Já, það get ég svo svarið. Sit hér og ber hausnum mínum við tölvuna. Er einhvern vegin lítið að komast áfram í þessu smásmugulega miðannarprófi í Risk og Cost Management. Það veit heilög hamingjan að ég ætla að finna mér eitthvað skemmtilegra að gera næsta vetur!
Hér gerðust undur og frímerki í gær. Það urðu mikil þáttaskil hjá Kjartani því allt í einu eru kisur farnar að mjálma í staðin fyrir að hneggja. Kisur mjálma en öll önnur dýr hneggja. Og hestar hneggja sérstaklega mikið. Hins vegar vill hann ekkert með fiska hafa og þegar mamma er eitthvað að reyna að leika eftir hvað fiskarnir segja er bara hlegið að henni. Hæst hló hann þegar mamman var eitthvað að reyna að leika ljón, en það var samt svo fyndið að Kjartan reyndi að herma eftir.
Svo er nei-skeiðið að byrja. Nú er gengið um og sagt "ekki" og "nei". Mikið sport. Og sjálfstæðisbaráttan er komin á fullan kraft. Ég held ég þurfi að tala hann til um að setjast í kerruna eða bílstólinn í hvert einasta skipti sem við förum eitthvað. Og það renna tár í hvert sinn. Litli þrjóskupúkinn ætlar að gera hlutina á sinn hátt. Bestu dæmin um sjálfstæðið er að aftur og aftur leggur hann á sig að labba sjálfur heim úr búðinni eða róló frekar en að sitja í kerrunni. Verður skemmtilegt að fylgjast með á næstunni... en það mun taka á taugarnar!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli