Sýnir færslur með efnisorðinu gestapennar. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu gestapennar. Sýna allar færslur

mánudagur, september 28, 2009

Fleiri gestapennar

Ég stal þessum texta úr dagbók barnanna á Furðulandi þar sem verið er að lýsa mikilli landkönnuðarferð í Laugardalinn:

Þegar allir hópar voru komnir með fullan poka af laufum fórum við að skoða tjarnirnar í Grasagarðinum og endurnar. Og þar varð leikurinn mjög fjölbreyttur og skemmtilegur. Sumir fóru að fleyta laufblöðum á tjörninni og horfðu á þau sigla, aðrir stikluðu á steinum eða hentu steinum í vatnið. Sumir fengu sér vatnssopa úr gosbrunninum á meðan aðrir veltu fyrir sér pípulögnunum í miklum rannsóknarleiðangri, þar sem einhverjum varð að orði að þeir hefðu komist að “ leyndarmálinu”.
Getið þið ímyndað ykkur um hvernig er átt þegar talið berst að pípulögnum????

Mér dettur bara einn í hug og nafn hans byrjar á Kjartan!

Ritstjóra barst bréf....

... þar sem afinn segir frá:

Kjartan og afi voru úti í garði að leika, Kjartan vildi byggja virkjun og koma rafmagni í stóra tréð úti í garði. Svo þegar byggingarframkvæmdir eru á fullu og afa náttúrlega skipað fyrir verkum hvað hann ætti að sjá um og gera, þá segir Kjartan allt í einu: "Afi, þú mátt ekki koma hérna nálægt, það er nefnilega rafmagn í þessu. Þú þolir ekki rafmagn því þú ert svo gamall! Bara ég því ég er rafmagnsmaðurinn!!!"