sunnudagur, desember 26, 2004

Íslendingajólaboð!

Jóladagur var voða notalegur hjá litlu fjölskyldunni í Brussel. Við vorum á náttfötunum fram eftir degi og tókum okkur öll lúr þegar Kjartan lagði sig. Kjartan var orðinn svo ringlaður á aðfangadagskvöld að við geymdum restina af pökkunum hans svo við gátum dundað okkur við það í morgunsárið að taka upp nokkra pakka.
Síðdegis var svo tími til kominn að klæða sig aftur í jólafötin og halda í jólaboð til Guðjóns og Katrínar. Þar voru samankomnir nokkrir Íslendingar með þjóðlegan og óþjóðlegan mat. Nóg var af hangikjöti og uppstúf, reyktum og gröfnum laxi.. og svo kalkún og með því fyrir þá sem ekki vildu vera þjóðlegir. Þá var á borðum malt og appelsín (í boði Samskipa) sem rann ljúflega niður. Þegar allt var komið á diskinn þótti mönnum viðeigandi að syngja þjóðsönginn!
Mikið var spjallað og skemmt sér og börnin fóru í hlutverk sprengjusveitarinnar að vanda (hlupu um allt öskrandi!!!) Kjartan tók að sér tætibuskuhlutverkið og minnsti Íslendingurinn á svæðinu, hún Arína, var prinsessan enda rétt að verða 3ja mánaða. Þegar leið á kvöldið var dregið fram Popppunktsspilið og setið við að spila langt fram á nótt! Margir fóru á kostum í grísi, leik á misþekktum poppstjörnum eða þegar þeir spreittu sig á tilteknu popplagi! En leikar fóru eins og við var að búast, Hrafnkell og Angi stungu okkur hin af sem sátum að mestu föst á sömu reitunum og háðu að lokum harða baráttu fyrir sigri, sem féll að lokum í hlut Anga. Kjartani tókst að sofa af sér allt partýið, var orðinn svo úrvinda að hann lak útaf um hálf níu, en litla prinsessan Arína ætlaði sko ekki að missa af neinu og hélt sér vakandi út allt spilið! Alveg stórskemmtilegt og þjóðlegt jóladagskvöld.

föstudagur, desember 24, 2004

Styttist styttist!

Hér er allt orðið svo jólalegt, tréið orðið skreytt... nema auðvitað neðstu greinarnar. Voða jólalegt að ofanverðu og svo autt að neðan! Verð eiginlega að senda mynd af tréinu! En við erum voða ánægð með það.
Okkur tókst að ljúka nærri öllu í gær svo aðfangadagsmorgunn hefur verið frekar notalegur. Kertasníkir birtist öllum að óvörum í nótt og skildi eftir litla pakka fyrir heimilismeðlimi. Kjartani fannst þetta voðalega skrítið, en er ósköp ánægður með jólaskóna sína. Það eru bjöllur á þeim svo það heyrist í honum hvert sem hann fer!

Kjartan fékk pensilín í gær, lækninum var hætt að lítast á þennan hita, og strax eftir fyrsta skammtinn var barnið orðið miklu hressara. Hann var á útopnuðu í gær. Ætli það sé svona mikil orka í pensilíni??? Og hann er enn hressari í dag. Það er eins og þetta hafi losað um eitthvað, hann er orðinn hitalaus, fékk þvílíkt nefrennsli fyrst en það hefur minnkað og hóstinn líka. Miðað við magnið af hor sem hefur lekið úr honum dettur mér jafnvel í hug að ennisholur og kinnholur hafi verið orðnar stíflaðar og einhver sýking komin þar. Bara ágiskun. En við erum aðallega fegin að honum líður miklu betur. Við vorum bara ekki viðbúin litla orkubúntinu sem við fengum, bæði hálfsofin eftir vikuna, búið að vera mikið að gera og bæði að kvefast. Ég hef sjaldan verið jafn fegin að koma barninu í rúmið og í gærkvöldi!!!

Í morgun er hann svo búinn að vera á fullu. Finnst jólatréið voða flott og er alltaf að klappa því, en jólapakkarnir eru samt mest spennandi. Var fljótur að góma einn í morgunn, pakka frá ömmu, enda er svo fallegur pappír utan um hann, og er búinn að vera að hnoðast með hann og slaufuna af pakkanum í allan dag! Svo er hann líka að pota í hina pakkana, þetta er allt mjög skrýtið og spennandi.
En sama hvað við höfum reynt, það hefur ekki tekist að taka mynd af Kjartani með jólasveinahúfuna fyrir framan jólatréið! Ekki nokkur von að hann sitji kyrr... og svo finnst honum þessi húfa algjör móðgun!
Það verður svo gaman að sjá hann í kvöld þegar hann fer að opna pakkana.

fimmtudagur, desember 23, 2004

Jólin alveg að koma!!!

Og hér er allt að verða jólalegra!! Við erum byrjuð að skreyta tréið nema þessar 2 seríur sem Hrafnkell keypti eru eins og krækiber í H á því... vantar sirka 10 í viðbót! En hann þessi elska ætlar að kaupa eina til viðbótar í dag, þá verður það nú sómasamlegt. Svo voru þeir feðgar byrjaðir að skreyta tréið í gær, verður orðið enn flottara í kvöld.
Í gær fékk ég svo bæjarleyfi, Hrafnkell kom snemma heim og ég fór og power-shoppaði. Lauk við að kaupa gjafir fyrir feðgana og fann mér kjól á 1 og hálfum tíma! Geri aðrir betur! Núna eru skúrkurnar að gera jólahreingerninguna og Hrafnkell er í gjafaleiðangri. Svo þegar hann kemur heim á að ráðast á to do listann og reyna að koma eins miklu í verk og hægt er. Frekar að taka Þorlák með trompi og geta haft það notalegt á morgun. Fyrsta verkefnið verður að sofa út!!!!

Kjartan er lítið hressari, hitinn hækkar og lækkar til skiptis og hann hóstar mikið. Við erum búin að vera í stöðugu símasambandi við lækninn og nú á að setja Kjartan á sýklalyf. Vonum að þau nái þessu úr honum. En Kjartan er samt ótrúlega brattur, leikur sér og tætir og tryllir að sínum sið. Virðist ekkert vera veikur, það er eins og að hann hafi vanist því að vera með hita.

Jólin ætlum við svo að hafa í ró og næði. Búið er að plana matseðilinn fyrir annaðkvöld og panta steikina hjá slátraranum. Fyrst var vínið valið, síðan valin steik í samræmi við vínið. Verður að hafa forgangsatriðin á hreinu. Við erum líka að vonast til að finna humar og hafa humar í forrét a la Efstasund. Auðvitað heimagerðan ís í desert. Og svo á bara að hafa það náðugt, sötra púrtara, borða eðal belgískt konfekt og opna pakkana.
Á jóladag er okkur boðið til Guðjóns og Katrínar. Þar verða líka Þórunn og Angi og Vigdís og Jakob Falur og allt barnastóðið. Þar á að gæða sér á hangikjöti og uppstúf, reyktum og gröfnum laxi, kalkúnaafgöngum og fleira góðgæti. Og öllu rent niður með jólaöli og appelsíni sem pabba tókst að redda okkur!!! Íslensk jól í útlöndum.
Svo er bara að pakka niður og leggja af stað í Spánarfrí...

miðvikudagur, desember 22, 2004

Jólin

Mér finnst þessi færsla algjör snilld!!! Ætla að gera þetta að mínu mottói um jólin!

Vísindamenn

Við fengum tíma hjá doksa í gærkvöldi og fórum með Kjartan. Mér leist ekkert á þetta, 3ji dagur í hita og ekkert virtist vera að breytast. Vorum mætt 8 og auðvitað ekki farin út fyrr en 9, Dr. Gobbers þykir svo gaman að tala! En við fengum hins vegar að vita allt um veirusýkingar og bakteríusýkingar í börnum. Hann skoðaði Kjartan hátt og lágt og sá ekkert alvarlegt að honum. Kjartan var þreyttur og pirraður, lá öskrandi á skoðunarborðinu. Fannst Gobbi ekkert skemmtilegur í þetta sinn. En hann sá ekkert í hálsinum eða eyrunum. Svo við vorum send heim í vísindaleiðangur. Byrjuðum á því að gefa Kjarani stíl, hálftímaseinna fékk hann íbúfen í fljótandi formi og svo öðrum hálftíma til áttum við að mæla greyið og hringja í Gobba. Þá hafði hitinn farið úr 38,7 í 38. Þá vildi Gobbi að við mældum hann aftur hálf eitt og létum hann vita. Hálf eitt var Kjartan orðinn hitalaus. Þá náðum við að vísu ekki í Gobba en skildum eftir skilaboð. Fyrst hann hringdi ekki aftur og skikkaði okkur að fara upp á St-Luc þá held ég að þetta hljóti að vera í lagi.
Kjartan er búinn að vera hitalaus í morgun og frekar brattur. Sefur núna og ég vona bara að hann sofi þetta af sér. Hugboð mitt er nú að þetta sé bara slæmt kvef og flensa. En menn eru svakalega litlir í sér. Svo honum verður bara haldið inni næstu dagana og verður vonandi orðin hress á aðfangadag.

þriðjudagur, desember 21, 2004

Kjartan aftur lasinn!

Við Kjartan erum bara búin að vera heima og jólast. Hann er búinn að vera með hita frá því á sunnudaginn. Að vísu hefur hitinn lækkað inn á milli en svo hoppar hitinn upp aftur. Hann var alveg hitalaus í morgun og fram eftir degi en núna seinnipartinn er hann aftur kominn með hita. Ég ætla með hann til doksa á eftir, þarf bara að ná í kallinn. Svo er hann svo lítill greyið litla, sérstaklega í dag, vill hvergi vera nema í fanginu á mömmu, meira að segja þegar hann sefur. Svo það hefur lítið verið jólast í dag, meira í gær.
Í gær tókst mér að baka eina sort af smákökum í viðbót, hrikalega góðar súkkulaðikökur úr nýjasta Gestgjafanum. Finnið bara uppskriftina með mesta súkkulaðimagninu í... mjög góð!
Hrafnkatli tókst í gær að finna fínar jólaseríur og það var plan dagsins að máta þær á tréið, aðallega að sjá hvort þær dugi ekki á þetta stóra tré... og byrja svo að skreyta það. En Kjartan hefur verið í litlu stuði fyrir svoleiðis. Greyið litla. Eins og hann var hress í morgun, söng og trallaði.
Annars voru ævintýri hér í nótt. Kl. 5 var allt húsið vakið því þjófavarnarkerfið fór í gang. Vá hvað mér brá!!! Hrafnkell stökk af stað og náði fyrst í Kjartan og lét mig taka hann. Tók svo hafnarboltakylfuna sem er alltaf inni hjá okkur og fór á innbrotsþjófaveiðar! Eftir eftirgrenslan kom í ljós að enginn var í húsinu og hvergi hafði verið reynt að komast inn. Svo kerfið hefur eitthvað verið að bila. En Kjartani fannst þetta mjög spennandi eftir að sjokkið við að vakna við hávaðann í kerfinu var liðið hjá. Honum fannst bara mjög gaman að vera á þessu næturgöltri um húsið. Jamms, skondið hvað þessir foreldrar taka upp á!!!

mánudagur, desember 20, 2004

Nóg að gera þessa helgina!

Við höfum haft nóg að gera og engan tíma fyrir blogg. Á föstudagskvöldið fengum við Óla og Laurence í mat. Sem betur fer komu þau ekki fyrr en kl. 8 því við vorum sko ekkert tilbúin fyrr... og voru líka svo almennileg að koma aðeins of seint! Ég beið heima allan föstudagseftirmiðdaginn eftir pakkasendingu frá Íslandi. Kallinn sagðist myndu koma eftir hádegið. Og við Kjartan biðum frá 12.30.... og hann kom kl. 6!!! Þá hafði hann komið um morguninn en enginn verið heima!!! Belgar eru klikk!!! Svo ég komst ekkert út að versla í matinn. Hrafnkell kom hinsvegar snemma heim og reddaði því. Svo þurfti að koma litlum manni í bólið, þannig að korter í 8 vorum við ekki byrjuð á eldamennskunni!!! En það var fondue í matinn svo það var ekki vandamál. Bara skera niður grænmeti og kjöt og búa til sósur! Voilá! Ég elska þennan fonduepott!!! Og matarboðið var brill.. góður félagsskapur, góður matur og gott rauðvín! Enda fóru gestirnir ekki fyrr en að ganga eitt!!!

Á laugardeginum vorum við svo að jólast. Fórum fyrst og fengum okkur morgunmat á Le Pain Quotidienne og fórum svo á markaðinn þar sem við fjárfestum í jólatréi. Við vorum lengi að velja og fundum loksins það flottasta! Tókum það svo undir hendina og löbbuðum heim. Þetta var frekar fyndin sjón og við höfum eflaust glatt líf margra þennan morguninn. Ég hélt undir toppinn og keyrði kerruna hans Kjartans og Hrafnkell hélt um hinn endann! Algjört puð en það hafðist. Verst að Hrafnkell neitaði því að ég stoppaði einhvern vegfaranda og léti taka mynd af okkur!! Þið verðið bara að ímynda ykkur þessa sjón!!! Þegar heim var komið komumst við að því að tréið var miklu stærra en við héldum, það nær upp í loft! Ég efast um að það litla jólaskraut sem við eigum dugi á þetta risatré.
Eftir hádegið fórum við svo í jólaseríuleiðangur. Ég mundi eftir því að það hefði verið hellingur til í Brico nema þar var allt búið!!! Eftir langa leit fundum við ágætar seríur í Carrefour nema þegar heim var komið kom í ljós að þær blikkuðu! Ekki ásættanlegt!! Svo þeim var pakkað aftur í kassana og Hrafnkell sendur út að urra á starfsfólk Carrefour. Hann fékk þær endurgreiddar en við höfum ekki enn fengið jólaseríur! Belgar virðast setja jólatréin sín upp frekar snemma og eins og annað í belgískum verslunarrekstri þá er allt jólaskraut búið á þessum tíma! Maður verður greinilega að kaupa það í október! Vona bara að við finnum jólaseríur í Brussel svo við getum skreytt tréið stóra!
Á laugardagskvöldið var okkur boðið í mat til Gunnu og Bjössa. Þar var mexíkanskt þema, voða góður matur og strawberry margaritas í fordrykk. Við tókum bara Kjaran með og ferðarúmið og það var ekkert mál. Hann var að vísu að kvarta eitthvað meðan við borðuðum og allt reynt til að gleðja hann. Gunna var búin að lána honum megnið af eldhúsáhöldunum sínum. En hann varð ekki ánægður fyrr en hann var með í partýinu. Var hinn ánægðasti í fanginu á Gunnu að háma í sig gúrkur og natchos! Eftir matinn var hann svo á útopnu og ekkert tilbúinn í bólið. En batteríin kláruðust fyrir rest svo fullorðna fólkið gat snúið sér að spileríi! Voða skemmtilegt kvöld!

Á sunnudaginn vöknuðum við svo snemma og skelltum okkur í jólastemmingu í Þýskalandi. Rétt hinum megin við landamærin við Belgíu er lítill sætur piparkökuhúsabær sem heitir Monschau og er frægur fyrir jólamarkaðinn sinn. Það var voða gaman að labba þarna um með öllu hinu fólkinum, þarna var statt svona helmingurinn af Evrópu!!! Það var ótrúlegt. Bærinn sjálfur var lokaður þegar við komum því þar voru öll bílastæði full, svo það var bílum lagt meðfram þjóðveginum marga kílómetra til hvorrar áttar! Við fengum frísklegann göngutúr frá bílnum inn í bæinn... eflaust 10 mínútur eða meira! Svo fyrsta stopp var kaffihús/veitingahús þar sem við enduðum í sunnudagssteik.... og Kjartan bræddi auðvitað þýsku hjörtun!!!
Það var voða notaleg jólastemming í bænum, snjór yfir öllu... já snjór!!! maður þekkti fyrst ekki þetta hvíta sem var á jörðinni!!! Lúðrasveit bæjarins að spila jólalög og gluhwein og allskyns jólamatur til sölu út um allt! Okkur tókst að bæta smá jólaskrauti í safnið... og frjósa inn að beini! Sem var kannski ekki eins sniðugt því þegar við komum heim var Kjartan kominn með hita, bara 38 stig í þetta sinn, en hann var samt frekar lítill. Hann vaknaði svo í nótt og leið ekkert vel. Þá hafði hitinn aðeins hækkað svo ég gaf honum stíl og vatn að drekka. Hann vaknaði svo hitalaus í morgun og er hinn sprækasti! Ég vona að það haldist. Við ætlum bara að vera innipúkar í dag, sem er alveg eins gott því það er kalt úti. Svo öllum jólaskrautsleiðöngrum hefur verið frestað. Kannski við reynum bara við jólabaksturinn í staðin!

föstudagur, desember 17, 2004

Kjartan og jólapakkar!

Ég var að hjálpa Kjartani í dag að pakka inn jólapökkum frá honum. Einn til pabba síns og einn til lítillar vinkonu á Íslandi. Og honum finnst þetta svo fyndið að hann er í hláturskasti. Honum finnst pappírinn mest spennandi, ótrúlega gaman að leika með hann svo pappírinn utan um þessa pakka er frekar krumpaður. Gerir þá bara persónulegri!!! En svo koma pakkaböndin og það finnst honum svo fyndið, hann hlær og hlær. Mest gaman þegar ég krulla böndin, þá kemur frekar skrýtið hljóð og það er endalaust hlegið. Sjaldan vitað að jólapakkar væru fyndnir!!! Sérstaklega ekki þegar verið er að pakka þeim inn!!!!!

p.s. hann vaknaði ótrúlega hress og kátur, held þetta hafi bara verið þreyta í morgun. En ég ætla samt að láta doksa kíkja í eyrun. Bara til öryggis!

Vá hvað við erum löt að blogga!

Jamms, það er sko búið að vera nóg að gera. Þegar Kjartan mátti komast út þá þurfti að redda ýmsu. Miðvikudagurinn fór bara í að klára að redda jólagjöfum og koma þeim á einn ágætan nýlendubúa sem ætlar að ferja þær heim til Íslands fyrir okkur. Og svo þurfti að kaupa í matinn... tvær langar bæjarferðir þann daginn!!! Nú á ég bara eftir að brjóta heilann um hvað Kertasníkir eigi að færa strákunum mínum í skóinn á aðfangad agsmorgunn!!!! Santa

Í gær var svo voða gaman hjá okkur. Það var hittingur í mömmuklúbbnum um morguninn. Þetta er svo notalegt að hittast svona og kjafta. Núna þykir krökkunum þetta líka svo gaman að hittast. Í byrjun var þetta aðallega gert fyrir mömmurnar en núna er þetta alveg jafn mikið fyrir þau. Kjartan og Jón William voru svo glaðir að sjá hvorn annan, það er eins og þeir skynji að þeir séu á svipuðum aldri, eru alltaf eitthvað að hnoðast, kyssa hvorn annan og þurfa oftast að vera á sama staðnum eða með sama dótið. Hanna tekur að vísu líka þátt í þessu með dótið, þau vilja öll hafa sama dótið, helst það sem gerir mestan hávaða!!! Hanna og Benedikt leika sér meira saman enda eru þau aðeins eldri en hinir tveir. Og við ætlum sko sannarlega að halda áfram að hittast og leyfa þeim að leika sér saman.
Seinnipartinn komu svo skúrkurnar og tóku allt húsið í gegn, allt orðið ilmandi hreint... bað þau samt um að koma á Þollák og gera jólahreingerninguna. Um að gera að njóta þess.

Svo hafa öll kvöld farið í að bögglast við að koma jólakortunum út úr tölvunni!!! Keyptum forlátan prentara á miðvikudaginn, eitthvað algjört undratæki, en það hefur verið mikill hausverkur að fá jólakortin út!!! Sama sagan, þetta %#"#$$/&%#%# Word sem alltaf þarf að hugsa fyrir mann. En með smá föndri hafðist þetta að lokum. Ekki alveg eins og þau áttu að vera en gott fyrir ekki meiri pening... amk þolir geðheilsan mín ekki meira!!!! En jólakortin eru allaveganna komin í póst og komast vonandi til ykkar fyrir jól! Annars kæmi mér ekkert á óvart að ef ég hef óvart gleymt að líma "A prioritaire" miða á eitthvað kortið að það kæmist ekki til skila fyrr en eftir áramót!!!

Meðan ég stússaðist í pósthúsinu og fleira í morgun setti ég Kjartan á garderíið, hann hafði ekki farið þangað í rúma viku. Og hann var svo glaður að koma þangað, þegar ég fór var hann kominn á fullt skrið í keppni við lítinn Diego! En hann var víst eitthvað voða lítill í sér í dag, ekki alveg eins og hann á sér að vera, grét og nuddaði mikið eyrun. Nú vona ég að hann sé ekki búinn að fá í eyrun upp úr þessu kvefi. En fóstran hélt að þetta væru frekar tennurnar! En hann var frekar aumur þegar ég kom, steinsofnaði svo á leiðinni heim. Svaf alveg þegar ég bar hann inn í rúm og sefur enn... Vona bara að hann sé ekkert að veikjast aftur. Sjáum til hvernig hann verður eftir góðan lúr.

þriðjudagur, desember 14, 2004

Stutt veikindi það!

Sem betur fer fyrir foreldrana!! Minn maður var svo lítill í sér í gærmorgun og um hádegið þegar hitinn hækkaði aftur, fer alveg með litla móðurhjartað að sjá barnið sitt svona, sérstaklega þennan fjörkálf!!!
En hann svaf þetta allt úr sér. Svaf frá hálf eitt til hálf fimm.... ég var bara í fríi í gær!!! Og þegar hann vaknaði var hann svo sprækur, borðaði eins og hestur og var í fullu fjöri, tætti og tryllti að vanda. Hann var svo sprækur eftir allan þennan svefn að hann var ekkert á því að fara að sofa á venjulegum tíma í gærkvöldi, sofnaði að verða 10... enda var sofið út í dag. Allir vöknuðu ekki fyrr en 9!!!
Núna er hann hitalaus og alveg eins og hann á sér að vera. Búinn að dreifa seriosi og múslí um allt eldhúsgólfið í morgun og taka til í hillunum. Núna rétt áðan tók hann sig til og reyndi að standa sjálfur. Stóð upp við einn stólinn hérna í tölvuherberginu og sleppti svo báðum höndum. En jafnvægið er ekki alveg komið en minn maður náði að grípa aftur í stólinn. Ákvað samt að skæla svolítið.
Ég ákvað samt að við mæðginin verðum heima í dag, vera ekkert á þvælingi svo stubbaling slái ekki niður... því miður fyrir mig en maður leggur ýmislegt á sig! Erum bara að jólast í staðin. Sat í gær við að pakka inn jólagjöfum, föndra merkimiða og spila jólalög. Kannski við tökum til við meiri jólabakstur í dag....

mánudagur, desember 13, 2004

ferðin til Lyon

Við ákváðum að skella okkur til Lyon núna yfir helgina að heimsækja Jónu Dóru og Svanhildi systur hans Hrafnkels. Við fórum keyrandi í þetta sinn, svolítið langt ferðalag en alveg þess virði. Við Kjartan fórum og sóttum Hrafnkel í vinnuna á fimmtudaginn og lögðum í'ann. Lentum í smá traffík á leiðinni út úr Brussel en svo var bara beinn og breiður vegur eftir það. Tók okkur sirka 2 tíma í þoku og myrkri að komast til Lúxembúrgar en þar ákvað Kjartan að væri best að stoppa og fá að borða! Fyrstu kynni mín af því landi var því frekar sveitt þjóðvegasjoppa en þeir máttu eiga það þeir voru með góðan barnastól! Hehe, maður er orðinn foreldri þegar maður metur veitingastaði út frá aðstöðunni fyrir börn!!!!! Þarna var haft stutt stopp og svo bara brummað með sofandi stubb í meiri þoku og myrkri. Við gáfumst upp í Dijon og hófum þar mikla leit að þjóðvegahóteli. Fundum reyndar ekkert svo við enduðum á Ibis, fengum einn klefa sem var innréttaður kringum 1980 og frusum þar um nóttina. Ekkert verið að splæsa í kyndingu þar! En þegar við komum á hótelið var Kjartan orðinn þvílíkt ferskur, loksins sloppinn úr prísundinni í bílnum og var á útopnuðu. Það var frekar sætt að sjá hann skríða inn hótelganginn og sjá um það sjálfur að komast inn í herbergið. En foreldrarnir voru útkeyrðir og ekki alveg til í sama djammið og hann! Var háð barátta um svefn eða djamm alveg til kl. 1 þegar litlir stubbar ákváðu að berjast ekki lengur!
En Kjartan sá til þess að það yrði ekki mikið sofið. Hálf átta var hann búinn að vekja foreldra sína! Svo þá var bara gripið til þess ráðs að finna kaffihús, gefa Kjartani pelann sinn þar og redda illa sofnum foreldrum gott kaffi! Komum svo við í bakaríi og keyptum pain au chocolat. Afgreiðslustúlkan þar var svo skotin í Kjartani að hún gaf honum croissant sem hann sat og maulaði á leiðinni til Lyon. Og eins og sönnum Frakka tókst honum að dreifa croissant mylsnu út um sig allan, bílstólinn og bílinn!!!!
Við komum svo um 11 til Lyon þar sem tekið var á móti okkur opnum örmum (eftir að hafa villst smávegis). Held samt að frænkurnar hafi verið mest spenntar að fá Kjartan í heimsókn. En helgin var byrjuð með stæl. Við fórum út að borða í hádeginu í pínulítinn veitingastað sem er í næstu götu og fengum þar alveg dýrðlega steik og franskar sem auðvitað var rennt niður með ljúfu rauðvíni! Veitingahúsarýnirinn stóð sig með þvílíkri prýði og var manna hressastur svo þessi veitingastaður fékk greinilega fullt hús stiga hjá honum. Eftirmiðdeginum tókum við svo rólega, allir tóku siestu nema Kjartan sem ákvað að láta í sér heyra. Greyið litla fékk smá pílu í magann og stóð á orginu í klukkutíma. Sama hvað við reyndum þá gekk ekkert að róa hann niður. Við vorum alveg komin úr æfingu, ekki lent í þessu síðan hann var pínulítill. En svo losnaði um loft og þá urðu litlir menn alveg eins og þeir áttu sér að vera. Og það var nú gaman að skríða um allt og kanna nýjar slóðir. Ýmislegt spennandi dót sem Jóna Dóra frænka á og gaman að hafa aðdáðendur! Þegar litlir menn voru sofnaðir hafði fullorðna fólkið það notalegt yfir rauðvíni og ostum og spjalli fram á nótt!
Kjartan var svo auðvitað vaknaður snemma og farinn að skoða sig um. Eftir morgunkaffið fórum við í smá bæjarleiðangur með Jónu Dóru. Kjartan græddi á því þar sem mamma hans komst í Disney búðina og rakst á Nemo tuskudýr! Auðvitað var ekki hægt að yfirgefa svæðið án þess að fjárfesta í einu slíku! Síðan fórum við að versla í matinn í Les Halles sem er svona yfirbyggður markaður og þar fæst allskyns gúmmelaði og gourmet dót! Matarhimnaríki Hrafnkels! Fengum okkur smá lunch þar en þó ekki ostrur eða snigla eins og sumir voru að gæða sér á. Kjartan fór svo heim og fékk sér lúr en foreldrarnir notuðu tækifærið og fóru í smá göngutúr. Byrjuðum á risastórri austurlenskri matardótabúð þar sem fékkst ýmislegt í thailenska eldhúsið og fleira, en röltum okkur svo yfir ánna og skoðuðum jólaljósin í miðbænum. Alveg ótrúlega flott... en því miður varð myndavélin eftir á eldhúsborðinu. Þegar við komum aftur var Kjartan vaknaður og ég held að frænkurnar hafi verið pínu svekktar að hann hafi ekki vaknað fyrr!!!! Við höfðum það svo notalegt um kvöldið, Jóna Dóra eldaði fisk fyrir okkur og svo var gætt sér á ostum yfir The Mask of Zorro. Kjartan var þó ekkert á því að fara að sofa og vildi vera með í fjörinu. Við sváfum í fremri stofunni en á milli hennar og stofunnar eru tvær glerhurðir. Rúmið hans Kjartans var undir annarri hurðinni svo hann stór bara upp og horfði á sjónvarpið. Reglulega mátti glitta í lítinn dreng, skælbrosandi, sem stóð upp í rúminu sínu og fylgdist spenntur með. Litlir menn fóru seint að sofa það kvöldið.
Morguninn eftir var því sofið út... eftir góðan kaffibolla og pain au chocolat var svo pakkað niður, frænkurnar kvaddar og lagt af stað til baka. Við ætluðum að dóla okkur og skoða aðeins sveitina í Bourgogne.. en vorum aðeins of fljót á okkur út af hraðbrautinni. Fórum því smá hliðarspor til Bourg en Bresse, í vestur, í staðin fyrir að fara í norður. Og það á sunnudegi þegar engar bensínstöðvar eða sjoppur eru opnar. Við mjökuðum okkur því bara til baka sömu leið og fórum svo út af hraðbrautinni í Beaune. Þar röltum við okkur aðeins um og fengum okkur að borða. Kerðum svo eftir sveitavegunum í gegnum aðal vínhéraðið í Bourgogne... í þoku auðvitað! Við Dijon var svo aftur gefið í út á hraðbrautinni og keyrt sem leið lá heimleiðis með nokkrum þjóðvegasjoppustoppum á leiðinni! Við vorum komin heim um hálf 11 um kvöldið og allir voru fegnir að komast í bólið eftir langan dag.

Kjartan veikur

Við erum komin aftur úr langferð til Lyon. Ferðalagið gekk bara vel og við höfðum 2 náðuga daga með systrum hans Hrafnkels í Lyon. Ég skelli kannski ferðasögunni inn í dag og myndum með, sé til hvernig spilast úr deginum. En þegar við komum heim í gærkvöldi var Kjartan kominn með hita, 38,5 gráður og var frekar aumur. Hann svaf samt vel í nótt og var frekar hress í morgun, bara nokkrar kommur á mælinum og hann á fullu út um allt. En svo fór litlum manni aftur að líða illa, hitinn rauk upp og ég var í rúman klukkutíma að róa hann niður og svæfa. Greinilegt að honum líður ekki vel því hann vill heldur ekki borða eða drekka. Hann sefur núna og ég vona að hann sofi vel. Svo ætla ég að tala við lækninn og láta hann kíkja á stubb.

fimmtudagur, desember 09, 2004

Þreyttur stubbur!

Ég skellti litlum þreyttum stubbi í rúmið sitt áðan, hann var farinn að nudda augun og orðinn uppgefinn eftir allt bjástrið í morgun. En þessi snáði er yfirleitt ekki á því að fara að sofa, sérstaklega ekki svona um miðjann daginn. Svo hann var heillengi að bjástra í rúminu. Fyrst í stað stóð hann og kvartaði sáran yfir móður sinni. Svo fór hann eitthvað að bjástra t.d. við óróann sinn og henda öllum tuskudýrunum og snuðinu út úr rúminu. Svo smám saman færðist hann alltaf neðar og neðar, að lokum lá hann og kúldraðist með sænginni, og alltaf var hann smávegis að kvarta. Svo að lokum heyrðist ekkert meira frá litlum manni og hann steinsefur!

Ekki búast við miklu bloggi hérna næstu dagana... við ætlum að skella okkur í smá ferðalag til Lyon og hafa það notalegt með systrum hans Hrafnkels svona rétt fyrir jólin. Ég er á skrilljón að pakka, fer svo og sæki kallinn eftir vinnu og við brunum af stað....

Garðyrkja!

Smá garðyrkjupistill ykkur til skemmtunar :-D
Mér finnst alltaf jafn skondið að sjá garðyrkjumenn að störfum í þessum kulda eins og er í dag. Við búum auðvitað í slíku millahverfi að maður sér sjaldan fólkið sjálft úti að garðyrkjast, hér eru flestir með græna vísifingur og láta aðra sjá um slík verk! Það var einn nágranninn að láta klippa hjá sér hekkið og raka saman laufum og fleira... mér fannst það bara skondið þegar ég var svoleiðis kappklædd á röltinu og dytti ekki í hug að sitja út í beði núna!
Annars er heimurinn svolítið öfugsnúinn hérna að því leyti, þótt það sé vetur þá er samt mikið grænt. Grasið og fullt af trjám sem eru enn með laufin, líklega sígræn. Og maður sér jafnvel blómstrandi blóm! Jepp... hér eru stjúpur vetrarblóm!!! Komst að því um daginn þegar stjúpur birtust aftur á markaðnum. Ætlaði að planta þeim í vor í svona svalakassa en fann þá engar. Var svo voða hissa þegar ég sá þær um daginn og þá var mér sagt þetta, hér eru stjúpur vetrarblóm! Svo ég ætti kannski að skreyta svalirnar hjá mér núna!!!
Jamms... frekar grænn vetur hér um slóðir!

miðvikudagur, desember 08, 2004

Voila!


Svo þið bíðið ekki lengur í "ofnæmi", kláraði gardínurnar á mánudaginn og setti þær upp! Er þessi frumraun mín ekki bara fín? Posted by Hello

Garderie og ræktin!

Við Kjartan skemmtum okkur bæði vel í morgun. Ég fór með hann í garderieið þar sem hann lék sér og skemmti sér konunglega á meðan ég var dugleg og fór í ræktina! Mundi eftir skónum í þetta skiptið ;-) Var voða dugleg að puða og þvílíkt sem það var gott að skella sér loksins. Svo þegar ég kom niður gekk ég framhjá sundlauginn og mig dauðlangaði út í. Aldrei fengið svona sterka löngun fyrir því að komast í sund. En það var ekki tími fyrir slíkt.
Á meðan var Kjartan mjög duglegur í pössuninni. Alveg frábært hvað hann unir sér vel þar. Og hann lenti í smá svaðilförum. Fóstrurnar og krakkarnir voru búin að byggja pall, tröppur og rennibraut úr svona stórum púðum sem eru í laginu eins og kubbar. Okkar maður dundaði sér hægt og rólega við að klifra þarna upp, var svo kominn upp á pallinn og vissi ekki alveg í hvaða átt hann ætti að fara. Var víst lengi að spekúlera í þessu en brá svo til þess ráðs að setjast bara á rassinn og öskra af öllum kröftum. "Komið og bjargið mér"!!!
Hann var orðinn dauðþreyttur eftir þetta alltsaman og var frekar feginn að komast í rúmið sitt eftir hádegismatinn. Og sefur enn....

Ég kemst þá kannski aðeins að jólast. Byrjaði í gær að baka smákökur, bara til að komast í jólastemminguna. Fann að vísu engan matarsóta út í búð svo ég byrjaði bara á marengskökum. Svo er ofninn að stríða mér þannig að seinni platan brann á botninum. Þær fóru allar í ruslið!!! Fer kannski bara í að gera nýja porsjón fyrst barnið sefur svona vel... Eftir lúrinn á svo að fara í leiðangur og leita að matarsóta! Híhí, ýmis ævintýri í útlöndunum...

þriðjudagur, desember 07, 2004

Mikið að gerast

Kjartan hefur svo mikið að gera þessa dagana, er alltaf að og honum fer þvílíkt fram. Ég heyrði í honum í morgun þegar hann vaknaði og var að dunda sér í rúminu sínu. Auðvitað er hann staðinn upp og elskar að djöflast í óróanum sínum. Nema hann er búinn að læra á hvaða takka hann á að ýta til að setja óróann í gang og veit líka hvaða takki það er sem breytir um lag. Og ég heyrði hann í morgun vera að bardúsa þetta og hann var ekki ánægður fyrir en óróinn var kominn í gang og búið að stilla á fuglasönginn!!! Greinilegt hint til foreldranna að hann sé orðinn dauðleiður á vögguvísunum 2 sem einnig er boðið upp á!!!
Svo er aðalmálið þessa dagana að standa upp allsstaðar sem hann getur og setjast svo niður aftur. Hann getur jafnvel gert þetta nokkrum sinnum á sama staðnum. Bara að æfa sig! Hann er löngu kominn með það á hreint að standa upp við stóla og annað í þægilegri hæð. Nú er málið að standa upp við veggi eða glugga þar sem er lítið til að grípa í. Og ekki vefst það fyrir honum. Hann jafnvel stendur upp við lampann í stofunni ef foreldrarnir eru ekki að fylgjast með!
Snúrur eru enn jafnvinsælar og mikið verið að japla á þeim ef litið er af litlum manni. Áðan var hann búinn að flækja sig í hátalarasnúruna og var fastur!! Hann er farinn að skilja "ekki" og "nei", er farinn að hætta við þegar það heyrist en hann setur stundum upp púkasvip og heldur áfram! Og talandi um svipi, þá er skrýmslasvipurinn það nýjasta, þá setur hann upp þvílíka grettu, blæs þungt í gegnum nefið og jafnvel öskrar! Í þessum ham hefur það reynst best að gefa honum að borða!!!
Ótrúlega skemmtilegt að fylgjast með honum og því sem honum dettur í hug að bralla. Hættir jafnvel við á miðri leið af því hann sá eitthvað meira spennandi að gera... eins og að naga snúru!!!

mánudagur, desember 06, 2004

Fýluferð!

Ég hafði þvílíkt fyrir því um daginn að kaupa mér íþróttaskó svo ég gæti farið í leikfimi. Ég var svo viss um í sumar að ég myndi ekkert nota íþróttaskóna mína aftur svo ég notaði þá í garðvinnu! Sem sagt, þegar ég komst í gym-gírinn í haust þá voru skórnir mínir ekki nothæfir. Það tók frekar langa leit að finna nýja skó, bæði leist mér lítið á úrvalið í sumum verslununum hérna og svo var nú ekki alltaf til rétt stærð. Í þeirri leit minni komst ég að því að verslanir eru ekkert að byrgja sig eitthvað upp, kaupa bara inn 1 stykki í hverju númeri! En það hafðist að finna skó....
Og í hádeginu ætlaði ég að vera dugleg og vígja fínu skóna. Var búin að finna World Class niður í bæ sem er með barnapössun í hádeginu og búin að panta mér kort. Og í bæinn fórum við um 12 leytið! Fyrst tók nú við leit að réttu götunni... allt einstefnugötur á þessu svæði... og þegar hún fannst þá þurfti að finna bílastæðishúsið þar sem á að vera frítt að leggja fyrir gesti WC. Það tók svona 3 hringi! Svo hljóp ég um götuna með 3 töskur á öxlinni og Kjartan í fanginu að leita að gyminu!!! Fann það svo á bakvið í einhverju hliðarsundi! LOKSINS!!! Gekk frá membership, fann barnapössunina og var svo mætt niður í klefann, komin úr öllum fötunum... og uppgötvaði að ég gleymdi íþróttaskónum góðu heima!!!!!! ALGJÖRT KLÚÐUR!!!! Mundi þá að ég ætlaði að stinga þeim í töskuna á leiðinni út...
Jamms... við fórum sem sagt bara aftur heim! Greinilega ekki minn dagur! En það góða er að ég veit allaveganna hvar WC er núna.... veit hvar parkingið er... og kann beina leið úr parkinginu í WC!!! Svo þetta var nú ekki alslæmt svo maður taki nú P0llýönu á þetta!

Búin með aðlögunina!

Kjartan fór aftur á garderieið í morgun og var yfir sig ánægður þegar við komum þangað. Horfði bara á mig þegar ég fór og snéri sér svo bara að dótinu. Hann saknar ekki einu sinni mömmu sinnar! Í dag prófuðum við klukkutíma og þegar ég kom aftur var hann á haus að leika sér, með eina litla 1 og hálfs árs á eftir sér sem þóttist vera að passa hann. Og hann hafði verið svo góður að fóstran sagði að það væri óþarfi að hafa hann í einhverri meiri aðlögun, hann uni sér svo vel, líti varla upp við að leika sér. Svo núna má ég bara koma með hann og hafa hann þarna eins lengi og ég vil. Og ég hef ekki hugmynd um hvað ég eigi að gera við þetta nýfengna frelsi!!!!!

sunnudagur, desember 05, 2004

Viðbót við fjölskylduna!


Þetta er nýjasti heimilismeðlimurinn, hann Valdemar, sem heldur að hann sé hreindýr!!! Posted by Hello

Jólin jólin allsstaðar...

Oh við erum búin að vera svo dugleg að jólast! Fórum í bæinn á föstudaginn og kíktum á jólaskreytingarnar. Búið er að setja upp jólatré á Grande Place, sem er reyndar skakkt af því starfsmönnum borgarinnar tókst að brjóta það. Finnarnir sem venjulega gefa tréið eru svo móðgaðir að þeir fóru í fýlu og hættu við að gefa tréið í ár. Aflýstu meira að segja hátíðarhöldum vegna 50 ára afmælis þeirrar hefðar að Finnar gefi Brusselbúum jólatré!!!!! Gerist bara í Belgíu!!! En svo er líka búið að setja upp stóra "creche" eða svona sviðsmynd af fjárhúsinu þar sem Jesúbarnið liggur í jötunni og allt liðið í kring. Voða flott. Og svo er þvílíka ljósashowið í bænum, upplýstar byggingar og fleira og fleira. Það var líka byrjaður jólamarkaður sem liggur alveg frá Grande Place til Marche au Poisson og þar var fullt af dótið til að kaupa og nóg af mat til að borða. Mörg lönd sem eiga sinn bás og eru að selja týpiskan jólamat. Við komumst að því að flest Evrópulönd eiga sína útgáfuna af heitu krydduðu víni! Ótrúlega mikið að sjá og skoða og bara þvílík jólastemming í bænum.
Það eru líka búnir að vera frekar fallegir vetrardagar undanfarið, enginn snjór en frekar kalt og loftið tært. Röltum í gær á markaðinn niðri á torgi þar sem ég flippaði aðeins í jólaskreytingum. Kynni ykkur fyrir því síðar!
Í dag er jólaball Íslendingafélagsins. Allir eiga að mæta spariklæddir með köku og pakka. Það verður dansað í kringum jólatré, gætt sér á hnallþórum og svo koma jólasveinar alla leið frá Íslandi til að gefa öllum krökkunum pakka! Verður spennandi að sjá hvernig Kjartani mun lítast á jólasveinana!!

föstudagur, desember 03, 2004

BTW

ekkert framhald á gardínusögunni. Mér tókst að brenna mig á hendinni í gærkvöldi, ekkert alvarlegt en það aftraði mér frá því að sauma nokkuð í gær. Sýnir bara hvað eldamennska getur verið stórhættuleg!

Grumpy!

Hrikalega fór ég öfugu megin framúr í morgun, er búin að vera grumpy frá því ég vaknaði. Vei þeim sem kemur nálægt mér í dag! Svo ákváðum við Kjartan að vera dugleg og fara í helgarinnkaupin í morgun svo það væri nú bara búið. En það ákváðu greinilega fleiri það sama því búðirnar voru stappaðar og það kl. 10!!! Ég hef aldrei lent í öðru eins, það er minna að gera milli 5 og 6 en 10 og 12!!! Svo ég í grumpy hamnum mínum var í því að keyra á fólk og urra. Það var Kjartan sem sá um að vera brosandi og kátur eins og alltaf, þvílíkt í að sjarmera fólk. Hann veit ekkert skemmtilegra en að koma með í búðina, fullt af fólki sem hann getur sjarmerað. Inn á milli er hann svo að japla á innkaupakerrunni eða einhverjum hlut sem honum tekst að fiska upp úr kerrunni.
Innkaupin voru sem sagt snemma því það á að skella sér í bæinn seinnipartinn, sækja Hrafnkel í vinnuna og spóka sig um í jólastemmingunni í miðbænum... og svo kannski skella sér út að borða!

fimmtudagur, desember 02, 2004


... og japlað á verkfærum saumakonunnar! Posted by Hello

Nú eða efnið notað í feluleiki...  Posted by Hello

ótrúlega gaman að skríða yfir efnið þegar verið var að reyna að klippa og mæla Posted by Hello

Borist hafa fyrirspurnir um framhaldssöguna... júbb, það er unnið í gardínumálum en það gengur ekki hratt. Hvernig haldið þið að það sé að sauma gardínur með þennan hjálpara? Posted by Hello

Gaman í morgun

Ég fór aftur með Kjartan í garderieið í morgun, annar hálftími til að venja hann við. Og það var sama sagan og síðast, hann var kominn á kaf í að leika sér og tók ekki eftir mér þegar ég kvaddi hann, ekkert frekar en að hann tæki eftir mér þegar ég kom aftur. Ég fór bara á góða gamla torgið okkar og spókaði mig í búðum (þeim sem voru opnar svona snemma) og var ekkert að flýta mér til baka. Ótrúlega sætt þegar ég kom að sækja hann þá var hann að skríða á milli staða til að standa upp. Og þarna var lítil sæt snúlla á svipuðum aldri sem þvílíkt elti hann út um allt nema hún gat ekki staðið upp og fannst þetta mikið svindl. Alltaf að reyna að taka í hann en Kjartan tók ekki eftir henni. Ég held að maður verði að ala barnið betur upp í góðum siðum, kenna honum að vera góður við dömurnar! Minn maður vildi svo ekkert fara, var frekar ósáttur við mömmu sína að fara frá þessum skemmtilega stað. Sú óánægja hvarf þó fljótt þegar hann sá stóru trukkana sem voru í götunni fyrir utan, eitthvað verið að laga. Hvað er þetta með stráka og bíla, sérstaklega STÓRA bíla???

Monsieur Carl

Long time no blog! Við bara skrópum heilan dag og allir kvarta! Við Kjartan vorum svo busy í gær að það gafst enginn tími í svona vitleysu. Smile

Við fengum pípara til okkar í gærmorgun til að laga svona ýmislegt smálegt. Leka krana, lekan vask og fleira. Eitthvað sem hefur verið bilað í marga mánuði en einhvernvegin farist fyrir að hringja í píparann. Svo loksins dreif ég mig í það í síðustu viku, alveg tilbúin að biðja hann þvílíkt fallega að koma nú fyrir jól, vorum viss um að þetta tæki 2 mánuði eins og annað hérna. Nema monsieur Carl, þessi fíni pípari sem við hringdum í, sagðist koma eftir nokkra daga. Mætti galvaskur hérna í gær, kynnti sig sem píparann og bara "show me the problem". Og þessi brosmildi pípari fór eins og stormsveipur um húsið og lagaði allar litlu bilanirnar. Svo nú er allt orðið spick and span og í toppstandi. Við getum meira að segja farið að nota vaskana á baðherberginu aftur en ekki kúldrast inn í sturtuherbergi. Svo var maðurinn bara svo jolly og brosandi, útskýrði nákvæmlega fyrir mér hvernig ég ætti að komast fyrir fnykinn í þvottahúsinu (án þess að þurfa að þrífa niðurfallið 2svar í viku) og fleira. Það næs og snöggur að maður trúði því ekki að maðurinn væri belgi! Og alls ekki belgískur iðnaðarmaður! Alltaf er hægt að koma manni á óvart!

þriðjudagur, nóvember 30, 2004


Ég var að spá í að reyna að breyta þessari efnishrúgu í gardínur fyrir tölvuherbergið! Ætli mér takist það? Framhald í næsta þætti...  Posted by Hello

Mont mont!

Ég gleymdi aðeins að monta mig áðan. Fóstrurnar í morgun voru svo yfirsig hrifnar af Kjartani, hvað hann væri duglegur, og fannst alveg ótrúlegt hvað hann héldi áfram þótt hann dytti á hausinn. Þær sögðu að svo mörg börn hættu alveg við að gera hlutina í smá tíma ef þau dyttu og meiddu sig. En ekki Kjartan. Hann heldur bara áfram. Svona eftirá þá er ég ekki svo viss um að það sé kostur!! Amk ekki fyrir foreldrana. Og þær voru alveg á því að þessi gaur væri farinn að ganga 1 árs! Ég sem var að vona að hann tæki sér tíma í það, en þær vonir virðast verða að engu. Sjáum til...

Mikið að gera í morgun!

Kjartan fór aftur í garderie í morgun og þetta var í fyrsta sinn sem hann var þar einn. Heill hálftími til að byrja með. Honum var samt nokk sama, var kominn á fullt að leika sér meðan ég var að tala við konurnar og leit ekki upp þegar ég kvaddi hann. Held þetta hafi verið erfiðara fyrir mig, var mjög skrítið að standa úti á tröppunum BARNLAUS. Það hefur nú gerst áður en það var eitthvað skrítið í þetta skiptið. Erfiðara fyrir mömmuna að skilja barnið sitt svona eftir. En hann var í góðum höndum. Ég bara dundaði mér í nokkrum búðum í nágrenninu og kom svo að sækja hann. Þá var hann í fullu fjöri og mátti ekkert vera að því að fara. Eins og ég hélt þá var þetta ekkert mál, enginn grátur, nema aðeins af því hann flaug á hausinn. Safnaði nokkrum kúlum í því að príla um og reyna að elta hin börnin. Þegar ég kom var hann að leika við tvo aðra stráka, báðir svolítið eldri og farnir að labba. Þeir stóðu allir 3 við lítið borð og voru að leika með eitthvað hús. Svo fór einn strákurinn burtu með húsið og hinn á eftir svo Kjartan var einn eftir og ekkert hús! Og þá var sko grátið! Enda mamma komin! Þær sögðu fóstrurnar að hann væri greinilega að gráta bara fyrir mig.
En mikið voru menn þreyttir á eftir, öll orkan búin. Við fórum svo á húsmæðrahitting niðri á torgi. Mikið kvennaspjall. En þá var Kjartan alveg búinn á því, lognaðist út af í kerrunni svo ég hafði bara ró og frið til að kjafta og drekka kaffi. Við enduðum svo morguninn á því að fara á markaðinn og skoða okkur um með nokkrum kvennanna. Ég keypti aðventukrans og nú þarf ég bara að skreyta hann. Bara krans með 4 kertum á, þarf að bæta úr skrautleysinu. En það var margt skrýtið og skondið á markaðnum og gaman að rölta þar um í fínu veðri þótt það væri kalt. Bara jólalegra þegar maður er að skoða jólaskraut!!!

mánudagur, nóvember 29, 2004

Jól jól jól jól!

Jei, loksins má fara að jólast án þess að nokkur geti kvartað, fyrsti í aðventu var í gær svo nú er allt jólastúss leyfilegt! Ég er búin að iða í skinninu lengi og nú getur maður sko sett sig í jólagírinn, dregið fram jólaskrautið, sett jólalög á fóninn og bara jólast! Á sko eftir að leggjast í jóladæmið núna í vikunni, kannski maður fari jafnvel að baka og dúlla sér. Hlakkar bara til. Ætlaði að vísu að vera búin að finna aðventukrans eða föndurefni í einn slíkann áður en aðventan hæfist en force major réð því að ég lá í bólinu um helgina og komst ekki í slíkt! En nú er maður orðinn hressari og ætti að komast í jólastúss. Svo á eftir að redda jólagjöfum fyrir fáa útvalda, finna jólaföt á familíuna og ýmislegt fleira jóla jóla. Almennt jólastúss á næstunni... JEI! Getur ekki verið betra!

sunnudagur, nóvember 28, 2004

Jumm!

Við prófuðum enn einn af hverfis-veitingastöðunum okkar í kvöld og þvílíka uppgötvunin! Ótrúlega sætur og kósí staður og þvílíkt góður matur. Borðaði rækjur í forrétt og biche í aðalrétt, hvað sem það nú er, veit svo mikið að það er villibráð af einhverju tagi. Og svo fylgdi himneskt súkkulaðimúss í desert... og fyrir 3 rétti borguðum við 25 evrur á mann! Er þetta hægt????!!!!! Ótrúlega góður matur, kósí staður og ljúft andrúmsloft. Enda skemmti veitingahúsarýnirinn Kjartan sér konunglega. Hann var bara salírólegur, lék sér heillengi á gólfinu eða við það að standa upp við önnur borð. Heillaði suma gestina upp úr skónum þannig að það var mikið farið að klingja en öðrum var bara slétt sama. Svo voru þarna nokkrar sem voru tilbúnar að taka að sér ömmuhlutverkið. En allir fóru sáttir heim... og sumir meira saddir en aðrir!

Stórtækur ungur maður!

Það skemmtilegasta sem Kjartan veit þessa dagana er að leika með húsgögnin. Núna þegar hann getur staðið upp hvar sem er og gengið með þá er hann í því að standa upp við húsgögnin og hreyfa þau fram og til baka. Hann notar jafnvel sum þeirra eins og litla bláa borðið til að komast um. Hann ýtir því á undan sér og labbar þannig þangað sem hann vill fara. En hann hefur einnig komist að því að húsgögn eru mjög góð undir tönn, hann er orðinn litli naggrísinn okkar, því það eru komin tannaför á öll helstu húsgögnin, elskar að standa og naga sum þeirra, og eru þar tágastólarnir vinsælastir eins og sjá má á þessari mynd. Þannig að ef einhver á ráð um hvernig maður fær börn til að hætta að borða húsgögn má hinn sami deila því með okkur.

P.s. það eru líka komnar nokkrar myndir í viðbót í nóvemberalbúmið.

laugardagur, nóvember 27, 2004

LASIN!!

Úff! Náði mér í vænt kvef sem nær alveg upp í allar ennisholur og er frekar slöpp. Búin að hanga inni allan daginn í gær og í dag! Og leiðist það frekar mikið. Mann langar aldrei meira út úr húsi en þegar maður Á að vera inni. Við vorum líka búin að gera skemmtileg plön í gærkvöldi og í dag sem auðvitað fuku út í buskann, sniff sniff, en ætlum samt að halda okkur við matarboð í kvöld. Væri alveg til í skyndilækningu, þetta er svo leiðinlegt, ekkert að manni en samt líður manni eins og drullu. Ég þakka samt áströlunum fyrir þetta góða ráð með heitt vatn og 2 dropa af eucalyptusolíu, algjör snilld. Hressir mann við! Nema ég setti auðvitað mun meira en 2 dropa áðan út í heita vatnið svo húsið angar eins og hálsbrjóstsykursverksmiðja!

föstudagur, nóvember 26, 2004

Erfitt að vera lítill!

Æjá, ekki auðvelt þessa dagana þegar litlir menn eru á eilífu klifri. Kjartan var að fá enn einn skellinn og 6 kúluna á örfáum dögum. Hann er með marbletti út um allt! En það stoppar menn samt ekkert í klifrinu. Menn eru aumir svona rétt á eftir, það er grátið með tilþrifum og knúsast hjá mömmu, en svo er allt búið og bara farið af stað aftur. Fall er fararheill!

Svona leit garðurinn okkar út í morgun.. Það getur sem sagt komið frost í Belgíu! Og það er frekar kalt úti þótt hitastigið sé komið upp fyrir frostmarkið núna. Meira að segja Georgíumaðurinn, sem er að laga húsið að utan, er að frjósa úr kulda, og hann bjó í Síberíu!!! Greyið. Og vill samt ekki þiggja kaffibolla. Posted by Hello
Ég hélt að við myndum aldrei þurfa að nota framrúðuhitarann og sætishitarann og það allt fína dót í bílnum okkar. En það hefur sko sannarlega komið sér vel í morgun!

fimmtudagur, nóvember 25, 2004

Skemmtilegur morgunn!

Við Kjartan skemmtum okkur vel í morgun. Við fórum í heimsókn í garderie. Þetta er svona róló-fyrirkomulag, þangað er hægt að fara með börn 0-3 ára í pössun í stuttan tíma eða jafnvel allan daginn, ágætt þegar mömmur þurfa að fara eitthvað þar sem er ekki gott að hafa litla stubba með. Fyrst þurfum við samt að fara í gegnum smá aðlögun og var þessi heimsókn fyrsta skrefið. Þetta var allt voða lítið og kósi, fínar konur sem reka þetta og nóg af dóti. Og fullt af öðrum krökkum. Kjartani fannst svo gaman og var í raun alveg sama þótt ég væri þarna eða ekki. Hann leit ekki á mig allan tímann hann var svo upptekinn að leika við dótið og fylgjast með hinum krökkunum. Í eitthvað skiptið hafði hann verið að leika sér að dúkkukerru, sat með hana á hvolfi og nagaði dekkin. Svo kom lítil stelpa, setti dúkku í kerruna og fór að keyra um með hana. Og Kjartan elti, hann ætlaði sko að ná í þessi dekk sem voru svo mjúk undir tönn!
Í næstu viku byrjum við svo smá aðlögun, fyrst fer hann í nokkur skipti sirka hálftíma í einu og ef það gengur vel þá er það lengt í klukkutíma og svo 2 o.s.fr. En ég hef engar áhyggjur, honum finnst svo gaman að komast að hitta önnur börn og leika með nýtt dót að ég efast um að þetta verði eitthvað erfitt. Svo er þetta ágætis æfing fyrir hann áður en hann byrjar á creche, en við erum að reyna að koma honum að hálfan daginn í vetur.

Nýjar myndir

Er að setja inn nýjar myndir á myndasíðuna hans Kjartans. Svo langt síðan síðast þannig að það er stór "bunki".

miðvikudagur, nóvember 24, 2004

La Barchetta

Við fórum á local restóinn okkar í kvöld. Hittumst bara þar familían á þessum eðal-ítalska stað og átum yfir okkur. And I'm so sad I could spring! Ótrúlega góður og klassískur matur á engu verði og það í göngufjarlægð. Enda erum við orðin fastakúnnar og þjónarnir spyrja hvernig maður hafi það og hvað sé að frétta frá því síðast. Svo fær Hrafnkell auðvitað að æfa ítölskuna ;-)
Og þetta er einn af fáum stöðum þar sem gert er ráð fyrir börnum, amk hafa þeir barnastóla svo Kjartan fær alltaf að sitja til borðs og japla á brauði eða hverju sem okkur dettur í hug að leyfa honum að smakka. Í kvöld var hann samt ánægðastur á gólfinu, að hífa sig upp við kerruna sína eða stólana. Miklar lyftingar í gangi. Og inn á milli rústaði hann fíkusnum sem var við aftan borðið okkar. Og voða ánægður með þetta allt saman.
Svo þegar hann var settur í stólinn sinn til að gefa honum maukið sitt þá var hann með svo mikil læti að meira að segja kokkurinn þurfti að koma fram til að tékka hvað væri í gangi, því það var bara verið að rífa kjaft og berja með bollanum sínum í borðið!
Góður matur og barnvænir þjónar!!! Góðir nágrannar það!

Kleifarvatn

Ekki búast við miklu bloggi frá mér á næstunni! Hrafnkatli var send nýja bókin hans Arnaldar í afmælisgjöf og kom hún í hús á þriðjudaginn. Mér var gefið lestrarleyfi á bókina á undan afmælisbarninu enda hann djúpt sokkinn í sýn útlendings á belga. Ég varð auðvitað að kíkja í bókina aðeins í gær fyrir svefninn og gat varla hætt svo ég hélt áfram áðan á milli þess sem ég hljóp á eftir Kjartani tætibusku! Þótt LEGO kubbarnir séu skemmtilegir þá er samt miklu meira gaman að tætast í geisladiskum, DVD, snúrum, blómum og plötusafninu! Sem sagt, ekki flóafriður... eða segjum frekar lestrarfriður!

þriðjudagur, nóvember 23, 2004

ég er sem sagt frekar lítið naut!

You are 33% Taurus





Amman farin!

Sniff sniff. Strax farin að sakna hennar. Þetta er búið að vera svo notalegt. Alltaf einhver heima og svo er hún búin að vera að leika við Kjartan allan tímann held ég, skríður með honum um gólfin og þau hafa bara skemmt sér voða vel saman. Kjartan farinn að dýrka ömmu sína og er orðið alveg sama þótt við foreldrarnir séum ekkert nálægt, amma er svo skemmtileg. Leyfir honum svona stundum að gera það sem má ekki og svona, eins og að tosa í snúrur.
Svo fengum við skötuhjúin bæjarleyfi á föstudagskvöldið. Fórum út að borða á lítinn sætan stað þar sem allar innréttingar voru frá Belle Epoque, æðislegur staður, og sátum þar og jöpluðum á héra og fleiru góðu en skrítnu. Á eftir fórum við svo í partý sem einn vinnufélagi Hrafnkels hélt. Þau hjónin buðu bæði sínum vinnufélögum svo þarna var samansafn af allskyns fólki frá ýmsum löndum. Mikið stuð! Dansað og djammað fram á rauða nótt en það hef ég sko ekki gert LENGI! Skriðum heim rúmlega 3 sem er gott eftir langt djammhlé... enda var það eins gott, ég var vakin um 7! Get svarið það að ég var frekar ryðguð á laugardaginn!
Svo var helgin bara í rólegheitunum. Fórum til Leuven sem er lítill bær hér rétt hjá, voða sætur og gaman að rölta þar um. Tókum labbitúr á sunnudeginum og fórum í bæinn í gær. En við vorum bara mest í því að vera heima og leyfa Kjartani að brölta um. Nú er sko engin miskun, minn maður er farinn að standa upp við allt. Hann hífir sig upp við ofnana meira að segja. Sama hvað það er, hann reynir að standa upp. Svo krúsar hann meðfram öllum borðum og fer á milli húsgagna líka. Eini gallinn að stofan okkar er svo stór að það er oft of langt á milli. Svo er hann orðinn svo snöggur að skríða, ef hann sér áhugaverðar snúrur þá er hann fljótur þangað... og jafnvel farinn að plata mann, þykist vera að fara í eina átt en snýr þá skyndilega við og nælir sér í snúrur! Það er því fullt verk að fylgjast með honum þessa dagana!
Já, þetta er sko sannarlega búin að vera notaleg helgi. Verst hvað er langt þangað til amman kemur næst! En í millitíðinni koma jólin, nú getur maður lagst í jólaundirbúninginn....

fimmtudagur, nóvember 18, 2004

Amma er að koma!!

Og okkur hlakkar svo til. Henni var skutlað í flug í morgun til Amsterdam og verður komin á okkar slóðir seinnipartinn í dag. Svei mér þá, ég veit reyndar ekki hvern hlakkar meira til, hana eða okkur! Kjartan veit auðvitað ekkert hvað bíður hans... en það verður fjör hjá stubbi næstu daga og mikið dekur! Við ætlum svo sannarlega að dekra við ömmuna.... og hugsanlega plata hana í pössun eitthvað kvöldið.Winky

miðvikudagur, nóvember 17, 2004

Iðnaðarmannatuð!

Jamms, enn einn dagurinn í þetta vesen! Þessi sem kom í morgun til að laga sagði að þeir sem komu í gær hefðu gert eitthvað vitlaust, en mér finnst þetta nú lítið skárra eftir hann.. hnuss. Lakkið varð einhvern vegin upphleypt á köflum og flagnaði jafnvel af. En í morgun pússaði hann allt upp aftur og lakkaði aftur. Vonandi dugar þetta fyrir leigusalann því ég nenni ekki að fá þá einu sinni enn!
Við Kjartan flúðum auðvitað, að þessu sinni til Þórunnar sem býr hér rétt hjá. Vorum í góðu yfirlæti hjá henni og stelpunum hennar tveim, þeim Lísu og Arínu, þar til okkur var óhætt að koma heim aftur. Þórunn þurfti að vísu að skreppa í millitíðinni og sækja Lísu í skólann en við Kjartan pössuðum bara Arínu á meðan. Hún er ekki nema 6 vikna og svaf nú mest allan tímann. En hún þurfti nú smá að láta halda á sér og það var ekkert smá fyndið að halda á svona litlu skotti... og geta haldið á henni á öðrum handleggnum! Það rifjaðist einmitt upp fyrir mér að Ásdís vinkona kommentaði á þetta þegar hún fékk að halda á Kjartani fyrst. Fyndið. Langt síðan hann passaði á ANNAN handlegginn!
Svo loksins erum við komin heim í heiðardalinn og fáum vonandi að hafa heimilið iðnaðarmannalaust næstu dagana. Úff... og enn einn daginn er ég að lofta út.... En núna er líka allt orðið voða fínt. Svo koma skúrkurnar á morgun og þá verður allt ennþá fínna!! Smile

þriðjudagur, nóvember 16, 2004

Dagur tvö í fnyk!

Oh, iðnaðarmennirnir komu aftur í morgun að lakka síðustu umferðina. Og húsið stynkar! Við Kjartan flúðum á meðan, í þetta sinn þurftum við að bíða í 3-4 tíma!!! Fórum að hitta húsmæðurnar í hverfinu á Le Pain Quotidien og fórum á markaðinn. Á meðan við höfðum það notalegt að drekka kaffi og borða súkkulaðibrauð, þá svaf Hrafnkell á sitt græna í allri stybbunni. Greyið er lasinn heima í dag. Ég bjóst alveg eins við að finna hann uppdópaðann og frosinn þegar ég kæmi aftur en ekkert slíkt. Hann gerði herbergið mengunarhellt og tókst að sofa þetta af sér. En það versta er að líklega þurfa þeir að koma enn einu sinni! Lökkunin er eitthvað að klikka hjá þeim. Gæti lagst í gólfið og orgað!

mánudagur, nóvember 15, 2004

FROST


Jæja, iðnaðarmennirnir farnir, búnir að pússa og lakka og drepa okkur Kjartan úr eiturgufum. Við skruppum að vísu út en erum komin aftur. Ég er búin að opna alla glugga í húsinu og nokkrar hurðir. Auðvitað þurftu helv... mennirnir að velja kaldasta daginn svo það er jafn mikið frost inni og úti! Grrrr.... Hér má sjá prinsinn á heimilinu kappklæddan að leika sér INNI! Posted by Hello

Iðnaðarmenn

Úff, við Kjartan erum hér í gíslingu iðnaðarmanna, við þurfum að hanga heima og ekki að vera þvælast neitt of mikið fyrir þeim sem þýðir að núna höngum við í tölvunni, ég að pikka, hann að bisast í snúrunum. Það er verið að laga parketið á stiganum eftir vatnslekann sem varð hér í mars!!!! Tryggingarnar kláruðu ekki málið fyrr en í júní eða júlí, og leigusalarnir gátu fljótlega reddað málara svo það var búið að mála áður en við fórum í fríið í sumar, en parketgaurinn var fyrst núna að koma! Tekur allt saman tíma í þessu landi.
Og ekki eru þeir stundvísir blessaðir. Þessi sagðist koma kl. 9 en hún var farin að nálgast 10 þegar hann mætti. Ekki sá fyrsti! Ég þurfti nefnilega að taka á móti öllum þessum köllum hér í apríl og maí þegar þeir voru að gera tilboð í verkið. Svo komu tryggingarkallarnir. Svo kom expert og gaf álit. Svo komu tryggingarkallarnir aftur. Og enginn kom á réttum tíma! Í morgun voru komnir iðnaðarmenn í húsið við hliðina og á móti áður en þessi mætti! Og svo þarf ég að hanga yfir honum í dag þar til hann klárar... og hann veit ekkert hvenær sirka það verður. Ætlar að reyna að gera eins mikið og hann getur í dag! Sem er svo sem gott en samt leiðinlegt að vita ekki hvenær maður getur sloppið út í kuldann og fengið sér ferskt loft!
Plús það er svo mikill hávaði að Kjartan mun ekki mikið lúra þennan morguninn!

sunnudagur, nóvember 14, 2004

Hér var sko verið að flýta sér í gærkvöldi!

Einum ungum manni lá sko á! Hann stóð upp við sófaborðið og var mikið að krúsa þar fram og til baka. Svo stóð hann við einn endann og hélt sér í með einni hendi, sleppti svo og ætlaði sér áfram. En var fljótur að fljúga á hausinn. Frekar hugumstór ungur maður þótt lappirnar séu enn stundum eins og spaghettí þegar hann stendur upp. En æfingin skapar meistarann!

laugardagur, nóvember 13, 2004

Það eru að koma jól!!!

Jibbííí... Ég er farin að hlakka þvílíkt til jólanna, get eiginlega ekki beðið. Jólabarnið ég fór auðvitað að hlakka til einhvern tíman í september en hef verið að reyna að bæla það niður... en það er ekki hægt lengur! Fór í bæinn í gær og fann enn eina búðina fulla af jólaskrauti! Við Tóta fundum líka um daginn alveg geðveika jólabúð, þarf að fara þangað aftur, og svo er í flestum húsbúnaðarbúðum farið að selja jólaskraut. Og nú er litli heilinn minn kominn á fullt í að plana jólin. Öll tannhjólin farin að snúast í því að ákveða hvernig jólatréið verði skreytt í ár (hef smitast illilega af þeirri hefð úr Efstasundinu að hafa alltaf þema á jólatréinu um hver jól)... ég er að spá í rautt og gyllt í ár.. en svo er bara til alveg ógurlega mikið af flottu jólaskrauti, erfitt að velja á milli.
Svo er líka orðið svo kalt úti að maður getur ekki annað en hugsað um jólin. það er samt ekki komið frost, bara nokkrar gráður á hitamælinum en það er svo rakt hérna að ég er að frjósa. Sem betur fer á ég mannlegan hitapoka til að hjúfra mig að á kvöldin. Það er alveg ótrúlegt en það er svo rakt hérna að þegar fer að rökkva þá sér maður rakann í loftinu, er alltaf svona þunn þokudula yfir öllu. Á þessu heimili er því búið að draga fram flíspeysurnar og kveikt upp í arninum á kvöldin! Talandi um jól!!!!

föstudagur, nóvember 12, 2004

Föstudagur!

Jamm...þá eru allir fjölskyldumeðlimir orðnir lögskráðir í bloggið. Jakkalakkinn kom semsagt heim úr vinnunni og hitti fyrir lítinn dreng sem hafði afskaplega takmarkaðan áhuga á þeim fæðutegundum sem móðir hans var að reyna að fá hann til að innbyrða. Var barasta orðinn ansi snúðugur. Það gengur svona...

Matarboð

Hér var matarboð í gærkvöldi og mikið stuð. Við Kjartan vorum bara að slæpast mest allan daginn, búin að kaupa inn á miðvikudaginn því allt var lokað í gær. Fórum samt út í von um að bakaríin væru opin til að kaupa baguette... en ALLT lokað! Fundum samt opið kaffihús og ég gat sannfært þá um að selja mér eitt baguette... og eftir allt vesenið þá gleymdist að bera helv... baguettið á borð fyrir gestina! Confused
Svo var Kjartan nú ekki alveg upp á sitt besta rétt fyrir háttatímann þegar foreldrarnir voru á fullu og frekar stressaðir hvort þeir næðu að ljúka matsseldinni... en drengurinn var svo vænn að sofna rétt fyrir 8 og gestirnir að mæta seint svo þetta hafðist allt saman. Það voru einhver skakkaföll í eldhúsinu eins og rucolað sem átti að nota í einn réttinn var bara orðið ónýtt eftir 1 dag í ísskápnum! Aðstoðarkokkurinn var þá sem betur fer með móður sína í símanum svo hún gat bjargað málunum... og ég held bara að rétturinn hafi verið betri fyrir vikið. Lol Hrafnkell græjaði svo þennan dýrindis túnfisk... verður betri í hvert sinn!
Og félagsskapurinn var ekki síðri, Guðjón og Katrín og Vigdís og Jakob Falur. Hér var mikið kjaftað og mikið hlegið. Brúðkaup bar auðvitað á góma. Þá kom nú í ljós að ekki höfðu allir viðstaddir frétt af því. Og ég sem hélt að ég væri búin að segja öllum frá því. Og fólk komst alveg í gírinn að ræða brúðkaup. Bæði hjónin sem voru í mat búin að gifta sig og fóru á flug að segja frá sínu brúðkaupi. Þetta vakti greinilega upp góðar og skemmtilegar minningar hjá þeim að rifja upp brúðkaupið sitt, svo ég er farin að hlakka þvílíkt til okkar dags!
Svo fóru allir pakksaddir í rúmið...

fimmtudagur, nóvember 11, 2004

Þetta er fyrsta blogg frá Brussel,

eiginlega kominn tími til! Nýta sér helsta fréttamiðilinn þar sem maður er kannski ekkert of duglegur að senda frá sér fréttir. Embarrassed Hér verður sem sagt aðallega sagt frá fréttum af litla manninum sem er orðinn heillra 9 mánaða gamall... Ævisaga hans verður sem sagt betur skráð heldur en fyrstu 9 mánuðina!!! Við áttum auðvitað að vera löngu LÖNGU byrjuð, en svona getur maður verið latur.. eða eitthvað.
En við erum a.m.k. byrjuð núna! Lol
9 mánaða... ótrúlegt... en með öllu sem því fylgir. Hér er sko verið að tæta og trylla á hverjum degi. Kjartani tætibusku fellur ekki verk úr hendi, sífellt á útkikki eftir einhverju að gera, óstöðvandi (svona eins og Energizer bunny!!!) og alltaf brosandi. Nema þegar eitthvað skemmtilegt er tekið af honum og þetta skemmtilega fellst ALLTAF í því sem er hættulegt fyrir unga menn. Samt gaman að þessu. Thumbs Up