Á laugardaginn upplifðum við svo í fyrsta skipti að sjá barnið okkar í sykursjokki. Það var sko upplifun!!! Við fórum í 2ja ára afmæli til hennar Hönnu og þar var boðið upp á allskyns kræsingar, súkkulaðiköku, pönnsur og fleira gott. Kjartan fékk auðvitað að smakka á öllu sem hann vildi og skemmti sér konunglega við að gaurast innan um allar skvísurnar. Þegar við fórum fékk Kjartan svo sleikjó sem hann saug af mikilli áfergju á leiðinni heim. Þegar heim var komið var barnið orðið alveg spinnegal. Hann hljóp út um allt, klifraði upp veggina og hreinlega hljóp í hringi. Við vorum svo orðlaus, það var alveg ótrúlegt að sjá barnið. En sem betur fer leið þetta hjá og hann sofnaði að lokum, en miklu seinna en venjulega. En í framtíðinni verður stjórnað betur hvað hann fær mikið af sykri!!!!
Annars var helgin okkar mjög viðburðarík. Á föstudagskvöldið skelltum við okkur í óperuna, og það var sko upplifun. Ótrúlega flott hús, byggt af honum Polla (Leopold II), allt í gulli og flúri. Það var alveg þess virði að fara bara til að sjá húsið. En sýningin var líka mjög skemmtileg, Il Viaggio a Reims, full af húmor og skrautlegum karakterum. Skemmtilegt kvöld og við sofnuðum ekki þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar um að slíkt myndi gerast, enda þreyttir ungbarnaforeldrar á ferð. Á laugardagskvöldið var svo matarboð og spilakvöld með Helgu og Sigurjóni. Popppunktur var dreginn fram og að sjálfsögðu sigraði Hrafnkell okkur. Ég fer að efast um að þau hjónakornin vilji spila við okkur aftur. Kannski er ég svona mikill masókisti en mér þykir mjög gaman að spila Popppunkt þó ég sjái fram á að vinna aldrei spilið!!!
Á sunnudaginn var svo enn eitt vínsmakkið. Fórum til hans Willy Goorden vinar okkar sem bauð upp á Búrgúndarsmakk. Sirka 15 vín öll frá árinu 2003. Þarna fann maður sko hvað það er mikill fjölbreytileiki í vínum... og við fundum nokkur góð!
Nú erum við svo bara farin að hlakka til næstu helgar. Ég sit við að læra, aftur!!! Enda eins gott, á að skila 3ja og 4ða hluta af annarverkefninu 29. nóv og "miðannarprófinu" í hinum kúrsinum 28. nóv! Hef tvær vikur svo það er eins gott að spíta í lófana. Hins vegar vildi ég miklu frekar vera komin á kaf í jólaundirbúning, föndur, smákökubakstur og jólagjafaleiðangra enda bara 37 dagar til jóla!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli