndið ykkur að eyða meira en 200 þúsund krónum í mottu sem þú labbar á! EF ég myndi eyða slíkum peningum þá yrði sú motta ALDREI höfð á gólfinu, hún yrði hengd upp á vegg! Jæks... Svo það hefur verið fallið frá þessari hugmynd í bili.
Held það verði ekkert meira um udflugt á þessum sunnudegi, við munum bara eyða honum í leti það sem eftir er....

fimmtudagur, janúar 27, 2005
Retail therapy og matvendni!
Oh, ekkert jafnast á við að komast aðeins í búðir! Kjartan fór á garderíið í morgun og ég ætlaði í mega-shopping niður í bæ. Síðustu dagar á útsölum og oft hægt að gera góð kaup. Nema garderíið lokað snemma í dag, ein fóstran var veik og sú sem leysti hana af gat bara verið til hálf tólf. Svo öllum plönum var breytt í skyndi og ég fór bara í stuttan powershopping í Woluwe verslunarmiðstöðina sem er rétt hjá garderíinu. Gat fundið mér sætan topp fyrir Þorrablótið á laugardaginn svo ég verð ekki alveg eins og jólasveinn, óklippt og allt!
En Kjartan er ekki alveg hress með garderíið þessa dagana, hann er eitthvað að fatta þetta með að mamma er ekki á staðnum. Var grátandi þegar ég fór en það entist víst stutt, sem betur fer. Fer alveg með móðurhjartað að heyra í barninu gráta þegar maður fer frá því!
Kjartan er að gera okkur gráhærð þessa dagana, hann er svo matvandur og mjög pikkí á það sem fer ofan í hann. Það verður allt að vera mjög vel maukað, það mega ekki vera neinir litlir bitar í maukinu hans. Svo það er útilokað að stappa ávexti eða grænmeti. Helst vill hann fá fjöldaframleiddan krukkumat frá Nestlé... og ekki sama hvaða krukka það er! Fúlsar alveg við heimatilbúnum mömmumat úr lífrænum hráefnum! Þar með fóru allar slíkar yfirlýsingar út um gluggan, að ætla að gera allan barnamat sjálf fyrir barnið. Fjöldaframleitt skal það vera. Hins vegar vill hann stundum borða bita sem ég læt fyrir framan hann, brauð með áleggi skorið í teninga, soðnar gulrætur og banana. Lengri er listinn ekki kominn. Kartöflum fúlsar hann við sama hvort þær eru í bitum eða stappaðar. Hann kúgaðist þvílíkt um daginn þegar ég ætlaði að gefa honum stappaðar kartöflur! Ég skil ekki hvaðan hann hefur þessa matvendni, ég man ekki eftir því að hafa verið svona matvönd (man kannski ekki nógu langt). Að vísu vildi ég aldrei þjóðlegan mat eins og svið eða saltkjöt. Man eftir einu atviki þar sem pabbi var að reyna að fá mig til að borða saltkjöt, faldi bitana í kartöflumúsinni og meira að segja blandaði sykri saman við, allt til að fá mig til að borða. Held ég hafi samt fúlsað við þessu! Svo ég hef ekki hugmynd fyrir hvað er verið að refsa mér! Mér skilst reyndar að Hrafnkell hafi verið svolítið matvandur... ætti kannski að fá hann heim til koma einhverjum mat ofan í litla stubbinn! En svo á Kjartan það til að koma okkur mjög á óvart. Í fyrrakvöld var til afgangur af moussaka og ég ákvað að prufa að hita það upp og gefa honum. Gæti alveg eins gert það eins og að henda honum strax. Vissi að ég yrði hvort sem er að sækja eina krukku fyrir Kjartan að lokum. Nema litla dýrið hámaði þetta í sig og fannst mjög gott! Þann mælikvarða má þekkja af því að hann opnar aftur munninn og biður um meira áður en maður er búinn að setja aftur á skeiðina. Yfirleitt er það þannig að maður er að reyna að gabba skeiðina ofan í hann! Þetta kvöld var það ég sem gapti og mataði barnið á moussaka! Næstu skref eru bara að prufa sig áfram í bita-fæðinu, hvað annað hann getur hugsað sér að borða (perur, epli, karföflur og brokkólí eru úti enn sem stendur) og hugsanlega prófa fleiri gourmet-uppskriftir á hann. Í dag er til afgangur af bouillabaisse, ætli ég prufi ekki að gefa honum af því og sjá hvað hann segir!

U2 tónleikar!!!!!
Jibbí jibbí jibbí jibbí!!!!! VIÐ ERUM AÐ FARA Á U2 TÓNLEIKA!!!!!!!! Júhúúúúúúú!!!! Jibbbbíííííí!!!!!!
þriðjudagur, janúar 25, 2005
Ennþá meiri snjór!
Samkvæmt veðurspánni á bara að snjóa út vikuna, við verðum komin á kaf áður en yfir lýkur! En svo á að fara að rigna á föstudaginn svo þetta verður líklega stuttur vetur hérna megin við Atlantshafið!
mánudagur, janúar 24, 2005
Snjór snjór snjór!
Við Kjartan röltum út áðan til að hitta fóstrurnar á crechinu og þá fór að snjóa, lá við að okkur snjóaði í kaf. Það er svo langt síðan maður hefur séð snjó að mér fannst þetta vera stórhríð en þetta er ekkert miðað við það sem var í Bandaríkjunum um helgina, rétt nokkur snjókorn, varla að það sé snjóföl á götunni! Kjartan var steinhissa á þessu öllusaman, skildi ekkert í því hvað þetta hvíta var!
En nú er sem sagt búið að skrá Kjartan á crechið, gaman gaman! Hann byrjar hugsanlega 1. mars, fer eftir því hversu duglegar þær verða að undirbúa, en í síðasta lagi 1. apríl. Til að byrja með verður hann 3 daga í viku en allan daginn frá og með 1. sept. Þetta verður spennandi...
Bilaður dagur!
Þetta útskýrir margt!!!!
Minn dagur er einmitt búinn að vera á afturlöppunum og til að toppa allt þá gleymdi fóstran á crechinu að hún ætlaði að hitta okkur í morgun til að skrá Kjartan. Við höfðum dúðað okkur upp og trítlað í snjó og kulda þangað yfir, nema hvað, við stóðum fyrir utan í 10 mín og enginn á svæðinu. Öll dagsplön okkar röskuðust fyrir vikið. Suma daga á maður bara að breiða upp fyrir haus og halda áfram að sofa!!!

Tönn, barnapía og snjór!!
Helgin var voða notaleg hjá litlu familíunni í Bruslu. Kjartan vaknaði á laugardagsmorguninn með nýja tönn, svo nú eru þær 7 í allt, og honum var auðsýnilega létt. Hann var orðinn samur við sig, brosandi og kátur, greinilegt að hann var laus við pirringinn. En þær bíða fleiri í startholunum svo þetta verður stutt gaman og skemmtilegt!
Á laugardagskvöldið fengum við svo barnapíu, voða sæt og ljúf stelpa, Marie-Laure, sem kom og lék aðeins við Kjartan, svæfði hann og passaði. Kjartan var auðvitað upp á sitt besta svo hún þurfti að hafa afskaplega lítið fyrir hlutunum. Á meðan nutum við hjónaleysin þess að vera barnlaus og fórum út að borða á voðalega fínan ítalskan stað. Þeir voru nú allir í nútíma-tilraunaeldhúsi svo það var happa-glappa hvort maturinn var allt í lagi, góður eða himneskur, hvort okkar fengum einn rétt úr hverjum flokki! En það var mest notalegt að komast út bara við tvö. Alveg nauðsynlegt inn á milli þótt þetta litla dýr eigi í okkur hvert bein!
Sunnudagurinn var svo bara eins og sunnudagar eiga að vera, mest lítið gert. Leikið við Kjartan og farið í labbitúr í góða veðrinu, kíktum meira að segja á róló og leyfðum Kjartani að róla sér.
Og svo byrjar vikan með hvelli... hér er allt "á kafi" í snjó... smá snjóföl yfir öllu þegar við vöknuðum í morgun og hún tollir enn því sólin hefur ekki enn brotist undan skýjunum. Maður gæti farið að draga fram snjóþotur eftir allt saman!!!

föstudagur, janúar 21, 2005
Góður dagur!
Við Kjartan vorum hrikalega dugleg í hádeginu og skelltum okkur í ræktina. Öllu dótinu var pakkað saman, mokað mat ofan í Kjartan og haldið af stað í föstudagstraffíkina. Okkur tókst þó að komast klakklaust á áfangastað en það er ekki laust við að allt þetta tekur mun meiri tíma í hádegistraffíkinni á föstudegi ásamt því að hafa lítinn Kjartan í eftirdragi. En ég komst í puðið og Kjartan fór til barnapíunnar í ræktinni. Hann var nú ekkert sáttur fyrst, komu reglulega grát-rokur svo ég var við það að hætta við, en beit á jaxlinn og lét barnapíuna hafa fyrir kaupinu sínu. Hann var þó mun sáttari þegar komu 2 strákar til viðbótar sem hann gat leikið við og vildi varla fara þegar ég kom svo að sækja hann. Þetta var algjör fjölskyldudagur í ræktinni því Hrafnkell var líka mættur þangað ásamt Óla vini sínum. Svo við puðuðum öll þarna, hver á sinn hátt! Hrafnkell gerði þau "mistök" að heilsa upp á Kjartan í pössuninni. Kjartan var auðvitað þvílíkt glaður en þegar hann fór aftur þá var sko grátið! Ekki alveg sáttur við foreldra sína í dag.
Svo steinsofnuðu litlir menn á leiðinni heim enda löngu komið fram yfir lúrtímann. Hann var svo feginn að geta loksins hvílt sig!
Svo gerðist nú eitt skondið þegar við vorum að fara. Ein konan, sem var í búningsklefanum meðan ég var að reyna að klæða mig milli þess sem ég hljóp á eftir Kjartani, hún stoppaði okkur bara til að segja hvað Kjartan væri nú fallegt barn. Varð bara að monta mig. Þetta var ótrúlega skondið... en sætt af henni!

Kristjana frænka mín sendi Kjartani þennan bol en hún hannaði hann sjálf. Við vorum að máta hann í morgun og hann bara passar svona fínt! Kristjana er hönnuður og býr í London, er þar að reka búð ásamt 2 öðrum stelpum sem þær kalla Beyond the Valley. Þar eru þær að selja hluti, föt og hvaðeina eftir aðra hönnuði. En það er ekki bara búð heldur er þarna líka aðstaða fyrir hönnuðina. Ég hef sjálf ekki komið þangað en Tóta systir fór þangað í haus og henni fannst búðin geggjuð. Þær meira að segja komust í japanska sjónvarpið!!! Endilega kíkið þangað ef þið eigið leið um London. Búðin er á Ganton Street, rétt við Carnaby Street. Bara smá plögg því mér finnst þessi föt sem hún sendi Kjartani alveg æði!
fimmtudagur, janúar 20, 2005
1500 gestir!
Það eru komnir 1500 gestir á þessa síðu frá því við byrjuðum að blogga einhvern tíman í nóvember! Vá!
Hver eruð þið öll??? Þið megið stundum alveg láta heyra í ykkur!

Uppdeit af stigamálum!
Ég gafst upp á því í gær að elta lítinn mann upp stigana eða þola öskrin í honum yfir að vera lokaður inn í tölvuherberginu því litlir menn vilja frekar vera frammi í landkönnuðarleik heldur en inn í tölvuherbergi með mömmu sinni. Svo ég tók mig til og setti upp hliðið sem við ætluðum að vera löngu búin að. Kjartani fannst þetta fyrst voða spennandi sem mamma hans var að bralla, allskonar skrýtnir hlutir sem þurfti að púsla saman og svo var hún með skrítin verkfæri, allt mjög spennandi. Nema þegar hliðið var komið í og búið að festa það þá uppgötvaði lítill maður hvað mamma hans hafði gert! Hann stóð heillengi öskrandi við hliðið, ógeðslega fúll yfir því að komast ekki upp stigann. Aftur og aftur fór hann fram og að hliðinu og í hvert sinn fann ég hann þar grenjandi eða öskrandi. Hann var frekar fúll út í mömmu sína í gærkvöldi. Held samt að hann sé búinn að fyrirgefa mér.
miðvikudagur, janúar 19, 2005
Stór strákur.
Það styttist óðum í afmælið hjá ungum manni og þroskalega er maður alveg farinn að taka eftir því. Suma daga finnst mér Kjartan bara hafa stækkað um nokkra sentimetra því hann verður mannalegri og mannalegri á hverjum degi. Nú um helgina fór Kjartan að sleppa sér og standa sjálfur. Að vísu í örskotsstund í fyrsta skiptið en tíminn hefur lengst. Gerðist alveg óvart fyrst en menn eru að verða áræðnari við það þótt það sé nú ekkert oft. Svo voru menn voða kaldir karlar í dag og klifruðu sjálfir upp stigann. Ég var að vinna í tölvunni og heyrði alltaf í Kjartani frammi á gangi. Svo heyrðist nú ekkert í honum í smá tíma og ég fór að gá. Fann ég þá ekki mjög rogginn dreng upp á stigapallinum. Þá hafði hann farið alveg sjálfur upp stigana! Hann hefur nú fengið að labba nokkrum sinnum upp en þá hef ég verið MJÖG nálægt því það er opið á milli þrepanna. En að fara sjálfur er auðvitað miklu merkilegra!
Fyrst það styttist í afmælið þá styttist líka í að amma og afi komi í heimsókn. Og við erum þvílíkt farin að hlakka til að sjá þau. Veit samt ekki hvern hlakkar mest til, þau að sjá Kjartan eða okkur að sjá þau. Kjartan veit auðvitað ekkert hvað er í gangi en hann verður eflaust glaður að sjá þau. Við Hrafnkell gerum okkur fulla grein fyrir því hvern þau eru að heimsækja, svo við ætlum bara að skilja þau eftir með Kjartani og stinga af til Parísar eina helgina. Held að allir séu mjög sáttir við þá málavexti. Svo er annað mál hvort barninu verður nokkuð skilað!!!!

þriðjudagur, janúar 18, 2005
Brr...
Það er alveg merkilegt hvað það er kalt hérna í flatlendinu. Í dag er um 5 stiga hiti og samt er maður að frjósa eins og maður væri í nokkra gráðu frosti á Klakanum. Það meira að segja snjóaði hérna í morgun, en það var nú ekki nema í stutta stund. Það lyftist heldur betur brúnin á sumum og strax farið að huga að snjóþotum, en það er víst lítil not fyrir þær, snjórinn bráðnaði allur um leið!
Við Kjartan hörkuðum samt af okkur og fórum í langan göngutúr. Fórum í smá landkönnuðarleik og fundum nýjar götur. Komum svo við á róló og tókum smá salíbunu í rólunum. En mér er kalt inn að beini og Kjartan eflaust líka.

Langt síðan síðast!
Jáhá, það er sko langt síðan við höfum látið í okkur heyra! Búið að vera nóg að gera hjá litlu fjölskyldunni.
Hér var líf og fjör í morgun, mömmuklúbburinn kom í heimsókn. Kjartan skæruliði getur vel rústað stofunni á einu morgni, þið getið þá ímyndað ykkur hvernig hún er eftir 4 litla skæruliða! En það var svo gaman hjá þeim, eftir að þau urðu eldri og fengu meira vit er orðið svo gaman að hitta hina krakkana og leika, og þau voru svo dugleg að leika sér í morgun. Við mömmurnar og ein barnapía fengum góðan frið til að sitja og spjalla yfir hádegismatnum. Á meðan krílin rústuðu stofunni rústaði ég eldhúsinu og bjó til böku og salat fyrir mömmurnar. Nú þegar gestirnir eru farnir bíður okkar bara að bretta upp ermar og taka til!
Svo var líka mikið fjör hjá okkur um helgina. Á föstudagskvöldið voru nú bara rólegheit yfir pizzu og dvd en líf og fjör á laugardaginn. Við skelltum okkur á markaðinn og í ýmsar nauðsynlegar búðir eins og súkkulaðibúðina og til Phil vinar okkar í vínbúðinni. Um kvöldið fengum við svo Bjössa og Gunnu í mat og spilerí. Elduðum bara eitthvað einfalt og gott því áherslan var á spileríið. Tókum einn popppunkt og að sjálfsögðu vann Hrafnkell okkur öll... ekki fyndið hvað drengurinn veit um tónlist! En Gunna kom á óvart og var í öðru sæti. Við Bjössi sáum um að tapa! Síðan spiluðum við lestarspil sem þau Gunna og Bjössi komu með og það var svo gaman að við gátum ekki hætt. Við vorum að spila fram undir kl. 5!!! Gott úthald það. Enda voru foreldrarnir frekar þunnir og þreyttir þegar Kjartan vaknaði stundvíslega kl. 8 á sunnudagsmorguninn. Svo við tókum vaktir í að vera með barninu og þegar hann tók eftirmiðdagslúrinn þá svaf öll fjölskyldan! Þetta var svona nýársdagsstemming! En alveg þess virði.

föstudagur, janúar 14, 2005
Áframhald ferðasögunnar - fjöllin og Ronda
Síðasta morguninn í Sevilla pökkuðum við sama öllu dótinu okkar og héldum svo í morgunmat til vina okkar hinu megin við torgið. Eftir nokkrar reddingar á nauðsynjahlutum, því að koma bílnum klakklaust út úr bílageymslunni og pakka í bílinn héldum við af stað upp í fjöllin til Ronda. Hinn nytsamlegi vefur viamichelin.com sendi okkur eftir hraðbrautinni út úr bænum og síðan eftir sveitavegum. Við áttum eftir að komast að raun um að þetta urðu hinar mestu torfærur, algjörir vestfjarðavegir. Eftirá komumst við svo að því að það liggur beinn og breiður þjóðvegur milli Sevilla og Ronda!!! Þegar við komum út af hraðbrautinn vorum við strax komin upp í sveit. Hvert sem augað eygði voru ólífuakrar og þannig yrði það sama hversu hátt við fórum! Sífellt urðu fjöllin mikilúðlegri og minntu æ meira á Vestfirðina, nema hér var jörðin ljós og skorpin undan sólinni. Vegirnir urðu sífellt mjórri og svakalegri þar sem þeir hlykkjuðust meðfram fjöllunum. Hraðinn fór ekki mikið yfir 20 km/klst og í sumum beygjunum lá við að maður stoppaði til að kíkja fyrir horn hvort nokkur bíll væri að koma! Sem betur fer var umferðin lítil. Hátt upp í fjöllunum kúrði svo hvítskúraður lítill bær, Coripe, en þar voru fáir á ferli í siestunni. Sem betur fer rákumst við nú á bensínstöð þar sem við gátum fyllt á tankinn en þar tóku menn ekki kort svo við þurftum að skrapa saman evrurnar til að borga! Við Algodonales komum við svo út á þjóðveginn sem liggur milli Sevilla og Ronda og þar var nóg af þjóðvegasjoppum. Stoppað var í einni til að hressa ferðalanga við og gefa Kjartani að borða. Síðan var ekið sem leið lá til Ronda í gegnum þetta magnaða landslag, en á mun betri vegi! Í Ronda vorum við fljót að finna hótelið og koma okkur fyrir. Við vorum orðin glorhungruð eftir keyrsluna, ekkert búin að borða frá því um morguninn, nema auðvitað Kjartan sem fær sérþjónustu. Svo það var haldið í bæinn í leit að bita. Við röltum nú fyrst um miðbæinn í Ronda, skoðuðum kirkjutorgið og verslunargötuna þar sem nóg var af dótabúðum. Þótt sólin skini þá var skítkalt í Ronda því vindurinn blés ansi hart. Hins vegar fór lítið fyrir opnum kaffihúsum. Okkur var bent á að eitt slíkt væri að finna í elsta bæjarhlutanum en til að komast þangað þarf að fara yfir nokkur hundruð ára brú. Þar sér maður vel hvernig Ronda er byggð á kletti sem stendur í miðjum dal. Brúin liggur yfir mikið gil sem aðskilur eldri og yngri bæjarhlutann. Kaffihúsið í gamla bænum reyndist hins vegar lokað og við hættum okkur inn í gegnum völundarhús lítilla gatna í leit að öðru slíku en allt virtist vera lokað. Á aðalgötunni römbuðum við þó fram á bar/kaffihús sem reyndist vera opinn. Þrír gamlir karlar voru þar inni og kom einn þeirra út til að sækja okkur þar sem við tvístégum fyrir utan. Sá greinilega á okkur hvað við vorum köld og svöng! Hann bauð kaffi en við vildum endilega eitthvað að borða. Þá vildi hann ólmur að við pöntuðum sérrétt húsins svo við slógum til. Og sáum alls ekki eftir því. Allskyns grænmeti og harðsoðin egg í tómatsósu, þvílíkt sælgæti! Smám saman fylltist staðurinn af fleiri köldum og hröktum túristum og fljótlega voru flestir farnir að gæða sér á sama réttinum! Ljúf lífsreynsla! Þegar komið var út í kuldann aftur ákváðum við að sleppa meira rölti um bæinn og fara frekar heim á hótel og taka siestu. Eftir vænan dúr ákváðum við hreinlega að vera löt, allir enn saddir og engan langaði aftur út í kuldann. Við Kjartan kíktum þó aðeins á barinn þar sem barþjónninn, sem varð mikill vinur okkar, hitaði fyrir okkur matinn hans Kjartans, og á meðan gat litla dýrið beytt sjarma sínum á aðra gesti! Kvöldinu var eytt í að kúra fyrir framan sjónvarpið að horfa á mynd döbbaða á spænsku! Segið svo að við höfum ekki æft spænskuna í þessari ferð.
Gamlársdagur rann síðan upp bjartur og fagur, og það hafði sem betur fer lægt. Við byrjuðum morguninn á því að leita að súpermarkaði en áður en að því kom álpuðumst við inn á lítinn bar/kaffihús þar sem lítil ummerki virtust vera um túrista. Barinn var að sjálfsögðu í andalúsísku decori, hinar margrómuðu flísar upp á miðja veggi, barborð úr timbri, og serrano-skinkur hangandi úr loftinu. Þarna afgreiddu tvær kynslóðir, mamma og pabbi, og svo afi og amma. Amma var nú orðin frekar gömul, hendur hennar titruðu svo mikið að kaffið hélst varla í bollanum. Þarna fengum við þvílíkt góðar samlokur með ólífuolíu, salti og serrano-skinku og auðvitað eðal-kaffi með. Kjartan fékk að vanda að sleppa úr kerrunni sinni og stóð sposkur í því að færa sig milli stóla. Afa gamla leist nú vel á þennan bjartleita og brosmilda dreng og veitti honum óspart athygli. Honum þótti nú Kjartan helst til ragur og hvatti hann óspart áfram í því að ganga. Karlinn vildi ólmur fá Kjartan til sín og þreyttist seint á að spjalla við hann. Þegar Kjartan hafði hvatt þennan nýja vin sinn fundum við svo súpermarkað litlu neðar í götunni og að koma þangað inn var eins og að hafa farið í tímavél, því búðin minnti á KRON á 8. áratugnum eða einhver kaupfélögin á landsbyggðinni. Ég held að við höfum keypt síðustu 3 krukkurnar af barnamat. Þarna var ekkert verið að hafa eitthvað úrval, bara þetta nauðsynlegasta. Við héldum svo í elsta hluta bæjarins þar sem við röltum um og skoðuðum litlar götur og sæt lítil hús. Hér var líka að finna ýmis ummerki frá márunum, m.a. gömlu borgarmúrana og gamlan bænaturn sem síðar varð hluti af kirkju. Á útsýnisstað yfir dalinn leyfðum við svo Kjartani að brölta aðeins um og rannsaka bæinn upp á eigin spýtur. Þegar magarnir tæmdust voru þeir fylltir aftur af tapas. Á rölti okkar um hverfið urðum við fyrir skondnu atviki. Eftir einni lítilli götunni kom gömul kona labbandi, þessi dæmigerða spænska gamla kona, hvíthærð og svartklædd, með húð eins og leður. Þessi var pínulítill og burðaðist með risastóran poka á bakinu. Þegar hún mætti okkur setti hún pokann niður og tók þvílíkt til við að spjalla og kjá framan í Kjartan! Ekki skyldum við orð af því sem hún sagði en hún var skælbrosandi og þótti greinilega Kjartan mjög sætur. Þau virtust ná einhverju sambandi því Kjartan brosti breytt á móti en við Hrafnkell vissum ekki hvaðan stóð á okkur veðrið. Svo kleip hún hann í kinnarnar, skellti pokanum aftur á bakið og rölti áfram.
Síðan var haldið aftur heim á hótel í siestu. Fyrst settumst við þó út á veröndina við hótelið og fengum okkur drykk hjá barmanninum vini okkar, enda magnað útsýnið og gott veður. Eftir siestuna héldum við svo í bæinn í leit að veitingastað. Við höfðum fyrr um daginn siktað út 2 en annar reyndist lokaður og hinn fullur enda gamlárskvöld. Nú voru góð ráð dýr og héldum við af stað í leit að fleirum. Margir voru reyndar lokaðir fyrir einkapartý, og víða reyndust spánverjarnir komnir í gott stuð fyrir kvöldið, og aðra leist okkur ekki á, enda vorum við pikkí þetta kvöld! Eftir mikið þramm um götur bæjarins urðum við heldur betur heppin þegar við duttum inn á La Gota de Vino 13, n.k. sambland af vínbar og bistro. Þar var hún Carmen að afgreiða, alveg eldhress og kaldhæðin Spánverji. Bak við barinn stóð Madamman, ein ekta spænsk gella komin yfir 50. Hún hefði vel getað verið hórumamman á besta hóruhúsinu í bænum, sú týpa. Þau Kjartan urðu miklir mátar og allt kvöldið tók hún sér sérstakan krók í hvert sinn sem hún fór með drykki í salinn til að spjalla aðeins við Kjartan. Þarna höfðum við það eins og kóngar, Kjartan fékk að valsa um allt og við þurftum varla að sjá sjálf um barnið, þær sáu um hann. Þegar kom að því að gefa Kjartani að borða fékk hann líka sinn eigin disk og skeið! Kokkurinn töfraði fram þvílíkt góðan mat, við fengum gott vín og nutum þess að vera þarna vel fram yfir 11. Þá var Kjartan orðinn úrvinda af þreytu enda mikið búinn að kanna, tæta og sjarmera þetta kvöld. Fámennt var á götum Ronda á leiðinni heim á hótel, svo við komum barninu í rúmið (hann sofnaði rétt fyrir miðnætti), skáluðum í cava þegar nýja árið gekk í garð og horfðum á tunglið og stjörnurnar. Það heyrðist í fáeinum sprengjum, líklega kínverjum, í fjarska. Allskostar ólíkt þeim áramótum sem maður upplifir á Íslandi. Á hótelinu átti að vera heljarinnar partý þetta kvöld og við ákváðum nú að kíkja, en það var nú frekar sorglegt, fámennt og lítið fjör, svo við héldum nú bara snemma í háttinn!
Nýjársdagur hófst á því að pakka okkur saman og koma öllu í bílinn. Síðan héldum við í leit að morgunmat áður en við lögðum í'ann til Granada. Margir voru á ferli þennan morguninn, flestir prúðbúnir, og mikið fjör í bænum. Við fundum opið kaffihús þar sem við gæddum okkur á croissant og kaffi.
Því næst lá leið okkar upp í fjöllin, til lítils þorps, Zahara, sem kúrir liggur við á fjallsbrúninni. Á rölti okkar um bæinn komum við inn á aðaltorgið en þar virtust flestir þorpsbúar vera samankomnir, prúðbúnir, að fá sér hressingu og óska hver öðrum gleðilegs árs. Við settumst þar niður líka og tókum þátt í gleðskapnum. Kjartan fékk að brölta aðeins um og eignaðist litla vinkonu. Þetta var enn einn hvítskúraður bærinn með litlar sætar götur og magnað útsýni. Nema þarna voru göturnar brattar!!! Eftir skemmtilegt stopp keyrðum við svo áfram til Granada. Meira um það í næsta pistli...

Út í kuldann!
Við Kjartan vorum voða dugleg og fórum út í göngutúr. Nú er vorveðrið horfið í bili, aftur orðið kalt. Það var meira að segja héla yfir öllu í morgun. Svo við vorum vel búin!
Kíktum á leikvöllinn en Kjartani þykir það svo gaman. Hann er að vísu yngstur á svæðinu, allir krakkarnir eru farin að labba og geta leikið sér, en Kjartani þykir svo gaman að sjá hina krakkana og mest gaman að róla! Hlær og skríkir allan tímann og finnst þetta ógurlegt sport. Enda kvartaði hann hástöfum þegar við hættum að róla. Svo leyfði ég honum að krúsa aðeins meðfram klifurgrindinni. Í klifurgrindinni voru stóri strákar að príla og þótti Kjartani þvílíkt stuð að fá að vera þarna líka og fylgjast með strákunum. Það verður enn meira stuð þegar litir menn fara að labba sjálfir.
Þegar við vorum orðin vel frosin í gegn röltum við okkur bara aftur heim, hættum við öll áform um risagöngutúr í bili!

Ferðasagan - Sevilla!
Jæja, er ekki kominn tími til að segja ferðasöguna? Löngu komin heim og víst best að byrja áður en það fennir yfir sporin.
Ferðin hófst 27. des á leigubílaferð út á Zaventem (flugvöllinn). Við vorum frekar snemma í því svo það var engin röð, bara beint í check-in og ekkert mál. Kjartani fannst þetta alltsaman voða spennandi enda margt nýtt að sjá. Fengum okkur öll í svanginn því Virgin Express eru nú ekki með neitt á boðstólum nema fyrir aura. Þeir eru hins vegar svo dannaðir líkt og öll flugfélög í veröldinni, nema Icelandair, að leyfa barnafólki að fara fyrst út í vél. Og flugið gekk ótrúlega vel. Við bjuggumst alveg eins við að Kjartan yrði óður því hann þarf svo mikið að hreyfa sig þessa dagana en hann var eins og ljós, líkt og hann hefði aldrei gert annað áður. Enda hefur drengurinn farið í nokkrar flugferðir á sinni stuttu ævi! Hann sofnaði nú bara í flugtaki og svaf heillengi. En þegar hann vaknaði þá var nú mest spennandi að kíkja á fólkið í sætarröðunum fyrir aftan og fyrir framan. Fyrir framan okkur sátu eldri hjón og var frúin með forlátann rauðan hatt sem Kjartani þótti mjög spennandi en frúin var ekki jafnhrifin af því að hann væri að snerta hattinn hennar. Fyrir aftan okkur sat spænsk kona sem var hins vegar yfirsig hrifin af Kjartani líkt og svo margir landar hennar voru og hún þreyttist ekki á því að atast í drengnum þegar hausinn á honum birtist yfir sætaröðina. Það lá við að foreldrarnir yrðu abbó því Kjartan vildi helst bara vera að spjalla við þessa konu. Og auðvitað tók Spánn á móti okkur með sól og blíðu. Þegar lent var í Malaga tók svo við þetta venjulega, sækja töskur og bílaleigubílinn. Lentum í smá veseni með barnastólinn en svo tókst okkur að komast af stað. Keyrðum beinustu leið til Sevilla. Landslagið var strax alveg stórbrotið því fjöllin ná alveg niður að sjónum. Upp frá Malaga keyrðum við í gegnum árdal sem hlykktist og beygðist í gegnum fjöllin og upp á hásléttuna. Sevilla stendur svo á ársléttu Guadalquivir og maður tók eftir því þegar kom inn á ársléttuna, sem er mjög frjósöm, að þar jókst landbúnaðurinn. Það voru ólífutré út um allt! Með sætum haciendas (búgörðum) inn á milli. Ekki amalegt að vera bóndi þar!
Við vorum komin til Sevilla um 7 og þurftum aðeins að villast en allt reddaðist það að lokum. Hótelið okkar var í pínulítilli götu í gamla hverfinu, Barrio Santa Cruz, þar sem eru eintómar litlar sætar götur og allt í einstefnu! Svo það var ekki auðvelt að finna rétta leið. En það var vel þess virði, geggja hótel og alveg risastórt herbergi. Meira að segja Kjartan fékk sitt eigið rúm! Upp á hótelherbergi skáluðum við svo í cava (spænsku freyðivíni) til að fagna fríinu og chilluðum aðeins. Þegar menn voru orðnir svangir tókum við uppástungum móttökudömunnar og fundum lítinn sætan tapasbar í sömu götu, Las Theresas, og gæddum okkur á tapas. Þjónninn kom bara með blöndu af ýmiskonar, stakk upp á því þegar hann sá hvað við vorum villt yfir spænska matseðlinum. Og þetta var alveg geggjað... með kjötlærin af Serrano skinku hangandi í loftinu! Fyrir háttinn var svo tekinn smá labbitúr til að láta sjatna og aðeins kynnast borginni. Hótelið var rétt hjá dómkirkjunni og hinum fræga La Giralda turni sem var alveg geggjaður upplýstur!
Morguninn eftir vorum við ekkert að flýta okkur á fætur en þegar allir voru orðnir svangir röltum við yfir torgið á lítið kaffihús og fengum okkur staðgóðan morgunmat (lesist: beikon, egg og djús!). Og gott kaffi! Það er alveg merkilegur munur á Spáni og Belgíu hvað það er miklu auðveldara að fá gott kaffi á Spáni, held ég hafi bara ekki fengið vont kaffi þar. Svo röltum við af stað en við áttum eftir að rölta mikið um götur Sevilla. Borgin er ótrúlega falleg og mikið mannlíf, það er bara ótrúlega gaman að vera þar á röltinu. Á torginu við dómkirkjuna voru fullt af hestvögnum og greinilega lítið að gera. Einn þeirra var svo sniðugur að kalla á okkur og bjóða "special prize" sem við ákváðum bara að taka. Hoppuðum upp í hestvagninn, dúðuðum okkur í teppum því það var kalt þennan dag og ókum af stað! Það var alveg frábært að sjá borgina frá þessu sjónarhorni og við fengum frábæra leiðsögn... að vísu alla á spænsku en okkur tókst að krafla okkur í gegnum það! Kallinn var alveg ótrúlega skemmtilegur, benti okkur á skrýtna og skondna hluti og maður fékk betri tilfinningu fyrir borginni. Hann jafnvel keyrði í gegnum litlu göturnar í gamla hverfinu!!! Kjartani fannst svo notalegt að hann steinsofnaði og svaf mestallan tímann!
Eftir túrinn var svo kominn tími á að fylla maga og aftur duttum við inná tapasstað... og ekki varð maður fyrir vonbrigðum í það skiptið! Við vorum hins vegar svo vitlaus að borða áður en siestan hófst þannig að þegar við komum út södd og sæl um 2-leytið var siestan að byrja og allt lokað!!! Við héldum því röltinu áfram um litlar og sætar götur Barrio Santa Cruz, kíktum inn í nokkur andalúsísk patio. Og ég féll alveg fyrir flísunum sem eru mikið notaðar í anddyrum húsa. Eftir allt röltið var familían orðin þreytt svo við skondruðumst heim á hótel og tókum siestu. Eftir 2 tíma lúr var svo haldið út aftur að skoða mannlífið og leita að veitingastað. Við duttum inn á einn sem var rétt við dómkirkjuna, tapashlutann af Casa Robles, og fengum að vanda geggjaðan mat. Gömlu karlarnir sem voru að afgreiða voru alveg brill og auðvitað mjög hrifnir af Kjartani. Við sátum við glugga svo við sáum út á litlu götuna fyrir utan þar sem fullt af fólki átti leið hjá og Kjartani þótti ekkert skemmtilegra en að standa við gluggann og berja á rúðuna, vegfarendum til mikillar skemmtunar! Svo var bara skriðið heim að sofa!
Dag þrjú ákváðum við að byrja á því að prufa lítið kaffihús sem við höfðum séð deginum áður þar sem glugginn var yfirfullur af girnilegu bakkelsi, en við urðum fyrir þvílíkum vonbrigðum. Ágætis bakkelsi og gott kaffi en afgreiðslumaðurinn var svo hrannalegur að okkur leið eins og illa gerðum hlutum þarna inni. Ekki gott! Næsta mál á dagskrá var að fara og redda okkur hóteli upp í fjöllunum því við vorum svo kærulaus að hafa enga pöntun. Okkur hafði verið sagt að þetta væri low season og því ekkert mál að fá hótel, en þau nöfn sem við höfðum tekið með okkur voru öll full... svo það var stefnt á næsta netkaffihús að surfa og leita að hótelum. Fíni vefurinn www.hotelclub.com klikkar aldrei og við gátum bjargað hóteli bæði fyrir Ronda og fyrir Granada. Ætluðum að vísu ekki að vera í Ronda heldur í einhverjum af litlu bæjunum í þessum fjallgarði nema þau voru flest lokuð eða full! Svo við enduðum í Ronda og sáum ekki eftir því!
Þegar þessum skyldum var lokið gátum við loksins farið að njóta frísins aftur. Héldum aftur inn í Barrio Santa Cruz og röltum um með smá stoppi til að sötra vino tinto til að ná niður stressinu eftir hótelleitina! Nú könnuðum við nýjar slóðir, fundum lítið sætt torg, gamla borgarmúra frá tímum Máranna og Morillo-garðana, þar sem við leyfðum Kjartani aðeins að leika sér. Og ég fann bekk sem væri góð hugmynd að kópíera út í garði! Elska þessar andalúsíksu flísar!
Landkönnuðarferð okkar endaði svo á kunnuglegum slóðum, við dómkirkjuna. Alveg magnað mannvirki, lítur ekki út eins og kirkja heldur hrúga af allskyns byggingum, þó vel skreytt, og svo eru þar inn á milli leyfar frá tímum máranna, m.a. einn inngangurinn, og La Giralda turninn sem er gömul mínaretta (bænaturn). Ótrúlega skondin blanda af arabískum og kristnum áhrifum! Á leiðinni hafði Kjartani tekist að týna einum skónum sínum svo það voru góð ráð dýr. Deginum áður höfðum við rekist á búð með barnaskó og við héldum í leit að þeirri búð. Að vísu var siestan að byrja svo við ákváðum að fylla magana fyrst og fara svo í skóleiðangur. Í lítilli götu rákumst við á sætan stað og í góða veðrinu (loksins voru gráðurnar orðnar 15!!!) ákváðum við að sitja úti. Staðurinn var að vísu geggjaður að innan en ég steingleymdi að taka mynd. Flottur bar úr viði og skreyttur með andalúsískum flísum. Og flísarnar voru allsstaðar upp á miðja veggi. Auðvitað héngu serrano-skinkulærin niður úr loftinu. Með magana fulla lá svo leið okkar í skóbúðina þar sem okkur tókst að kaupa tvenna skó á Kjartan... og það á spænsku!!! Við vorum svo kominn í svo mikinn skókaupaham að öll familían fór í skóleiðangur. Ánægð fórum við heim með 2 skó á Kjartan, 2 skó á Hrafnkel og eina fyrir mig!! Á leiðinni til baka á hótelið duttum við svo inn í gamlan súpermarkað sem var alveg frábær, eldgamlar innréttingar og lítið annað er gourmet-fæði og svo inn í leðurvörubúð þar sem eldri hjón voru að afgreiða ásamt dóttur sinni og voru innréttingarnar þar inni frá svipuðum tíma og þau. Frúnum var mikið í mun að selja Hrafnkatli belti, höfðu mikið fyrir því að stytta rétta beltið, en á meðan var karlinn að spjalla við Kjartan. Var yfir sig hrifinn af þessum ljóshærða dreng og kallaði hann í sífellu rubio, rubio. Með beltið í farteskinu héldum við heim á hótel og tókum siestu, gerðum okkur svo til og fórum fínt út að borða. Fórum á stað rétt hjá hótelinu sem við höfðum rekist á fyrr um daginn, La Albahaca, sem er í gömlu Sevillönsku húsi, ótrúlega fallega innréttaður, kristalsljósakrónur í loftinu og allt mjög glæsilegt. Þarna borðuðum við á okkur gat, fengum súperþjónustu enda allir þjónarnir yfirsig hrifnir af Kjartani. Einn reyndi mikið að fá að halda á litla stubbi en þá vildi hann frekar mömmu sína. Borðað var í nokkrum herbergjum og voru 2 þjónar í hverju þeirra. Þjónarnir í hinum herbergjunum voru oft að koma í gættina bara til að kíkja á Kjartan og jafnvel aðeins að kjá framan í hann. Þegar leið á kvöldið og hann varð aðeins órólegur fórum við stundum fram til að kíkja á jólatréið í anddyrinu og þá komu þeir allir að spjalla við hann. Kjartan fékk meira að segja jólaskraut af tréinu til að leika sér að. Í eitt skiptið var þar gamall fastakúnni, flamengodansari af flamengobarnum við hliðina, og hann tók nokkur spor til að kæta Kjartan. Alveg ógleymanlegt kvöld og við fórum vel södd og ánægð heim að sofa! Þar með var tíma okkar í Sevilla lokið og daginn eftir héldum við á vit fleiri ævintýra... meira um það síðar!

fimmtudagur, janúar 13, 2005
Ísland
Það er ekki fyndið hvað ég hef mikið rekist á Ísland undanfarinn sólarhring. Í gær lenti ég í því í tvígang að kveikja á sjónvarpinu og fara á smá stöðvarflakk og lenda þá á stöð sem var að sýna myndir frá Íslandi. Í annað skiptið var það LibertyTV, n.k. ferðalagsstöð, sem var að sýna myndir frá Vestfjörðum og fjalla um hvað það væri nú fögur náttúra þar og mikið hægt að gera, t.d. kayaksiglingar og fleira. Í seinna skiptið var það á CNN þar sem verið var að sýna Samsung-auglýsinguna þar sem gaurinn er staddur með myndavélasímann sinn við eitthvað vatn á hálendi Íslands og sendir myndina um allan heim með fína símanum sínum. Áðan var ég svo að lesa Bulletin, vikublað útlendinga í Brussel sem segir frá því helsta sem er að gerast hérna og þar var talað um að fréttina með að breskir ferðamenn eyddu mestu hér í Belgíu en Ísland væri í öðru sæti. Svo í dag þurfti ég að fara á fund í íslenska sendiráðinu (var sjanghæjuð í skemmtinefnd þorrablótsins) og það var svo fyndið að koma utan úr þessu franska umhverfi og inn í sendiráðið þar sem manni var heilsað á ÍSLENSKU!!! Móttökudömunni fannst það ekki jafn fyndið og mér!!! Jamms, bara ÍSLAND út um allt!
Til hamingju með afmælið Matthildur!
Lítil vinkona okkar, hún Matthildur María, á afmæli í dag og er orðin 1 árs! Til hamingju með það litla skvísa.
miðvikudagur, janúar 12, 2005
Kaffi
Ég er nú hætt að vera mikill kaffifíkill en ég verð allaveganna að fá eitt gott fix á dag. Mjög mikilvægt að það sé gott kaffi! Það tók nú tímann sinn að finna drekkandi kaffi hér í Belgíu, hollenska merkið Douwe Egberts er út um allt en það er varla drekkandi, það var ekki fyrr en ég uppgötvaði Jaquemotte sem ég fékk loksins almennilegt kaffi. Og maður verður þvílíkt að passa sig að finna réttu tegundina af Jaquemotte annars er það ekki drekkandi. Svo svona til hátíðarbrigða dundar maður sér við að mala kaffibaunir frá Kaffitári en við vorum svo gáfuð að byrgja okkur upp áður en við yfirgáfum Klakann í sumar! En undanfarið hefur kaffið mitt verið ódrekkandi. Ég spáði ekkert í þessu, með sama brúna pakkann frá Jaquemotte og venjulega og ekki einu sinni hægt að svolgra í sig einum sopa!!! Svo uppgötvaðist þetta um helgina þegar Hrafnkell hellti upp á kaffið... hann skyldi ekkert í því að ég væri farin að drekka decaf!!!
Sem sagt í öllu fyrirtækinu að leita að rétta kaffipakkanum þá keypti ég óvart decaf! (NB, Belgar raða ekki í búðarhillur eins og annað fólk, hér eru ekki vörumerkjum raðað saman, heldur er öllu raðað eftir tegundum þannig að allt er hist og bast um hilluna!!! Og stundum ekki einu sinni í sömu hillu!!!!) Og eins og alþjóð veit þá eru það helgispjöll að drekka decaf, þá getur maður nú alveg eins hætt þessu kaffiþambi og farið að drekka te!

Creche
Við Kjartan fórum í gær að skoða crêche. Það var algjör grís að við rákumst á þessa því konan sem rekur hana hafði hengt upp auglýsingu í bakaríi niðri á torgi, eina bakaríið sem ég fer eiginlega aldrei í. Nema á sunnudaginn voru öll hin lokuð svo ég fór þangað og var svo heppin að reka augun í auglýsinguna. Þetta er ný creche, hún verður opnuð 1. apríl, og eru konurnar tvær sem reka hana alveg á milljón þessa dagana að mála og gera allt klárt. Svo þarna verður allt nýtt og fínt fyrir litla orma. Það besta er að þær eiga laust pláss!!! Svo við þurfum ekki að bíða fram í nóvember... Og þær eru í göngufæri við okkur, passar að skutla Kjartani þangað þegar maður er á leið í metró. Crechið er með heimasíðu ef ykkur langar að kíkja, að vísu allt á frönsku!
Þannig að Kjartan verður þarna 3 daga í viku frá 1. apríl og svo líklega á hverjum degi í haust þegar ég þykist ætla í meira nám!!! Nánar um það síðar!

þriðjudagur, janúar 11, 2005
Skrið!
Eftir því sem Kjartan verður betri og betri í skriðinu og færir sig æ meira í áttina að því að labba, þá hafa þróast ýmis ólík skrið. Það er power-skriðið þar sem hann er eins og eldibrandur yfir stofuna, aðallega notað þegar þarf að flýta sér eitthvað, eins og að ná í snúrur eða annað slíkt áður en foreldrarnir sjá til. Svo er íhugula-skriðið þegar verið er að spá í hlutina, eins og þegar hann skríður í kringum húsgögnin áður en hann velur sér stað til að standa upp... eða þegar hann er að spá í hvaða bók hann á að byrja á því að tæta í þetta sinn! Spásserí-skriðið er ný tegund, frekar nýtilkomin, þegar litlir menn þurfa að sýna sig aðeins. Þá er skriðið í gæsagangsstíl, hendurnar fara hátt upp í loft með tilþrifum, og gjarnan fylgja með einhver hljóð, bara svona til að vekja aðeins meiri athygli á sér! Nú og svo ef menn þurfa extra mikið að flýta sér, eins og þegar mamma veifar framan í þá pelanum (sem er nú bara illska) þá er hreinlega sest á rassinn og skælt!
mánudagur, janúar 10, 2005
Farið að vora?
Það er geggjað veður hérna, sól og bara heitt miðað við árstíma. Mælirinn í bílnum áðan sagði 16°! Þokkalegt það! Ég var þvílíkt að kvarta í gær að það væri ekki komið vor. Jólin búin og ég hreinlega nennti ekki þessu hálf-eitthvað veðri, vildi bara fá vor og gott veður! Ósk mín virðist vera að rætast!
Ég var dugleg í hádeginu, fór í ræktina og tók Kjartan með. Setti hann í pössunina í ræktinni og hann var bara voða ánægður með það. Fyrst var hann nú bara einn með barnapíunni, voða gaman hjá þeim, en svo bættust 2 strákar í hópinn og það var sko líf og fjör þegar ég sótti hann. Á meðan var ég dugleg og puðaði. Það er svo skondið, nokkur hlaupabretti standa upp við gluggana en búið er að setja sandblásna filmu fyrir efrihelminginn svo enginn vegfarandi sjái mann svitna. Hins vegar hefur maður gott útsýni yfir neðri helminginn af hverjum þeim sem gengur hjá. Ég datt í það þegar ég puðaði á hlaupabrettinu að ímynda mér hvernig efri helmingurinn af fólkinu sem þarna gekk hjá liti út. Þarna fóru hjá allskyns fólk, kona í pilsi og háum hælum, karlar í jakkafötum og blankskóm, strákar á strigaskóm, gellur á pinnahælum o.fl. o.fl. Í eitt skiptið gekk par hjá og það hreinlega leið yfir stelpuna þarna fyrir utan gluggan!!! Veit ekki hvað gerðist, kannski varð henni svona um alla þessa fætur sem hlupu þarna fyrir innan!!!!

Voða notaleg helgi!
Eftir innipúkadag á laugardaginn stytti sem betur fer upp á sunnudaginn svo við komumst út að viðra okkur. Fórum í langan göngutúr í Tervuren-garðinum, Kjartani til mikillar skemmtunar. Hann söng og trallaði megnið af tímanum en lognaðist svo út af og svaf. Hann sá fullt af öðrum börnum og fuglum. Fuglar eru orðnir frekar vinsælir, honum finnst þeir stórkostlega fyndnir! Svo lentum við meira að segja í torfærum en góða Maclaren kerran komst þetta allt!! Það var fullt af fólki þarna, þetta var eins og á Ægissíðunni. Greinilega fleiri þurft að viðra sig eftir laugardaginn.
Í góða veðrinu komst Hrafnkell svo í það að þvo bílinn en ég neitaði að stunda fleiri húsverk eftir ofurtiltekt laugardagsins, svo við Kjartan vorum bara að leika okkur og slæpast. Svo vorum við bara voða dugleg að elda, Hrafnkell gerði geggjað lasagna og ég bjó til Tarte Tatin, voða gott, en þarf að slípa uppskriftina aðeins til! Við vorum að bæta upp letina frá því á laugardagskvöldið en þá vorum við löt og fórum út að borða. Fórum til eins nágrannans, grískan stað sem er rétt hjá torginu. Alveg geggjaður matur og skemmtileg þjónustan. Yfirþjónninn, sem eflaust á staðinn, var þvílíkt kumpánlegur. Dró fram barnastól fyrir Kjartan og þurfti mikið að spjalla við hann. Svo trallaði hann við þjónustuna. Og þegar var lítið að gera settist hann hjá trúbadornum og söng fyrir gestina. Kjartan var yfirsig hrifinn af trúbadornum og þjóninum, snéri sér hálfur við til að fylgjast með þeim!
En jólatréið fór ekki niður um helgina. Ég veit að jólin eru búin en ég er búin að áskilja mér rétt til að hafa jólatréið viku lengur þar sem ég fékk ekki að njóta þess í heila viku meðan við vorum á Spáni!!! (Góð afsökun fyrir því að taka það ekki niður strax!!!) Ég gæti hinsvegar gugnað á þessu því með hverjum deginum sem líður þykir Kjartani jólatréið æ meira spennandi. Sérstaklega eftir að hann gat gengið að því og skoðað skrautið betur. Skrautið var nefnilega miðað við skrið- og sethæð svo Kjartan næði ekki í það, en foreldrarnir gerðu ekki ráð fyrir þvílíkum framförum með vagninn strax þannig að standandi getur hann náð í sumt skrautið. Margt af því hefur þurft að flytja ofar undanfarna daga. Sjáum hvað setur. Tréið er amk ekki komið um koll ennþá, kannski er von...

laugardagur, janúar 08, 2005
Mætti halda að maður sé á Íslandi!
Hér er bara bilað veður, "íslensk lægð" eins og veðurfréttamennirnir kalla það, rok og rigning! Algjört innipúkaveður. Svo öll plön um að þrífa bílinn, klippa rósir, hreinsa til í garðinum og fara í langan göngutúr hafa verið lögð á hilluna í bili. Í staðin sitjum við inni, hlustum á tónlist og lesum. Kíkjum svo á tölvuna við og við. Voða notalegt. Belgískt vetrarveður!
föstudagur, janúar 07, 2005
Við búum í óspennandi landi!
Hvað meina þeir!!! Að Belgía sé óspennandi!!! Hvað með súkkulaðið, bjórinn og Manneken Pis???!!!!
Útsölur!
Ég ákvað að vera dugleg í morgun og drösla Kjartani með mér í búðir! Algjört afrek eftir lítinn svefn í nótt, vitandi það að það yrði brjálað að gera fyrstu útsöluhelgina. Ég nennti samt ekki í bæinn, fór í staðin í Woluwe verslunarmiðstöðina. Algjör Kringlustemming, fólk út um allt, læti, hávaði og annað áreiti. Ég er búin að komast að því að útsölur eru bara ekki fyrir mig. Ég vil mjög gjarnan bara hafa búðirnar fínar og snyrtilegar þannig að ég finni eitthvað sem mér líst á og finni líka réttu stærðina! Gerði sem sagt þau afdrifaríku mistök að byrja í Zöru. Ótrúlegt en búðin leit út eins og eftir sprengjuárás og það kl. 11 að morgni! Búðin var búin að vera opin í klukkutíma!!! Eitt skil ég ekki með Zöru, þar inni er hitinn alltaf upp úr öllu valdi svo maður endar á því rífa af sér spjarirnar. Maður hefði haldið að í fatabúð vildirðu hafa hitastigið þannig að fólk vildi frekar fara í fötin en úr þeim????
Endaði svo í Inno sem er mun skárri, eru með góð merki og frekar góða útsölu. Fór nú samt ekki út nema með 2 boli á mig, Kjartan var ekkert á því að leyfa mömmu sinni að máta einhverjar buxur!!! Hann var hins vegar miklu sáttari í barnafatadeildinni því þar sátu fleiri ormar í kerrunum sínum svo þau gátu haldi fund á meðan mömmurnar skoðuðu fötin. Kjartan græddi sem sagt mun meira á þessari verslunarferð en ég, 3 buxur, nokkra boli og peyru! Kannski eins gott því barnaföt eru varla kaupandi nema á útsölu!!! En Kjartan á samt heiður skilið fyrir þolinmæðina, var upp á sitt besta allan tímann, eina kvartið frá honum var þegar hann var orðinn svangur, enda mamman komin í útsölugírinn og steingleymdi tímanum.
Ágætis udflugt hjá okkur en svakalega verður maður þreyttur á svona "Kringlu"-búðarrápi. Þá vil ég frekar komast niður í bæ, fá frískt loft á milli búða! Það verður bara næst.... og þá fer Kjartan í pössun á meðan!

fimmtudagur, janúar 06, 2005
Varúð!!! Húsmæðrablogg dauðans!!!
Ég var að berjast við sjálfa mig í morgun og ákveða hvort ég ætti bara að vera heima og hafa það notalegt eða fara í einhvern ofurgír og skella mér í bæinn. Nú er útsölur byrjaðar og ýmislegt sem mig langar í!! En einhvern vegin var ég ekki í bæjarstuði. Ákvað að vera heima og sjá svo til seinnipartinn...
Kannski eins gott því skúrkurnar mættu hér galvaskar kl. að verða 1! Svo nú er allt að verða hreint og fínt í húsinu.
Ég dundaði mér við það í morgun að ganga frá úr töskunum okkar (loksins!) og taka aðeins til. Annað "eins gott" því annars hefðu skúrkurnar ekki komist að. Á meðan ég var að þessu dundaði Kjartan sér við að drasla aftur til! Bara eins og honum einum er lagið! Ekki nóg með allan þennan myndarskap því ég er líka búin að baka... hva, það lágu 3 bananar undir skemmdum og ekkert betra en að gera úr þeim muffins... jumm... fæ gott með kaffinu á eftir! Og svo eldaði ég hádegismat fyrir Kjartan. Það var nú ekki flókið, sauð lengjur af gulrótum og zuccini. Honum þótti þetta voða spennandi, sérstaklega þar sem ég var líka að narta í þetta, stakk þessu upp í sig, en undirteknirnar voru ekkert rosalegar. Hryllti sig aftur og aftur en lét sig samt hafa gulræturnar. Zucciniið fór nú bara beint á gólfið! Svo reyndi ég að stappa grænmetið en það fór nú allt bara út aftur, "oj, hvað ertu að reyna að gefa mér mamma!" var svipurinn sem ég fékk. Þannig að það var endað á krukkumat og það tók 2 tegundir áður en hann fékkst til að borða. Skil ekki hvaðan barnið fær þessa matvendni!
Nú sefur litli orkuboltinn á sitt græna og húsið mitt verður hreinna og hreinna með hverri mínútunni. Og ef húsmæðrafídonskrafturinn helst í mér þá gæti farið svo að ég eldi eitthvað hrikalega sniðugt í kvöld!

miðvikudagur, janúar 05, 2005
11 mánaða!!!
Kjartan er 11 mánaða í dag!!! Rétt upp hendi sem trúir því!!
Ég trúi því nefnilega varla, hvað þá að hann sé að verða 1 árs eftir mánuð! Litla barnið mitt! Finnst eins og hann hafi fæðst í gær! eða kannski fyrradag...
Við vorum í skoðun í gær og "litla" barnið er orðið 73 sm og 8,8 kíló. Bara rétt undir meðalkúrvunni eins og venjulega. Hann er sko ekkert að flýta sér að þyngjast enda má hann ekkert vera að því að borða og er svo á útopnuðu allan daginn. Á undan okkur í skoðuninni var voða lítill og sætur strákur. Þegar ég spurði mömmuna hvað hann væri gamall og fékk það svar að hann væri 3 mánaða þá lá við að ég spyrði hana hvort hún væri viss því mér fannst hann svo hrikalega lítill!!
Jamms, Kjartan er sem sagt ekkert lítill lengur! Hann verður fullorðinslegri með hverjum deginum. Og ég tala nú ekki um þegar hann er farinn að myndast við að labba, þá virkar hann enn eldri. Hann er nú ekki farinn að labba alveg sjálfur en er búinn að fatta það að hann getur gengið með vagninum sem við gáfum honum í jólagjöf. Og það er mikið sport. En önnur stóruppgötvun hjá þessum framtakssama unga dreng er að ýta á undan sér borðstofustólunum og labba þannig um stofuna. Svo þessa dagana eru ekki bara leikföng á víð og dreif um stofuna heldur húsgögnin líka!!!!
Jamms, tíminn líður ALLTOF hratt! Einu sinni var Kjartan svona!

Hversdagsleikinn!
Jæja, þá er maður svona að lenda eftir notalegheitin á Spáni og komast aftur inn í hversdagslífið. Í gær var nú algjör letidagur hjá okkur, við vorum bara að slæpast um, tókum ekki einu sinni upp úr töskum eða settum í þvottavél! Algjörir letingjar.
Svo við Kjartan bættum úr þessu í dag. Ég fór með hann á garderíið í morgun og hann var svo glaður að koma þangað aftur. Þeir voru nú ekki nema 2 strákarnir þar í pössun í morgun, með 2 fóstrur og 4 13 ára stelpur til að leika við. Hinn strákurinn sat víst grátandi í fanginu á fóstrunni allan tímann, enn Kjartan var víst á útopnuðu og skemmti sér konunglega! Á meðan var ég dugleg og fór í ræktina. Nú á sko að taka vel á og vera orðin sæt í alla sumarkjólana þegar fer að vora! Á eftir bíða okkar svo stórinnkaup því það er frekar fátæklegt í kotinu.

mánudagur, janúar 03, 2005
The Oskarssons are back!
Jamms, við erum komin heim eftir góðann túr til Andalúsíu. Það var voða gaman hjá okkur og notalegt, gaman að breyta um umhverfi og sjá eitthvað nýtt... og nóg sáum við því við tókum sirka 250 myndir!!! Væn útgáfa af ferðasögunni kemur síðar.. líklega í skömmtum og myndum verður líka dælt inn. Við skuldum líka jólamyndirnar því ekki tókst okkur að koma þeim á netið áður en við lögðum í'ann.
En þetta var voðalega notalegt og enn betra að koma heim. Kjartan er búinn að vera þvílíkt góður á ferðalaginu, þykir ekkert betra en að vera á flakki með mömmu og pabba. Og sefur aldrei betur en í einhverju farartæki hvort sem það er flugvél, bíll eða hestvagn!!!! Svo er ótrúlegt hvað hann hefur stækkað og þroskast. Hann er þvílíkt farinn að fatta að interakta við fólk. Spánverjarnir voru þvílíkt skotnir í honum og alltaf að kjá framan í hann. Og hann var farinn að fatta að með því að gera eitthvað trikk eins og að brosa framan í fólk eða veifa þeim þá fékk hann athygli! Og engin smá athygli sem hann fékk! Hola er orðið eitt uppáhaldsorðið! Foreldrarnir hafa líka lært alveg ótal mörg spænsk lýsingarorð um fegurð!
Meira um það síðar...

sunnudagur, janúar 02, 2005
Gledilegt nýtt ár!!!
Bestu kvedjur úr sólinni á Spáni! Ad vísu hefur verid kalt suma dagana en samt sól!
Erum búin ad skoda Sevilla, Ronda og erum núna í Granada á leidinni ad skoda Alhambra sjálft.
Kjartan unir sér vel, aldrei skemmtilegra en ad vera á ferdalagi. Hann er búinn ad eignast fjolmarga vini, spánverjar hreinlega elska svona litla saeta drengi! Hann er strax farinn ad skilja hola og brosir hringinn tegar einhver heilsar honum. Litla sjarmatrollid!
Heyrumst betur tegar heim er komid!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)