Sýnir færslur með efnisorðinu slys. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu slys. Sýna allar færslur

fimmtudagur, ágúst 14, 2008

Ferðalagamyndablogg #1

Fyrstu vikuna í ágúst vorum við familían á ferð á Norðurlandi í blíðskaparveðri. Fengum lánaðan sumarbústað í Fnjóskadal og höfðum þar bækistöðvar. Vorum nú ekkert of ferðaglöð, tókum því mjög rólega og höfðum það notalegt í fína bústaðnum. Strákarnir undu sér vel á rólónum, á flötinni kringum húsið eða pallinum. En við fórum líka í nokkra "útúrdúra", inn á Akureyri, í Kjarnaskóg, út á Húsavík og Tjörnes, kíktum á Goðafoss og samgönguminjasafnið á Ystafelli, og skoðuðum Dimmuborgir og Mývatn.

Ég held ég nenni ekki að skrifa ýtarlega ferðasögu, svo hér kemur myndablogg.

Fyrsta morguninn vöknuðum við í sól og blíðu. Morgunmaturinn var borðaður úti á palli. Svo var farið í pottinn!

Kjartan í Eyjafirði, rétt áður en ósköpin dundu yfir. Við fórum í smá bíltúr til að láta Tobba sofa, áður en við færum inn á Akureyri til að kaupa í matinn.
Nema hvað, Kjartan flaug niður stigann ofan af kirkjuloftinu í Laufási og fékk stærðarinnar gat á hausinn. Það blæddi og blæddi og við keyrðum í loftköstum á slysó á Akureyri!
Allt gekk þó vel, stráksi var skoðaður fljótt af súperhjúkkunni henni Önnu Maríu og það var nærri hætt að blæða úr sárinu þegar læknirinn kom. Sárið var límt saman og við svo send heim með birgðir af plástrum til að skipta um umbúðir.

Eftir allt dramað var ákveðið að halda í Brynju og kaupa ís á línuna. Okkur veitti ekki af smá áfallahjálp, aðallega foreldrunum. Kjartan heimtaði íspinna í staðin og fékk, enda stóð hann sig svo vel á slysó!


Tobbi afþakkaði hins vegar ekki ísinn, vildi helst borða sjálfur, með öllum þeim subbuskap sem því fylgdi.


Því næst var haldið í matarinnkaup. Við gerðum að sjálfsögðu gúrmet-stopp í súperdúpereðalbúðinni hjá Friðrik V. Mæli hiklaust með henni. Fyrst við komumst ekki í mat hjá Friðriki keyptum við bara hráefni í sælkeramáltíð hjá honum, marinerað lambakjöt, lambasoð í sósu og nýtýnda lerkisveppi sem enduðu í sömu sósunni.
Síðan tók við öllu venjulegri verslunarferð í Nettó.

Við heimkomu var ákveðið að slaufa öllum ofurkokkaplönum, enda allir dauðþreyttir eftir ævintýri dagsins og langt liðið á daginn. Það voru því grillaðar pylsur, bæði SS og kryddpylsur frá fyrrnefndum Friðrik.

mánudagur, júní 02, 2008

Strandferð

Við sóttum Kjartan til ömmu Síu eftir hádegið á laugardaginn. Þegar við komum var stráksi fljótur ða bjóða okkur í kaffi án þess að hafa ömmu sína með í ráðum, en hún sá alveg við því og bar á borð heljarinnar kræsingar með kaffinu. Kjartan hafi nefnilega gist hjá ömmu sinni á föstudagskvöldið og höfðu það gott saman, en á meðan héldu foreldrarnir matarboð og skemmtu sér vel.

Eftir kaffið héldum við í bíltúr út á Álftanes og fórum í fjöruferð. Létum vindinn ekkert aftra okkur, hann var bara hressandi.

Þeir bræður skemmtu sér hið besta, Kjartan óð um allt og tíndi fífla, leitaði uppi greinar og henti steinum í sjóinn.

Tobbi var yfir sig hrifinn af sjónum og vildi helst út í! Við vorum í fullri vinnu við að halda honum á þurru landi.

Eftir leikinn á ströndinni voru allir orðnir svangir svo haldið var aftur í Vestubæinn og komið við í Geimísbúðinni á Hagamel og þar sem allir fengu "gamla ísinn" og við gæddum okkur á ísnum í sólinni fyrir utan ísbúðina. Þeir bræður gátu að sjálfsögðu ekki setið kyrrir og voru að príla og klifra. Það endaði með því að Kjartan bæði flaug á hausinn og hruflaði á sér hnéð... og skömmu síðar féll hann fram af háum kanti sem þarna var, beint á ennið og fékk stærðarinnar kúlu. Eftir smá skæl og koss á meiddið var því lokið. Alveg ótrúlegt að hann hafi ekki meitt sig meira á síðara fallinu, ég var viss um að þar þyrftum við að fara með hann á slysó til að láta sauma hann saman.

Síðan héldum við heim á leið og tókum ömmu Síu með okkur. Heima elduðum við afasilung til að rýma fyrir meiri birgðum (afinn var nefnilega í veiðitúr). Marineruðum hann í olíu, sítrónusafa og kóríander, og grilluðum svo. Var þvílíkt góður, með kartöflum og salati.

laugardagur, júní 02, 2007

Nótt á slysó

Þetta var ævintýraleg nótt!

Tobbi vaknaði upp einu sinni sem oftar um hálf þrjú leytið, skælandi. Í svefnrofunum og myrkrinu læddist ég upp til hans, losaði hann úr kuðlinu neðst í rúminu, lagði hann út af með sængina yfir sér og stakk snuðinu upp í hann. Minn maður var sofnaður um leið. Læðist svo niður aftur og veit ekki fyrr en ég ligg öskrandi af sársauka og grenjandi eins og smábarn í miðjum stiganum, en þá hafði ég runnið í einu þrepinu og flogið á hausinn. Rak handlegginn (og rassinn) illilega í þrepin og var alveg að farast. Hrafnkell kom hlaupandi og reyndi að koma mér aftur í rúmið, en ég var nokkrum sinnum við það að líða út af, skjálfandi og skælandi af sársauka. Fyrst vildi ég nú bara fara aftur í rúmið, fékk mér verkjatöflu og setti kælikarlinn hans Kjartans á handlegginn... en eftir klukkutíma af sársauka, þrátt fyrir 2 verkjatöflur, og dofna og auma hendi, ákváð Hrafnkell að það væri nú gáfulegra að láta líta á þetta og sendi mig á slysó. Einhent keyrði ég á St-Luc og sat þar svo og beið innan um drukkin ungmenni. Biðstofan lyktaði svoleiðis eins og brugghús, en þau voru nú alveg til friðs. Ég beið eflaust í rúman klukkutíma og hafði sem betur fer verið svo forsjál að taka bók með mér. Undir 5 var loksins kallað á mig og læknirinn hóf að pota í mig og snúa hendinni á alla kanta. Þar sem ég æpti ekkert stórkostlega mikið og gat hreyft bæði fingurna og hendina, þá var úrskurðað að ég væri ekki brotin, heldur bara illilega marin. Hjúkkan varð ekkert smá fegin að þurfa ekki að sauma neitt saman eða setja í gifs enda mikið að gera hjá þeim þessa nótt. Svo ég var send heim með bólgueyðandi krem og sagt að binda um hendina fyrsta sólarhringinn og hlýfa henni aðeins. Um hálf 6 var ég svo komin aftur heim og undir sæng....

Get ekki sagt að ég sé mjög fersk í dag, ósofin, krambúleruð og bryðjandi verkjatöflur!