Sýnir færslur með efnisorðinu tónleikar. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu tónleikar. Sýna allar færslur

fimmtudagur, október 11, 2007

Lífið eftir afmæli....

Ég veit nú ekki hvort það er hægt að tala um líf eftir barnaafmælisveislu, það var varla líf á þessum bæ. Á mánudaginn var ég algjörlega eftir mig, enda búin að eyða orkunni í að gera veisluna sem skemmtilegasta, nema dagurinn fór ekki í neina leti, heldur tiltekt og skúringar. En slík óskemmtilegheit fylgja víst í kjölfarið á skemmtilegheitunum.....


Reyndar get ég ekkert kvartað því ég fékk skemmtilega pásu á mánudagskvöldið. Stebba frænka kom til okkar í 3 nætur, því hún var á fundi hér í borg, og á mánudagskvöldið fórum við stelpurnar saman út að borða og skemmtum okkur konunglega í slúðri og öðru spjalli.


Nema hvað, á þriðjudagsmorgun vöknum við Tobbi bæði með magapest. Litla greyið byrjaði daginn á því að æla yfir allt eldhúsgólfið og hafði þar að auki ælt í rúmið sitt um nóttina, nema svefndrukknir foreldrarnir höfðu ekki tekið eftir því í myrkrinu - og þið getið rétt ímyndað ykkur samviskubitið sem mamman hefur yfir því!!!! Svo við Tobbi eyddum deginum heima, sofandi mest allan daginn. Ég var svo slöpp að ég þurfti að kalla Hrafnkel heim til að passa strákana og hreinlega lá í móki í rúminu langt fram á kvöld.


Og þetta var dagurinn þar sem nóg var á dagskrá, kaffihúsadeit við stelpurnar í morgunkaffi, hádegismatur og búðarráp með Stebbu eftir hádegið... og svo ætlaði Stebba að passa strákana fyrir okkur á meðan við færum á Police-tónleika í Antwerpen!!! Svo ég lá heldur súr í rúminu yfir að missa af öllu þessu og þá sérstaklega tónleikunum!!!! Seinnipartinn reyndum við nú að koma miðunum út þar sem augljóst var að ég færi ekki langt, nema enginn gat stokkið inn og nýtt sér miðana með svo stuttum fyrirvara.....


Haldið ekki að Óli hafi þá ekki hringt með mjög gleðilegar fréttir, amk fyrir okkur! Laurence hafði séð í fréttunum að Sting hafi líka orðið veikur svo það var búið að aflýsa tónleikunum!!!! Ekki skemmtilegt fyrir hann... en gleðifréttir fyrir okkur!!!! Ætli greyið hafi ekki bara fengið í magann?


Svo þriðjudagskvöldinu eyddum við í rólegheitum og spjölluðum við Stebbu um alla heima og geima. Hún hélt svo aftur heim til Íslands á miðvikudagsmorgun. Kjartani finnst hún vera svo skemmtileg að hann hágrét við útidyrnar eftir að hún var farin!

föstudagur, mars 30, 2007

Meistari Ferry

Í gær fórum við hjónakornin og sáum meistarann Bryan Ferry á tónleikum í Antwerpen. Ömmurnar mættu í hús rétt fyrir brottför okkar, við náðum að kasta á þær kveðju og leggja þeim lífsreglurnar með stubbana, en síðan vorum við stokkin af stað.

Tónleikarnir voru í Konigin Elizabethzaal í Antwerpen og var þetta eins og að sitja í Þjóðleikhúsinu að hlusta á meistarann. Mjúk og þægileg sæti og allt voða fínt og flott. Sætin stoppuðu nú samt ekki fólk í að dansa við lögin, eins og jakkafataklædda bankamanninn "okkar" sem stóð á milli sætaraða nærri alla tónleikana og dansaði af innlifun!

Tónleikarnir voru alveg meiriháttar, Ferry-inn stóð alveg fyrir sínu, tók lög af nýju plötunni og þar sem við höfum verið að hita upp og hlustað á plötuna í þaula undanfarið, þá þekkti maður flest lögin. Svo var hann duglegur að taka eldra efni og leika sér svolítið með það, auk þess að taka gamla góða standarda!!! Hann tók góðan slatta af þeim í restina og allur salurinn var staðinn á fætur að dansa!!!! Meiriháttar.

Eftir tónleikana settumst við svo inn á cheezy ítalskan stað og fengum okkur smá í gogginn áður en við brunuðum aftur heim til Brussel...