Þrátt fyrir hátt þreytustig um helgina og kalt veður vorum við samt mjög öflug og gerðum heilmikið.
Á föstudagskvöldið kom barnapían hún Cynthia og passaði guttana á meðan við hjónin fórum út að borða með Óla og Laurence á L'Auberg'in. Þetta er snilldar veitingastaður sem er sirka 5 mín frá okkur. Lítill, kósí, í algjörum sveitastíl, rómantískir litir, þykk gluggatjöld og síðir dúkar. Þar er alltaf eldur á hlóðum og steikurnar grillaðar á eldinum. Og matur er sko ekki af verri endanum. Endar er staðurinn vinsæll og maður þarf að bóka með sirka 2ja vikna fyrirvara. Við pöntuðum öll 4 rétta menu og fengum sko mikið fyrir peninginn. Alveg yndislegt kvöld! Á meðan hafði Cynthia það náðugt heima því báðir strákarnir steinsofnuðu bara rétt eftir að hún kom svo hún gat bara glápt á imbann....
Á laugardaginn skriðum við í seinna fallinu úr koju, en bara drifum okkur í föt og fórum á markaðinn eins og sagt var frá hér neðar. Tókum lestina sem Kjartani þykir alltaf jafn mikið ævintýri, byrjuðum svo á að fá okkur morgunkaffi og súkkulaðibrauð á Le Pain Quotidienne. Mikilvægur liður í markaðsferðum.
Síðdegið leið svo bara í leti og leikjum við strákana. Elduðum svo skötuselinn hans Óla og höfðum það náðugt.

Á sunnudeginum fékk pabbinn að sofa út á meðan við strákarnir fórum niður, fengum okkur morgunmat og horfðum á Grísla. Lékum okkur aðeins með myndavélina og höfðum það gott. Um hádegið fóru svo Hrafnkell og Kjartan í leikfimina á meðan við Tobbi hvíldum okkur.

Seinnipartinn skelltum við svo okkur í
Autoworld og skoðuðum
sýningu til heiðurs
Franquin, pabba Viggó viðurtans, Gorms og Svals og Vals. Sýningin var algjör snilld og þar mátti skoða útfærslur af hinum ýmsu hlutum úr þessum teiknimyndabókum, Gaffófóninn hans Viggós ásamt ýmsum uppfinningum hans, Gormahreiðrið og Gorm sjálfan,

Túrbóbílana þeirra Svals og Vals, flugbílinn hans Zorglúbbs og fleira og fleira. Við skemmtum okkur konunglega að skoða þetta og hina ýmsu muni sem voru til sýnis, fyrstu teikningarnar af ýmsum bröndurunum og fleira tengt þessum fígúrum.
Eftir Franquin sýninguna röltum við síðan um bílasafnið og skoðuðum gamla og góða bíla, bæði flotta og ljóta.

Kjartani fannst nú mest gaman að skoða útstillingar þar sem verið var að útskýra hvernig ýmislegt í bílum virkar og þar var allt sem snérist mest spennandi!!! En honum til ánægju fundum við líka bæði Luigi og Þjálfa (úr Bílunum) og pabbinn gat skoðað nokkra "litla sæta" bíla.