Í kuldanum um helgina vorum við voða dugleg. Skelltum okkur á danskan jólamarkað á laugardaginn sem er haldinn árlega hér í bæ og fengum ekta danska jólastemmingu beint í æð. Röltum um á markaðnum og keyptum smotterí, smá jólaskraut, aðventukerti og jólasokka handa Kjartani. Hittum svo Helgu og Sigurjón og Steinu með skvísurnar sínar og fengum okkur smörrebröd og öl. Kjartan fékk auðvitað danskar pylsur og honum þóttu þær ljúfar. Hins vegar fékk hann ekkert öl og var því harðlega mótmælt!
Á sunnudaginn brugðum við svo undir okkur betri fætinum og brunuðum til Lúxembúrgar, en Jóhanna, Nonni og Matthildur eru búin að koma sér þar fyrir og ætla að búa hérna megin Atlantshafsins næstu árin. Nonni var nú ekki heima en þær mæðgur voru í góðum gír og tóku á móti okkur í stóra rauða húsinu sínu með glæsilegum hádegisverði. Kjartan og Matthildur voru fljót að rifja upp gömul kynni. Í fyrstu leist Matthildi ekkert á þennan gaur sem var að hertaka dótið hennar og standa í ýmsum skringilegheitum eins og að fara með dúkkukerruna í rennibrautina. Var sífellt að kalla á Kjartan "má ekki"! Algjör rófa! Og eins og krökkum sæmir þurfti auðvitað að berjast um sama dótið. En þau skemmtu sér nú ágætlega saman.
Við vorum svo voða dugleg og skelltum okkur í bæinn í kuldanum, tókum út miðbæinn í Lúx og leist bara vel á. Verslunardýrið kom upp í mér og mér sýnist að það sé hægt að skemmta sér konunglega þar í verslunarleiðöngrum. Kjartan og Matthildur voru svo heppin að finna skemmtilegan leikvöll á einu torginu og svo tókum við góðan göngutúr í "Gilinu" þar sem Kjartan fékk að eyða batteríinum. Áður en við brunuðum heim á leið aftur skelltum við okkur út að borða á ítalskan stað í næsta nágrenni við þau. Borðuðum pizzur og krakkarnir skemmtu sér konunglega við að hlaupa hring eftir hring um staðinn. Mikið stuð! Frábær dagur. Alveg yndislegt að hitta þær mæðgur aftur og mér þykir alveg ótrúlega gott að vita af þeim bara 2 tíma í burtu.
Annars eru bara rólegheit hjá okkur. Ég sit við að læra og dauðleiðist, langar miklu frekar að vera að jólast, kaupa gjafir, bara smákökur og föndra. Tek það með trompi loksins þegar ég fæ leyfi til! Svo hrannast inn jólaboðin og jólaböllin, verður nóg að gera í desember.
Kjartan var heima í dag, fékk niðurgang í gær og ég beðin vinsamlegast að halda honum heima til að passa upp á smit. En þetta hefur verið eitthvað tilfallandi því það amar ekkert að barninu. Svo hann hefur verið að gera mömmu sína gráhærða í allan dag. Við fórum nú í stóran göngutúr í morgun út á róló og á leiðinni heim komst Kjartan í feitt því við gengum framhjá vegavinnusvæði þar sem var nóg af gröfum og trukkum. Hann vildi helst ekki fara þaðan.
Núna situr hann svo í villidýrastólnum og les lögfræðidoðranta. Þarf að vísu að skipta um bók á 2 mínútna fresti, fara út úr stólnum, skila fyrri bókinni, sækja nýja, setjast aftur í stólinn og lesa. Algjör rófa!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli