miðvikudagur, janúar 28, 2009

teskeiðar og vínarbrauð

Kjartan er við matarborðið og biður pabba að rétta sér teskeið. Pabbinn réttir skreytta skeið í teskeiðarstærð.

- þetta er engin teskeið! segir ungi maðurinn höstugur.
- jújú, víst, reynir pabbinn að malda í móinn.
- nei, maður gerir ekkert te með svona skeið, var svarið. Málið þar með útrætt.

Síðan tekur Kjartan til við að tína rúsínurnar úr hrísgrjónagrautnum og ég skýt að þeim fróðleiksmola að rúsínur séu þurrkuð vínber. Útskýri svo að maður geti gert þrennt við vínber: Borða þau, þurrka þau til að búa til rúsínur, eða pressa þau til að gera vín úr safanum.

Þá segir Kjartan: Og þegar maður setur brauð í vínið fær maður vínarbrauð!!!

sunnudagur, janúar 04, 2009

Ég tala til að lifa!

Kjartan var í stuði einn daginn og það kjaftaði af honum hver tuskan.

Mamman þurfti smá þögn og bað hann um að hætta að tala.

Svarið kom um hæl: Mamma, ég get ekki hætt að tala. Ég þarf að tala, annars er ég ekki til!!!

fimmtudagur, janúar 01, 2009

Gleðilegt ár!!!


Gleðilegt nýtt ár!!

Bestu kveðjur frá Tobba "ég er að sprengja", Kjartani "sprengjusérfræðingi" og foreldrum sem nú verða í öngum sínum um hver áramót!