Tobbi: Mamma, hvaða ber er núna?
Mamman: Hvaða ber? (Og fattaði svo hvað var átti við þar sem við vorum að ræða um jólin). Það er nóvember.
Tobbi: Er nóvember? Kemur svo desember?
Mamman: Já, svo kemur desember þegar nóvember er búinn.
Tobbi: Koma þá jólin?
Mamman: Nei, ekki alveg strax. Jólin eru ekki fyrr en það eru búnir 24 dagar í desember.
Tobbi: Kemur desember á morgun?
Mamman: Nei, ekki á morgun, en eftir 2 daga.
Tobbi: Svona mikið (og réttir út 2 fingur)? Koma þá jólin?
Mamman: Nei, fyrst kemur helgarfrí, og svo kemur næsta vika, svo næsta vika, svo önnur vika og svo nokkrir dagar og þá koma jólin.
Tobbi: Mamma, eftir tvo daga kemur desember, svo kemur helgarfrí og svo koma jólin!
miðvikudagur, desember 01, 2010
þriðjudagur, október 19, 2010
Leikrit dagsins #45 - Morgunverk sólarinnar
Mamman og Tobbi röltu saman á leikskólann í morgunsárið, í morgunskímunni og 2 gráðu hita.
Tobbi: Það er myrkur.
Mamma: Nei nei, það er að birta, myrkrið er að fara.
Mamman lítur upp í himininn og bendir: Sjáðu, þarna er blár himinn.
Tobbi, eftir smá umhugsun: Af hverju er himininn ekki gulur?
Mamman lítur í kringum sig og sér glitta í gulan himinn í austri þar sem sólin er að koma upp. Bendir og segir: Sjáðu Tobbi, þarna er himininn gulur því þarna er sólin að koma upp. Sólin er að vakna og byrja að skína á okkur.
Tobbi: Sólin er að vakna. Hún er að teygja sig og koma út úr rúminu. Svo fer hún fram og fer að klæða sig. Þá getur hún lýst á okkur. Og þá verður hlýtt úti!

fimmtudagur, september 30, 2010
4 ára

curious
Originally uploaded by ellainthesun
Þessi ungi maður er orðinn 4ra ára og heldur betur stoltur af því "að vera orðinn stór"!
Vá hvað tíminn líður hratt!
miðvikudagur, september 01, 2010
Dagur
Tobbi er mikið að spá og spekúlera í orðum þessa dagana.
Í morgun kom hann upp í eldsnemma og byrjaði að brölta ofan á mér og allt í kringum mig. Ég sussa á hann og segi, Tobbi það er nótt! Þá lagðist hann rólegur niður og þóttist sofa.
Eftir dágóðan tíma og mikla þolinmæði af hálfu Tobba, þá loksins fer ég að sýna merki um að fara fram úr. Þá spyr Tobbi: Mamma, er núna kominn dagur?
Svo bætir Tobbi við stuttu síðar: Það er stór kall á leikskólanum sem er líka Dagur, alveg eins og dagurinn sem er uppi í himninum fyrir ofan skýin!
En einn leikskólakennarinn hans Tobba heitir Dagur.

þriðjudagur, ágúst 17, 2010
Breyttir tímar
Nú eru tímarnir heldur betur að breytast og börnin að stækka. Kjartan er að byrja í skóla! Ekki laust við að foreldrarnir séu með kvíðahnút í maganum og voni það besta að allt gangi vel.
Þorbjörn er svo að færast yfir á stóru deildina, byrjaði í aðlögun á Dvergalandi strax eftir sumarfríið.
Eftir fyrsta daginn á Dvergalandi sagði hann við mig þegar ég sótti hann: Mamma, þegar maður er á Dvergalandi, þá er maður dvergur!
En Tobba liggur mikið á að stækka og segist alltaf vera mjög stór. Hann t.d. tilkynnti afa sínum í sumar að hann væri ekki lengur afastubbur, heldur afastrákur!
Helst vill hann vera miklu stærri en hann er. Þannig að í hans huga er dvölin á Dvergalandi tímabundin því ef hann er spurður þá er hann að fara í Langholtsskóla!

sunnudagur, júní 20, 2010
Svona á maður að hrjóta!
Tobbi var að túmla í mömmu og pabbabóli, skreið undir sængina og þóttist sofa.
Tobbi: Ég er ljón. Ljónið er að sofa. Það er að hrjóta.
Tobbi: Á ég að sýna þér hvernig maður á að hrjóta?
Maður gerir bara svona (grúfir sig niður undir sænginni), svo lokar ljónið augunum og svo gerir maður svona (gerir afar krúttleg hrotuhljóð). Þá er maður að hrjóta.

Laus tönn
Kjartan gat ekki sofnað. Endaði á að væla og skæla yfir því að vera illt í tönninni.
Mamman í áhyggjukasti fór auðvitað inn til hans að tékka á málunum. Eftir smá umtal fékkst hann loks til þess að benda mér á tönnina sem honum væri illt í og reyndist það vera önnur framtönnin í efri góm. Ég fór að pota aðeins í tönnina og uppgötvaði þá að hún var laus, sem og báðar framtennurnar í neðri góm.
Ég sagði honum að hafa ekki áhyggjur, tönnin væri bara laus og bráðum myndi hún detta. Skelfingarsvipur kom á Kjartan og ég vissi ekki hvert hann ætlaði, svo illa leist honum á þetta.
Þá útskýrði ég fyrir honum að barnatennurnar væru að detta en á bak við væru aðrar tennur, fullorðinstennur, sem kæmu í staðin. Honum leist ekkert frekar á þá hugmynd.
Þá bætti ég við að þegar tönnin væri laus, þá tæki maður hana og stingi henni undir koddann áður en maður færi að sofa, svo um nóttina kæmi tannálfurinn og gæfi manni pening í staðinn fyrir tönnina. Þá hýrnaði heldur betur yfir ungum mönnum og honum leist betur á hugmyndina um að tönnin myndi losna.
Bætti svo við: Það er örugglega ekkert auðvelt að vera tannálfur. Vera svona pínulítill og þurfa að klifra alla leið upp í rúmið mitt með peninginn!

Leikrit dagsins #44 - Við skulum spyrja það!!
Tobbi: Mamma, ertu með barn í maganum?
Mamman: Nei. Ert þú með barn í maganum?
Tobbi: Nei, en Tóta frænka er með barn í maganum. Litla barnið kemur út úr maganum þegar afmælið mitt er búið í september.
Mamman: Já, er það?
Tobbi: Já, þegar afmælið mitt er búið, þá kemur litla barnið.
Löng þögn.
Tobbi: Hvað heitir litla barnið?
Mamman: Ég veit það ekki.
Tobbi: Við skulum bara spyrja það þegar það kemur þegar afmælið mitt er búið í september!!!

föstudagur, maí 21, 2010
Geyma peninga í vinnunni
Yfir morgunverðarborðinu var verið að ræða um vinnu og peninga. Strákarnir voru ekkert á því að mæta í leikskólann og nöldruðu yfir því, svo við útskýrðum fyrir þeim að við þyrftum að mæta í vinnuna og þeir gætu ekki verið einir heima. Mamma og pabbi færu í vinnuna því við fengjum peninga í staðin og fyrir peninga gætum við keypt mat og föt og fleira. Mikið var rætt um þessi mál fram og aftur og allir sáttir við að fara í leikskólann.
Svo heyrist í Tobba stuttu síðar: Við þurfum að fara í útifötin, og fara í vinnuna til að sækja peninga!!!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)