Hér bara rignir og rignir og rignir! Veðurspáin segir að það eigi eftir að rigna áfram ALLA vikuna! Hreinlega deprimerandi veður. Það svo mígrignir að það er ekki hundi út sigandi, hvað þá mömmu með lítið Kjartansskott. Það verða víst fáar rólóferðirnar þessa vikuna.
Lífið er loksins komið í eðlilegar skorður aftur. Kjartan er hættur öllum uppköstum og niðurgangi, þetta var víst rotavírus sem hann fékk og er algengur í svona litlum börnum. Á föstudaginn var hann laus við þennan fjanda en þá þurfti bara að plata barnið til að borða aftur. Hann var sjálfur kominn með leið á þessum óþægindum og hreinlega kominn í hungurverkfall. En með kexinu tókst mömmunni að plata barnið til að smakka mat aftur og þá var ekki aftur snúið. Hann borðaði svo eins og hestur alla helgina, það var eins og hann væri að ná upp öllum matarskortinum yfir vikuna! Í gær var hann svo kominn í sinn venjulega gír og mættur á crèche kl. 9 í morgun. Að vísu er frekar fámennt á crèchinu. Flest börnin eru heima lasin með hlaupabólu eða þennan bévíða rotavírus. Svo þegar Kjartan kom var sirka fóstra á hvert barn. Litla dýrið var eflaust dekraður í dag.
Í gær skelltum við mæðginin okkur í bíltúr til Skiphóls og sóttum eiginmann og föður. Kjartan var ekkert smá ánægður að sjá pabba sinn aftur, hljóp beint í fangið á honum. Og þið getið rétt ímyndað ykkur hvað ég er ánægð að vera búin að fá hitapokann minn aftur!
Eftir langan bíltúr heim þar sem ég fékk skýrslu frá heimsókninni og ástandi mála í Reykjavíkinni, þá var hreinlega fjölskyldustund og letilíf. Og þegar Kjartið var komið í rúmið, hrundu foreldrarnir í sófann yfir Barchetta-pizzum og CSI Miami. Og hrundu svo í rúmið....
mánudagur, febrúar 20, 2006
fimmtudagur, febrúar 16, 2006
Leti leti leti!
Það liggur yfir mér þvílík skriftarleti, eins og þið hafið kannski tekið eftir! Ekki einu sinni sagt frá fjörinu um afmælishelgina þegar Tóta móða kom í heimsókn, óvæntum gestum frá Þýskalandi (og Íslandi), skóla, veikindum né öðru!!! Hnuss, kominn tími að bæta úr þessu, sérstaklega þegar manni eru farin að berast kvörtunarbréf!!!
Afmælishelgin (sú fyrir 2 vikum, tíminn flýgur!!!) var ansi fjörug. Tóta móða kom í heimsókn, mætti á fimmtudeginum og var alveg fram á þriðjudag. Reyndar var það amma Sigga sem ætlaði að koma í heimsókn og vera með Kjartani á afmælisdaginn, en hún var svo óheppin að detta í stiganum í Efstasundinu, snúa sig illa og ristarbrotna, að hún komst hvorki lönd né strönd. En Tóta móða kom í staðin sem fulltrúi fjölskyldunnar og burðardýr undir alla afmælispakkana. Hún var svo á fullu með mömmunni í undirbúningi og stóð fyrir skreytingunni á afmæliskökunni sem varð auðvitað stórglæsileg!!! Á mánudeginum gátum við systurnar svo tekið einn chill dag, kíkt í bæinn að skoða skrítnar búðir og sætar litlar götur!!!
Á mánudagskvöldinu fengum við svo óvænta og skemmtilega heimsókn, Hallur vinur okkar var staddur í Munster í Þýskalandi hjá Ásgeiri vini sínum, og þeir félagarnir brugðu undir sig betri fætinum og skelltu sér til Brussel í kvöldmat og Popppunkt. Þeir voru mættir um 5-leytið og um leið og Hrafnkell var kominn heim hófst Popppunkts-spilun sem stóð langt fram á kvöld, að vísu með lasagnapásu! Tóta, Hrafnkell og Hallur börðust um sigurinn fram á síðasta metra en Halli tókst að vinna spilið! Held að Hrafnkell sé enn að jafna sig á því, enda vinnur hann alltaf!!!
Vikan á eftir var svo með rólegra móti, ég á fullu í skólanum. Kennararnir hreinlega elska að setja fyrir heimanám og það versnar þegar maður hefur ekki hugmynd um hvernig á að leysa dæmið!!! Skerí! Hreinlega efni í aðra bloggfærslu.
Síðasta helgi var svo frekar róleg. Við fengum barnapíu á föstudeginum og fórum út að borða með Óla og Laurence. Fórum á Les Brigittines, stað sem við höfum farið á áður og líkað vel, nema það kom í ljós að eigandi staðarins og kokkurinn er vinur Laurence, svo við urðum auðvitað að fara aftur og fá súper-service. Kokkurinn hreinlega tók á móti okkur við dyrnar, mælti með víninu með matnum og kom svo og kjaftaði eftir matinn. Fengum hrikalega góðan mat, eins og alltaf. Algjört gúrmet-kvöld! Enduðum svo á kjaftatörn heima hjá Óla og Laurence, enda búa þau steinsnar frá staðnum.
Að öðru leiti var helgin algjör letihelgi. Fórum reyndar í góðan bíltúr á sunnudeginum að skoða krika og skúmaskot Brusselborgar, í SNJÓKOMU!!!. Frekar súrrealísk sjón!!! Og eins og sönnum Íslendingum sæmir enduðum við að sjálfsögðu á ísstað, Capoue, og fengum okkur jummí ísrétt! Kjartan hreinlega át á sig gat, borðaði sirka fullorðinsskammt af ís! Hann borðar aldrei eins vel og þegar ís er í boði.
Á mánudagsmorgun byrjaði svo fjörið!! Kjartan vaknaði gubbandi, sem síðar þróaðist yfir í niðurgang og greyið litla var svakalega lasinn mánudag og þriðjudag. Hann hefur nú verið betri síðan, en lítið viljað borða enda er enn að koma niður af honum. En þetta virðist vera að mjakast í rétta átt, nema barnið vill sem minnst borða. Ég vona nú að þetta sé að lagast, erfitt að sjá litla kallinn sinn sem venjulega er ofurhress, svona slappan og máttlausan, og vill helst hvergi vera nema hjá mömmu. Þannig að þið getið ímyndað ykkur hvað þessi vika hefur farið í!!!!
Hrafnkell skellti sér svo til Íslands á fimmtudaginn og mætti eldhress beint úr flugi í fögnuð yfir 10 ára útskriftarafmæli úr lögfræðinni. Var víst voða gaman og svaka stuð. Hann er því núna að spóka sig á Íslandi, hitta ættingja og vini, og byrgja okkur upp af íslensku dóti, eins og kaffi frá Kaffitári og nýrri Stubbaspólu!!!. Helgin verður því róleg hjá okkur mæðginunum því Hrafnkell kemur ekki fyrr en á sunnudag. Okkur er reyndar boðið í smá kvæmi á morgun, og við förum ef litli stubbur er orðinn hress. Á sunnudagsmorguninn ætlum við svo að brumma upp til Skiphóls og sækja Hrafnkel, enda erum við farin að sakna hans!!!
Jæja, gott yfirlit yfir síðustu 2 vikur. Lofa að skrifa skemmtilegan póst fljótlega. Þetta passar akkúrat, núna er litli lasni gormur farinn að skæla, búinn með lúrinn!!! Ciao í bili!

þriðjudagur, febrúar 07, 2006
Kjartan orðinn 2ja ára!!

Ótrúlegt hvað tíminn líður! Mér finnst eins og það hafi bara verið fyrir stuttu sem við Hrafnkell héngum á fæðingardeild Landsspítalans bæði í gleðivímu (og ég í verkjalyfjavímu), með risasólheimaglott á andlitinu og kynntumst þessari nýju mannveru!!!
Hann hefur heldur betur stækkað síðan!!! En það er ennþá sami svipurinn.
Hér var heljarinnar partý í tilefni dagsins á sunnudaginn. Hingað mættu 4 skvísur og 1 töffari til að halda upp á afmælið með Kjartani ásamt foreldrum. Þar að auki komu líka góðir krílalausir vinir okkar, sem létu sig hafa barnaafmæli þrátt fyrir krílaleysi! Og það var mikið stuð. Kökur og kræsingar á borðum, sungið fyrir afmælisbarnið sem sat dolfallið undir söngnum og fannst þetta skondið þegar hann átti að blása á kertin, svo skondið að hann reyndi ekki einu sinni að blása, svo mamman bara sá um þá hlið mála!
Kjartan fékk svo heilan helling af gjöfum og bar sig fagmannlega að við að tæta utan af pökkunum. Vissi strax hvað hann átti að gera!!! Amma Sigga og afi gáfu honum teiknitöflu og ýmislegt fleira, amma Sía sendi nýja sæng og sængurföt, flotta lopapeysu og fullt af nýjum bókum, og langamma og langafi gáfu honum peysu. Frá foreldrunum fékk hann sinn eigin hægindastól til að sitja í við vídeógláp. Svo fékk hann fullt af bókum, trukkabók frá Helgu og Sigurjóni, nokkrar skemmtilegar smábarnabækur frá Theodóru og Bríet, nornabók frá Svanhildi frænku og bók um týnd verkfæri og litabækur frá Jónu Dóru og fjölskyldu í Lyon. Ísak gaf honum lest og lestarteina og Lilja og Hanna gáfu gröfu og gröfukalla. Þá komu Óli og Laurence færandi hendi með bensínstöð/bifreiðaverkstæði, með lyftu og rennibrautum fyrir bíla og þessi græja hefur sko verið vinsælust af öllu dótinu!!! Eins og þið sjáið af upptalningunni þá hefur stofan verið yfirtekin af dóti Kjartans! Og enn leynast nokkrar gjafir á Íslandi...
En hér var fagnað fram á kvöld, gestunum tókst að hesthúsa megninu af veitingunum. Fullorðna fólkið skemmti sér á spjalli og börnin hreinlega rústuðu stofunni! Nóg var af dóti og bæði teiknitaflan og bensínstöðin voru vinsæl. Þá höfðum við blásið upp blöðrur sem voru út um öll gólf og það vakti líka mikla lukku! Vel heppnað partý og við þökkum enn og aftur fyrir barnið!!!
fimmtudagur, febrúar 02, 2006
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)