þriðjudagur, ágúst 28, 2007

Brandarinn í allri sinni dýrð

Kjartan æfði sig og æfði í allan gærdag til að geta sagt pabba sínum brandara þegar hann kæmi heim. Og það tókst! Hann lærði allan brandarann utan að. Sumir hlutir skoluðust að vísu aðeins til, að sjálfsögðu er það trukkur sem keyrir yfir tómatinn í útgáfu Kjartans! Tobba finnst brandarinn alltaf jafn fyndinn og hlær hátt. Hinum sem hlæja ekki eins mikið er skipað að hlæja meira í hvert sinn sem brandarinn er sagður. Við foreldrarnir skorum frekar lágt á húmor-mælikvarða Kjartans.

mánudagur, ágúst 27, 2007

Brandari

Kjartan hefur frá því í sumarfríinu á Íslandi minnst á það að hann ætli að segja brandara, eflaust eitthvað sem amma og afi, frændur eða frænkur á Íslandi hafa verið að segja við hann.
En alltaf þegar ég svaraði: "segðu mér brandara" þá kom ekkert svar. Svo ég ákvað að bæta úr þessu og kenndi drengnum þann klassíska brandara um tómatana tvo sem eru að labba yfir götu. Nema hvað, hann kann ekki að segja allan brandarann sjálfur, bara lokalínuna: "Oj bara, tómatsósa".

Og núna fór hann inn til Tobba til að segja honum brandara, stendur við rúmið hans og endurtekur aftur og aftur: "Oj bara tómatsósa!!!" Og Tobbi skellihlær í hvert og eitt einasta sinn!!!!

Bómullarbrúðkaup

Fyrir að verða 2 árum síðan stóðum við í þessu - einn skemmtilegasti dagur lífs míns!

Í dag höldum við því upp á 2ja ára brúðkaupsafmæli - eða bómullarbrúðkaup. Ætlunin var að halda út að borða í kvöld og skála fyrir árunum tveim, en sökum barnapíuhallæris hafa út að borða hátíðarhöld færst fram á fimmtudag. Þess í stað verður kokkað pasta à la sorrentina (í stíl við brúðkaupsferðina).

Tekið er við hamingjuóskum í allan dag!

föstudagur, ágúst 24, 2007

10.000


Fyrir ári síðan, nánar tiltekið þann 25. júlí 2006, fékk ég (og við) nýja myndavél.





Ári síðar, eða þann 30. júlí 2007 vorum við búin að taka 10 þúsund myndir á vélina og teljarinn því byrjaður aftur frá byrjun! myndin sem fylgir er sú 10þúsundasta, af Tobba í fanginu hjá langömmu.




10 þúsund myndir á einu ári, það er þokkalegt!!!



Síðan hafa BARA bæst við 750 myndir! Það er kannski ekkert skrýtið að það taki mann langan tíma að sortera sig í gengum myndasúpuna og ákveða hvað fari á netið.

þriðjudagur, ágúst 21, 2007

Tómatar

Á þessu heimili hefur frasinn "seint sýður í vöktuðum potti" fengið yfirfærða merkingu. Í vor settum við niður tómatplöntur sem Helga Ferd vinkona okkar færði okkur, 2 kirsuberjatómatplöntur og 2 plómutómataplöntur. Síðan þær fóru í mold höfum við bara verið að bíða... og taka myndir af þeim!

Þegar við komum heim frá Íslandi var eitthvað af kirsuberjatómötunum orðnir rauðir svo við smökkuðum þá. Þvílíkt lostlæti!! Dísætir og hrikalega góðir. Svo nú sitjum við bara og bíðum eftir fleirum...

Og við bíðum spennt hvort plómutómatarnir fari nú ekki að roðna þrátt fyrir sólarleysið í Brussel. Einn er nú aðeins farinn að taka lit eins og sjá má á myndinni svo ég örvænti ekki - amk ekki ennþá!!!

Nema hvað, "seint roðna vaktaðir tómatar"!!!!

mánudagur, ágúst 20, 2007

Klipping

Guttarnir á heimilinu voru orðnir frekar loðnir eftir sumarið. Þeir voru reyndar orðnir loðnir fyrir Íslandsferðina en við ákváðum að gera ekkert í málunum því þeim veitti eflaust ekki af hárinu til einangrunar norður á Ströndum. En þegar heim var komin var algjörlega kominn tími á úrbætur.



Á laugardaginn var því sett upp klippistofa úti í garði og báðir guttarnir snoðaðir.


NB! Á þessari mynd er Kjartan að brosa sérstaklega til ömmu sinnar.

Lac de Genval og fiskur í salsa verde

Miðvikudagurinn var frídagur hér í Belgíu - held það sé sá dagur sem kallast Boðunardagur Maríu, allaveganna eru kaþólikkarnir að hylla Maríu Mey þennan dag - og í tilefni af því að Hrafnkell þurfti ekki í vinnuna höfðum við það náðugt heima en fórum svo í smá leiðangur. Ókum til Genval og röltum okkur í kringum vatnið þar. Strákarnir skemmtu sér konunglega, Kjartan við að henda öllu lauslegu út í vatnið, hvort sem það voru steinar eða spýtur, og Þorbjörn við að fylgjast með aðförum bróður síns. Það skondna var að í hvert sinn sem Kjartan fór að henda í vatnið komu endurnar á mikilli siglingu, greinilega í von um æti. En þær hefðu betur haft hjálma á hausnum!!!!
Miðja vegu settumst við niður og fengum okkur hressingu en ákváðum svo bara að halda áfram allan hringinn, vatnið er svo lítið!

Hress og endurnærð komum við svo heim og dunduðum okkur við að grilla fisk, sem við svo borðuðum með salsa verde og drukkum með Sancerre-vín frá Mellot vini okkar. Ljúfur endir á deginum.

Fiskur í salsa verde er algjör snilldaruppskrift, einföld og góð - og meinholl!!! Ég fékk hana fyrst frá Helgu Hrönn vinkonu minni, en þau Grímur höfðu fyrst fengið þennan rétt á veitingastað í Víetnam (eða var það Kambódíu).

Þið takið bara góðan fisk - ég hef notað bæði þorsk og rauðsprettu - penslið hann með safa úr 1/2 sítrónu og svo ólífuolíu, saltið og piprið. Grillið svo.

Síðan er búið til salsa verde:

  • 1 bolli (uþb. 2 dl) ferskar kryddjurtir eins og basil, mynta, marjoram (oregano) og timian, saxaðar
  • 2 msk capers, saxað
  • 1 hvítlauksrif, smátt saxað
  • 4 msk extra virgin ólífuolía
  • 2 msk sherry vínedik
  • salt og pipar

Blandið saman kryddjurtunum, capersinu, hvítlauknum, ólífuolíunni og edikinu í skál. Kryddið með salti og pipar og kælið.

Fræhreinsið 2 tómata og skerið í teninga.

Saxið graslauk eða vorlauk.

Skellið fiskisteik á hvern disk, setjið gott lag af Salsa Verde yfir og stráið loks tómatteningum og vorlauk eða graslauk yfir. Berið fram og njótið. Algjör snilld!!!!

sunnudagur, ágúst 19, 2007

Við erum ekkert hætt að blogga

Eins og titillinn ber með sér er ég bara að láta vita að við erum ekkert hætt í blogginu, bara smá pása sökum tæknilegra vandamála. Og þegar dyggir aðdáðendur eru farnir að kvarta yfir skorti á bloggfærslum er líklega kominn tími á að bæta úr því.

ATH! Það er líka tekið við athugasemdum á blogginu :-D



Við erum komin aftur heim í heiðardalinn eftir góða Íslandsdvöl, 2 vikur á Klakanum. Þar bar helst til tíðinda 6 daga Hornstrandaferð þar sem Tobbi fór að labba með stuðningi og Kjartan leit á Hlöðuvíkina sem "garðinn sinn"! Þeir bræður fóru í fyrstu löngu siglinguna og Kjartan meig í saltan sjó. Kjartan fór líka og veiddi silung með afa og foreldrarnir komust í 8 tíma göngu á Hælavíkurbjarg.





Í Reykjavíkinni var líka ýmislegt brallað. Þeir bræður fóru á róló með ömmu, og léku tímunum saman út í garði, Kjartan og amma Sía fóru í fjöruferðir og foreldrarnir fengu smá barnlausan tíma, hittu vini, fóru í matarboð og mættu í eitt glæsilegt brúðkaup hjá Lúxurunum.





Að vanda var Íslandsdvölin alltof stutt og því miður gafst ekki tími til að hitta alla sem maður vildi eða komast yfir allt á "to-do" listanum. En þetta verður svo sem ekki í síðasta sinn sem við komum til Íslands.