þriðjudagur, nóvember 30, 2004


Ég var að spá í að reyna að breyta þessari efnishrúgu í gardínur fyrir tölvuherbergið! Ætli mér takist það? Framhald í næsta þætti...  Posted by Hello

Mont mont!

Ég gleymdi aðeins að monta mig áðan. Fóstrurnar í morgun voru svo yfirsig hrifnar af Kjartani, hvað hann væri duglegur, og fannst alveg ótrúlegt hvað hann héldi áfram þótt hann dytti á hausinn. Þær sögðu að svo mörg börn hættu alveg við að gera hlutina í smá tíma ef þau dyttu og meiddu sig. En ekki Kjartan. Hann heldur bara áfram. Svona eftirá þá er ég ekki svo viss um að það sé kostur!! Amk ekki fyrir foreldrana. Og þær voru alveg á því að þessi gaur væri farinn að ganga 1 árs! Ég sem var að vona að hann tæki sér tíma í það, en þær vonir virðast verða að engu. Sjáum til...

Mikið að gera í morgun!

Kjartan fór aftur í garderie í morgun og þetta var í fyrsta sinn sem hann var þar einn. Heill hálftími til að byrja með. Honum var samt nokk sama, var kominn á fullt að leika sér meðan ég var að tala við konurnar og leit ekki upp þegar ég kvaddi hann. Held þetta hafi verið erfiðara fyrir mig, var mjög skrítið að standa úti á tröppunum BARNLAUS. Það hefur nú gerst áður en það var eitthvað skrítið í þetta skiptið. Erfiðara fyrir mömmuna að skilja barnið sitt svona eftir. En hann var í góðum höndum. Ég bara dundaði mér í nokkrum búðum í nágrenninu og kom svo að sækja hann. Þá var hann í fullu fjöri og mátti ekkert vera að því að fara. Eins og ég hélt þá var þetta ekkert mál, enginn grátur, nema aðeins af því hann flaug á hausinn. Safnaði nokkrum kúlum í því að príla um og reyna að elta hin börnin. Þegar ég kom var hann að leika við tvo aðra stráka, báðir svolítið eldri og farnir að labba. Þeir stóðu allir 3 við lítið borð og voru að leika með eitthvað hús. Svo fór einn strákurinn burtu með húsið og hinn á eftir svo Kjartan var einn eftir og ekkert hús! Og þá var sko grátið! Enda mamma komin! Þær sögðu fóstrurnar að hann væri greinilega að gráta bara fyrir mig.
En mikið voru menn þreyttir á eftir, öll orkan búin. Við fórum svo á húsmæðrahitting niðri á torgi. Mikið kvennaspjall. En þá var Kjartan alveg búinn á því, lognaðist út af í kerrunni svo ég hafði bara ró og frið til að kjafta og drekka kaffi. Við enduðum svo morguninn á því að fara á markaðinn og skoða okkur um með nokkrum kvennanna. Ég keypti aðventukrans og nú þarf ég bara að skreyta hann. Bara krans með 4 kertum á, þarf að bæta úr skrautleysinu. En það var margt skrýtið og skondið á markaðnum og gaman að rölta þar um í fínu veðri þótt það væri kalt. Bara jólalegra þegar maður er að skoða jólaskraut!!!

mánudagur, nóvember 29, 2004

Jól jól jól jól!

Jei, loksins má fara að jólast án þess að nokkur geti kvartað, fyrsti í aðventu var í gær svo nú er allt jólastúss leyfilegt! Ég er búin að iða í skinninu lengi og nú getur maður sko sett sig í jólagírinn, dregið fram jólaskrautið, sett jólalög á fóninn og bara jólast! Á sko eftir að leggjast í jóladæmið núna í vikunni, kannski maður fari jafnvel að baka og dúlla sér. Hlakkar bara til. Ætlaði að vísu að vera búin að finna aðventukrans eða föndurefni í einn slíkann áður en aðventan hæfist en force major réð því að ég lá í bólinu um helgina og komst ekki í slíkt! En nú er maður orðinn hressari og ætti að komast í jólastúss. Svo á eftir að redda jólagjöfum fyrir fáa útvalda, finna jólaföt á familíuna og ýmislegt fleira jóla jóla. Almennt jólastúss á næstunni... JEI! Getur ekki verið betra!

sunnudagur, nóvember 28, 2004

Jumm!

Við prófuðum enn einn af hverfis-veitingastöðunum okkar í kvöld og þvílíka uppgötvunin! Ótrúlega sætur og kósí staður og þvílíkt góður matur. Borðaði rækjur í forrétt og biche í aðalrétt, hvað sem það nú er, veit svo mikið að það er villibráð af einhverju tagi. Og svo fylgdi himneskt súkkulaðimúss í desert... og fyrir 3 rétti borguðum við 25 evrur á mann! Er þetta hægt????!!!!! Ótrúlega góður matur, kósí staður og ljúft andrúmsloft. Enda skemmti veitingahúsarýnirinn Kjartan sér konunglega. Hann var bara salírólegur, lék sér heillengi á gólfinu eða við það að standa upp við önnur borð. Heillaði suma gestina upp úr skónum þannig að það var mikið farið að klingja en öðrum var bara slétt sama. Svo voru þarna nokkrar sem voru tilbúnar að taka að sér ömmuhlutverkið. En allir fóru sáttir heim... og sumir meira saddir en aðrir!

Stórtækur ungur maður!

Það skemmtilegasta sem Kjartan veit þessa dagana er að leika með húsgögnin. Núna þegar hann getur staðið upp hvar sem er og gengið með þá er hann í því að standa upp við húsgögnin og hreyfa þau fram og til baka. Hann notar jafnvel sum þeirra eins og litla bláa borðið til að komast um. Hann ýtir því á undan sér og labbar þannig þangað sem hann vill fara. En hann hefur einnig komist að því að húsgögn eru mjög góð undir tönn, hann er orðinn litli naggrísinn okkar, því það eru komin tannaför á öll helstu húsgögnin, elskar að standa og naga sum þeirra, og eru þar tágastólarnir vinsælastir eins og sjá má á þessari mynd. Þannig að ef einhver á ráð um hvernig maður fær börn til að hætta að borða húsgögn má hinn sami deila því með okkur.

P.s. það eru líka komnar nokkrar myndir í viðbót í nóvemberalbúmið.

laugardagur, nóvember 27, 2004

LASIN!!

Úff! Náði mér í vænt kvef sem nær alveg upp í allar ennisholur og er frekar slöpp. Búin að hanga inni allan daginn í gær og í dag! Og leiðist það frekar mikið. Mann langar aldrei meira út úr húsi en þegar maður Á að vera inni. Við vorum líka búin að gera skemmtileg plön í gærkvöldi og í dag sem auðvitað fuku út í buskann, sniff sniff, en ætlum samt að halda okkur við matarboð í kvöld. Væri alveg til í skyndilækningu, þetta er svo leiðinlegt, ekkert að manni en samt líður manni eins og drullu. Ég þakka samt áströlunum fyrir þetta góða ráð með heitt vatn og 2 dropa af eucalyptusolíu, algjör snilld. Hressir mann við! Nema ég setti auðvitað mun meira en 2 dropa áðan út í heita vatnið svo húsið angar eins og hálsbrjóstsykursverksmiðja!

föstudagur, nóvember 26, 2004

Erfitt að vera lítill!

Æjá, ekki auðvelt þessa dagana þegar litlir menn eru á eilífu klifri. Kjartan var að fá enn einn skellinn og 6 kúluna á örfáum dögum. Hann er með marbletti út um allt! En það stoppar menn samt ekkert í klifrinu. Menn eru aumir svona rétt á eftir, það er grátið með tilþrifum og knúsast hjá mömmu, en svo er allt búið og bara farið af stað aftur. Fall er fararheill!

Svona leit garðurinn okkar út í morgun.. Það getur sem sagt komið frost í Belgíu! Og það er frekar kalt úti þótt hitastigið sé komið upp fyrir frostmarkið núna. Meira að segja Georgíumaðurinn, sem er að laga húsið að utan, er að frjósa úr kulda, og hann bjó í Síberíu!!! Greyið. Og vill samt ekki þiggja kaffibolla. Posted by Hello
Ég hélt að við myndum aldrei þurfa að nota framrúðuhitarann og sætishitarann og það allt fína dót í bílnum okkar. En það hefur sko sannarlega komið sér vel í morgun!

fimmtudagur, nóvember 25, 2004

Skemmtilegur morgunn!

Við Kjartan skemmtum okkur vel í morgun. Við fórum í heimsókn í garderie. Þetta er svona róló-fyrirkomulag, þangað er hægt að fara með börn 0-3 ára í pössun í stuttan tíma eða jafnvel allan daginn, ágætt þegar mömmur þurfa að fara eitthvað þar sem er ekki gott að hafa litla stubba með. Fyrst þurfum við samt að fara í gegnum smá aðlögun og var þessi heimsókn fyrsta skrefið. Þetta var allt voða lítið og kósi, fínar konur sem reka þetta og nóg af dóti. Og fullt af öðrum krökkum. Kjartani fannst svo gaman og var í raun alveg sama þótt ég væri þarna eða ekki. Hann leit ekki á mig allan tímann hann var svo upptekinn að leika við dótið og fylgjast með hinum krökkunum. Í eitthvað skiptið hafði hann verið að leika sér að dúkkukerru, sat með hana á hvolfi og nagaði dekkin. Svo kom lítil stelpa, setti dúkku í kerruna og fór að keyra um með hana. Og Kjartan elti, hann ætlaði sko að ná í þessi dekk sem voru svo mjúk undir tönn!
Í næstu viku byrjum við svo smá aðlögun, fyrst fer hann í nokkur skipti sirka hálftíma í einu og ef það gengur vel þá er það lengt í klukkutíma og svo 2 o.s.fr. En ég hef engar áhyggjur, honum finnst svo gaman að komast að hitta önnur börn og leika með nýtt dót að ég efast um að þetta verði eitthvað erfitt. Svo er þetta ágætis æfing fyrir hann áður en hann byrjar á creche, en við erum að reyna að koma honum að hálfan daginn í vetur.

Nýjar myndir

Er að setja inn nýjar myndir á myndasíðuna hans Kjartans. Svo langt síðan síðast þannig að það er stór "bunki".

miðvikudagur, nóvember 24, 2004

La Barchetta

Við fórum á local restóinn okkar í kvöld. Hittumst bara þar familían á þessum eðal-ítalska stað og átum yfir okkur. And I'm so sad I could spring! Ótrúlega góður og klassískur matur á engu verði og það í göngufjarlægð. Enda erum við orðin fastakúnnar og þjónarnir spyrja hvernig maður hafi það og hvað sé að frétta frá því síðast. Svo fær Hrafnkell auðvitað að æfa ítölskuna ;-)
Og þetta er einn af fáum stöðum þar sem gert er ráð fyrir börnum, amk hafa þeir barnastóla svo Kjartan fær alltaf að sitja til borðs og japla á brauði eða hverju sem okkur dettur í hug að leyfa honum að smakka. Í kvöld var hann samt ánægðastur á gólfinu, að hífa sig upp við kerruna sína eða stólana. Miklar lyftingar í gangi. Og inn á milli rústaði hann fíkusnum sem var við aftan borðið okkar. Og voða ánægður með þetta allt saman.
Svo þegar hann var settur í stólinn sinn til að gefa honum maukið sitt þá var hann með svo mikil læti að meira að segja kokkurinn þurfti að koma fram til að tékka hvað væri í gangi, því það var bara verið að rífa kjaft og berja með bollanum sínum í borðið!
Góður matur og barnvænir þjónar!!! Góðir nágrannar það!

Kleifarvatn

Ekki búast við miklu bloggi frá mér á næstunni! Hrafnkatli var send nýja bókin hans Arnaldar í afmælisgjöf og kom hún í hús á þriðjudaginn. Mér var gefið lestrarleyfi á bókina á undan afmælisbarninu enda hann djúpt sokkinn í sýn útlendings á belga. Ég varð auðvitað að kíkja í bókina aðeins í gær fyrir svefninn og gat varla hætt svo ég hélt áfram áðan á milli þess sem ég hljóp á eftir Kjartani tætibusku! Þótt LEGO kubbarnir séu skemmtilegir þá er samt miklu meira gaman að tætast í geisladiskum, DVD, snúrum, blómum og plötusafninu! Sem sagt, ekki flóafriður... eða segjum frekar lestrarfriður!

þriðjudagur, nóvember 23, 2004

ég er sem sagt frekar lítið naut!

You are 33% Taurus





Amman farin!

Sniff sniff. Strax farin að sakna hennar. Þetta er búið að vera svo notalegt. Alltaf einhver heima og svo er hún búin að vera að leika við Kjartan allan tímann held ég, skríður með honum um gólfin og þau hafa bara skemmt sér voða vel saman. Kjartan farinn að dýrka ömmu sína og er orðið alveg sama þótt við foreldrarnir séum ekkert nálægt, amma er svo skemmtileg. Leyfir honum svona stundum að gera það sem má ekki og svona, eins og að tosa í snúrur.
Svo fengum við skötuhjúin bæjarleyfi á föstudagskvöldið. Fórum út að borða á lítinn sætan stað þar sem allar innréttingar voru frá Belle Epoque, æðislegur staður, og sátum þar og jöpluðum á héra og fleiru góðu en skrítnu. Á eftir fórum við svo í partý sem einn vinnufélagi Hrafnkels hélt. Þau hjónin buðu bæði sínum vinnufélögum svo þarna var samansafn af allskyns fólki frá ýmsum löndum. Mikið stuð! Dansað og djammað fram á rauða nótt en það hef ég sko ekki gert LENGI! Skriðum heim rúmlega 3 sem er gott eftir langt djammhlé... enda var það eins gott, ég var vakin um 7! Get svarið það að ég var frekar ryðguð á laugardaginn!
Svo var helgin bara í rólegheitunum. Fórum til Leuven sem er lítill bær hér rétt hjá, voða sætur og gaman að rölta þar um. Tókum labbitúr á sunnudeginum og fórum í bæinn í gær. En við vorum bara mest í því að vera heima og leyfa Kjartani að brölta um. Nú er sko engin miskun, minn maður er farinn að standa upp við allt. Hann hífir sig upp við ofnana meira að segja. Sama hvað það er, hann reynir að standa upp. Svo krúsar hann meðfram öllum borðum og fer á milli húsgagna líka. Eini gallinn að stofan okkar er svo stór að það er oft of langt á milli. Svo er hann orðinn svo snöggur að skríða, ef hann sér áhugaverðar snúrur þá er hann fljótur þangað... og jafnvel farinn að plata mann, þykist vera að fara í eina átt en snýr þá skyndilega við og nælir sér í snúrur! Það er því fullt verk að fylgjast með honum þessa dagana!
Já, þetta er sko sannarlega búin að vera notaleg helgi. Verst hvað er langt þangað til amman kemur næst! En í millitíðinni koma jólin, nú getur maður lagst í jólaundirbúninginn....

fimmtudagur, nóvember 18, 2004

Amma er að koma!!

Og okkur hlakkar svo til. Henni var skutlað í flug í morgun til Amsterdam og verður komin á okkar slóðir seinnipartinn í dag. Svei mér þá, ég veit reyndar ekki hvern hlakkar meira til, hana eða okkur! Kjartan veit auðvitað ekkert hvað bíður hans... en það verður fjör hjá stubbi næstu daga og mikið dekur! Við ætlum svo sannarlega að dekra við ömmuna.... og hugsanlega plata hana í pössun eitthvað kvöldið.Winky

miðvikudagur, nóvember 17, 2004

Iðnaðarmannatuð!

Jamms, enn einn dagurinn í þetta vesen! Þessi sem kom í morgun til að laga sagði að þeir sem komu í gær hefðu gert eitthvað vitlaust, en mér finnst þetta nú lítið skárra eftir hann.. hnuss. Lakkið varð einhvern vegin upphleypt á köflum og flagnaði jafnvel af. En í morgun pússaði hann allt upp aftur og lakkaði aftur. Vonandi dugar þetta fyrir leigusalann því ég nenni ekki að fá þá einu sinni enn!
Við Kjartan flúðum auðvitað, að þessu sinni til Þórunnar sem býr hér rétt hjá. Vorum í góðu yfirlæti hjá henni og stelpunum hennar tveim, þeim Lísu og Arínu, þar til okkur var óhætt að koma heim aftur. Þórunn þurfti að vísu að skreppa í millitíðinni og sækja Lísu í skólann en við Kjartan pössuðum bara Arínu á meðan. Hún er ekki nema 6 vikna og svaf nú mest allan tímann. En hún þurfti nú smá að láta halda á sér og það var ekkert smá fyndið að halda á svona litlu skotti... og geta haldið á henni á öðrum handleggnum! Það rifjaðist einmitt upp fyrir mér að Ásdís vinkona kommentaði á þetta þegar hún fékk að halda á Kjartani fyrst. Fyndið. Langt síðan hann passaði á ANNAN handlegginn!
Svo loksins erum við komin heim í heiðardalinn og fáum vonandi að hafa heimilið iðnaðarmannalaust næstu dagana. Úff... og enn einn daginn er ég að lofta út.... En núna er líka allt orðið voða fínt. Svo koma skúrkurnar á morgun og þá verður allt ennþá fínna!! Smile

þriðjudagur, nóvember 16, 2004

Dagur tvö í fnyk!

Oh, iðnaðarmennirnir komu aftur í morgun að lakka síðustu umferðina. Og húsið stynkar! Við Kjartan flúðum á meðan, í þetta sinn þurftum við að bíða í 3-4 tíma!!! Fórum að hitta húsmæðurnar í hverfinu á Le Pain Quotidien og fórum á markaðinn. Á meðan við höfðum það notalegt að drekka kaffi og borða súkkulaðibrauð, þá svaf Hrafnkell á sitt græna í allri stybbunni. Greyið er lasinn heima í dag. Ég bjóst alveg eins við að finna hann uppdópaðann og frosinn þegar ég kæmi aftur en ekkert slíkt. Hann gerði herbergið mengunarhellt og tókst að sofa þetta af sér. En það versta er að líklega þurfa þeir að koma enn einu sinni! Lökkunin er eitthvað að klikka hjá þeim. Gæti lagst í gólfið og orgað!

mánudagur, nóvember 15, 2004

FROST


Jæja, iðnaðarmennirnir farnir, búnir að pússa og lakka og drepa okkur Kjartan úr eiturgufum. Við skruppum að vísu út en erum komin aftur. Ég er búin að opna alla glugga í húsinu og nokkrar hurðir. Auðvitað þurftu helv... mennirnir að velja kaldasta daginn svo það er jafn mikið frost inni og úti! Grrrr.... Hér má sjá prinsinn á heimilinu kappklæddan að leika sér INNI! Posted by Hello

Iðnaðarmenn

Úff, við Kjartan erum hér í gíslingu iðnaðarmanna, við þurfum að hanga heima og ekki að vera þvælast neitt of mikið fyrir þeim sem þýðir að núna höngum við í tölvunni, ég að pikka, hann að bisast í snúrunum. Það er verið að laga parketið á stiganum eftir vatnslekann sem varð hér í mars!!!! Tryggingarnar kláruðu ekki málið fyrr en í júní eða júlí, og leigusalarnir gátu fljótlega reddað málara svo það var búið að mála áður en við fórum í fríið í sumar, en parketgaurinn var fyrst núna að koma! Tekur allt saman tíma í þessu landi.
Og ekki eru þeir stundvísir blessaðir. Þessi sagðist koma kl. 9 en hún var farin að nálgast 10 þegar hann mætti. Ekki sá fyrsti! Ég þurfti nefnilega að taka á móti öllum þessum köllum hér í apríl og maí þegar þeir voru að gera tilboð í verkið. Svo komu tryggingarkallarnir. Svo kom expert og gaf álit. Svo komu tryggingarkallarnir aftur. Og enginn kom á réttum tíma! Í morgun voru komnir iðnaðarmenn í húsið við hliðina og á móti áður en þessi mætti! Og svo þarf ég að hanga yfir honum í dag þar til hann klárar... og hann veit ekkert hvenær sirka það verður. Ætlar að reyna að gera eins mikið og hann getur í dag! Sem er svo sem gott en samt leiðinlegt að vita ekki hvenær maður getur sloppið út í kuldann og fengið sér ferskt loft!
Plús það er svo mikill hávaði að Kjartan mun ekki mikið lúra þennan morguninn!

sunnudagur, nóvember 14, 2004

Hér var sko verið að flýta sér í gærkvöldi!

Einum ungum manni lá sko á! Hann stóð upp við sófaborðið og var mikið að krúsa þar fram og til baka. Svo stóð hann við einn endann og hélt sér í með einni hendi, sleppti svo og ætlaði sér áfram. En var fljótur að fljúga á hausinn. Frekar hugumstór ungur maður þótt lappirnar séu enn stundum eins og spaghettí þegar hann stendur upp. En æfingin skapar meistarann!

laugardagur, nóvember 13, 2004

Það eru að koma jól!!!

Jibbííí... Ég er farin að hlakka þvílíkt til jólanna, get eiginlega ekki beðið. Jólabarnið ég fór auðvitað að hlakka til einhvern tíman í september en hef verið að reyna að bæla það niður... en það er ekki hægt lengur! Fór í bæinn í gær og fann enn eina búðina fulla af jólaskrauti! Við Tóta fundum líka um daginn alveg geðveika jólabúð, þarf að fara þangað aftur, og svo er í flestum húsbúnaðarbúðum farið að selja jólaskraut. Og nú er litli heilinn minn kominn á fullt í að plana jólin. Öll tannhjólin farin að snúast í því að ákveða hvernig jólatréið verði skreytt í ár (hef smitast illilega af þeirri hefð úr Efstasundinu að hafa alltaf þema á jólatréinu um hver jól)... ég er að spá í rautt og gyllt í ár.. en svo er bara til alveg ógurlega mikið af flottu jólaskrauti, erfitt að velja á milli.
Svo er líka orðið svo kalt úti að maður getur ekki annað en hugsað um jólin. það er samt ekki komið frost, bara nokkrar gráður á hitamælinum en það er svo rakt hérna að ég er að frjósa. Sem betur fer á ég mannlegan hitapoka til að hjúfra mig að á kvöldin. Það er alveg ótrúlegt en það er svo rakt hérna að þegar fer að rökkva þá sér maður rakann í loftinu, er alltaf svona þunn þokudula yfir öllu. Á þessu heimili er því búið að draga fram flíspeysurnar og kveikt upp í arninum á kvöldin! Talandi um jól!!!!

föstudagur, nóvember 12, 2004

Föstudagur!

Jamm...þá eru allir fjölskyldumeðlimir orðnir lögskráðir í bloggið. Jakkalakkinn kom semsagt heim úr vinnunni og hitti fyrir lítinn dreng sem hafði afskaplega takmarkaðan áhuga á þeim fæðutegundum sem móðir hans var að reyna að fá hann til að innbyrða. Var barasta orðinn ansi snúðugur. Það gengur svona...

Matarboð

Hér var matarboð í gærkvöldi og mikið stuð. Við Kjartan vorum bara að slæpast mest allan daginn, búin að kaupa inn á miðvikudaginn því allt var lokað í gær. Fórum samt út í von um að bakaríin væru opin til að kaupa baguette... en ALLT lokað! Fundum samt opið kaffihús og ég gat sannfært þá um að selja mér eitt baguette... og eftir allt vesenið þá gleymdist að bera helv... baguettið á borð fyrir gestina! Confused
Svo var Kjartan nú ekki alveg upp á sitt besta rétt fyrir háttatímann þegar foreldrarnir voru á fullu og frekar stressaðir hvort þeir næðu að ljúka matsseldinni... en drengurinn var svo vænn að sofna rétt fyrir 8 og gestirnir að mæta seint svo þetta hafðist allt saman. Það voru einhver skakkaföll í eldhúsinu eins og rucolað sem átti að nota í einn réttinn var bara orðið ónýtt eftir 1 dag í ísskápnum! Aðstoðarkokkurinn var þá sem betur fer með móður sína í símanum svo hún gat bjargað málunum... og ég held bara að rétturinn hafi verið betri fyrir vikið. Lol Hrafnkell græjaði svo þennan dýrindis túnfisk... verður betri í hvert sinn!
Og félagsskapurinn var ekki síðri, Guðjón og Katrín og Vigdís og Jakob Falur. Hér var mikið kjaftað og mikið hlegið. Brúðkaup bar auðvitað á góma. Þá kom nú í ljós að ekki höfðu allir viðstaddir frétt af því. Og ég sem hélt að ég væri búin að segja öllum frá því. Og fólk komst alveg í gírinn að ræða brúðkaup. Bæði hjónin sem voru í mat búin að gifta sig og fóru á flug að segja frá sínu brúðkaupi. Þetta vakti greinilega upp góðar og skemmtilegar minningar hjá þeim að rifja upp brúðkaupið sitt, svo ég er farin að hlakka þvílíkt til okkar dags!
Svo fóru allir pakksaddir í rúmið...

fimmtudagur, nóvember 11, 2004

Þetta er fyrsta blogg frá Brussel,

eiginlega kominn tími til! Nýta sér helsta fréttamiðilinn þar sem maður er kannski ekkert of duglegur að senda frá sér fréttir. Embarrassed Hér verður sem sagt aðallega sagt frá fréttum af litla manninum sem er orðinn heillra 9 mánaða gamall... Ævisaga hans verður sem sagt betur skráð heldur en fyrstu 9 mánuðina!!! Við áttum auðvitað að vera löngu LÖNGU byrjuð, en svona getur maður verið latur.. eða eitthvað.
En við erum a.m.k. byrjuð núna! Lol
9 mánaða... ótrúlegt... en með öllu sem því fylgir. Hér er sko verið að tæta og trylla á hverjum degi. Kjartani tætibusku fellur ekki verk úr hendi, sífellt á útkikki eftir einhverju að gera, óstöðvandi (svona eins og Energizer bunny!!!) og alltaf brosandi. Nema þegar eitthvað skemmtilegt er tekið af honum og þetta skemmtilega fellst ALLTAF í því sem er hættulegt fyrir unga menn. Samt gaman að þessu. Thumbs Up