Eitt það skemmtilegasta sem Kjartan gerir þessa dagana er að lita. Hann hefur engan áhuga á vaxlitum eða málningu, en tússlitirnir eru bestir. Hann situr kannski ekki lengi við, sirka 10 mínútur eru nóg, og framleiðir listaverk. Þau eru mjög abstrakt, í anda Jackson Pollock. Einn afraksturinn má sjá hér til hliðar, en þarna notar listamaðurinn blandaða tækni, tússliti, banana og slef, á pappír.Foreldrarnir eru auðvitað voðalega stolltir og geta ekki beðið eftir því að fjárfesta í römmum utan um listaverkin og koma þeim upp á vegg. Þið fáið auðvitað að fylgjast með framvindu mála, við birtum reglulega nýjustu listaverkin.

Hér má svo sjá listamanninn að störfum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli