sunnudagur, október 30, 2005

Framlenging á sumrinu

Hér er bara ekkert jólalegt svo ég er alveg búin að missa töluna á því hvað það eru margir dagar til jóla. Hér eru sól og rúm 20 stig og búið að vera svoleiðis veður síðustu vikuna. Við Kjartan erum þvílíkt búin að njóta þess í vikunni og núna um helgina drógum við Hrafnkel með okkur í að sleikja sólina.

Í gær fór familían í mega búðarferð. Fórum hist og bast um bæinn og birgðum okkur af ýmiskonar undarlegum tækjum og tólum. Fórum m.a. í húsgagnaverslun sem við rákum augun í um daginn í leit okkar að ísbúð. Húsgagnaverslunin var flott, full af allskyns Art Nouveau munum, m.a. einni kommóðu sem ég hef mikinn augastað á. Búðina rak alveg eldgömul kona, hún var eflaust að nálgast 100, elti okkur um búðina á meðan við skoðuðum. Og fyrst við vorum í nágrenninu fengum við okkur nú einn ís á mann. Fórum svo í George Henri garðinn og röltum þar um. Virkilega skemmtilegur garður og mjög skemmtilegt leiksvæðið. Kjartan var á milljón og fór óhikað í rennibrautina, sem var nú samt ansi löng og mjög há! Engin hræðsla á mínum manni.
Í dag tókum við röltið í bænum. Fengum okkur kaffi og bakkelsi á Grand Sablon, röltum svo um Mont des Arts og leyfðum Kjartani að leika sér í tröppunum og skúlptúrunum. Röltum aðeins neðar í bæinn og fundum eina uppáhalds te-búðina mína, fórum svo til baka rue Haute og upp að dómhúsinu. Voða notalegur labbitúr í góða veðrinu og bærinn var fullur af fólki að spóka sig í góða veðrinu.
Svo erum við búin að vera rosalega dugleg að taka til í garðinum. Nú er hann nýsleginn, búið að klippa alla kanta, eitra fyrir helv... brenninetlunum og sópa laufin. Kjartan hefur auðvitað notað tækifærið og leikið heilmikið úti. Við erum í boltaleik og bílaleik, rólum og rennum. Hann færir sig sífellt upp á skaftið, hann er farinn að reyna að senda ýmislegt fleira en sjálfan sig niður rennibrautina, boltarnir hafa flogið niður en erfiðara hefur reynst að koma bílnum upp stigann til að láta hann renna niður. Ýmis áhættuatriði eru sífellt að vera meira spennandi og ég bíð bara eftir því að þurfa að bruna upp á slysó einn daginn!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli