Sýnir færslur með efnisorðinu viðgerðir. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu viðgerðir. Sýna allar færslur

miðvikudagur, apríl 23, 2008

Pípari í heimsókn

Kjartan er heima í dag enda frí á leikskólanum næstu dagana, bæði sumardagurinn fyrsti og svo eru leikskólakennararnir í námsferð.

Þeir bræður voru að leika sér í morgun, á meðan mamman, grútmygluð og syfjuð sat yfir kaffibollanum sínum og morgunblöðunum. Þá kom Kjartan skokkandi og heimtaði að fá gólftusku til að þrífa bleytu. Ég spurði að sjálfsögðu hvað hann hefði verið að sulla og svarið kom um leið: "Ég var ekkert að sulla, það var ofninn!!!"

Og það var rétt hjá kauða, ofninn inni hjá Tobba hafði lekið í nótt og þar var kominn stór pollur á gólfið. Við hringdum því í leigusalann og hálftíma seinna var hún búin að senda píparann sinn á svæðið til að skoða málið.

Allan tímann á meðan píparinn var að störfum stóð Kjartan yfir honum og samkjaftaði ekki. Píparinn kom varla að já-i né nei-i. En náði samt að spyrja hvort Kjartan ætlaði að verða pípari þegar hann yrði stór. Ég heyrði ekki svarið en það var langt....
Við viðgerðina þurfti píparinn að taka ofninn af og festa hann síðan aftur á. Á meðan hann var að því stóð Kjartan á stól fyrir aftan hann og gaf honum skipanir: "Pípari, settu tappann aftur í!!! Pípari, festu þetta aftur á! Pípari, gerðu þetta og gerðu hitt!!!

Mamman var flissandi inn í eldhúsi, veit ekki hvað píparanum fannst um litla áhugasama iðnaðarmanninn!!!

En ofninn er kominn í lag og nú er bara spurning hvort parketið þornar ekki og lagast að sjálfu sér, eða hvort það þurfi að skipta um það.