föstudagur, október 07, 2005

Haust og traffík

Hér er komið haust. Það er á hreinu. Það er kalt úti og ég er alla daga í nýju fínu lopapeysunni minni, annars krókna ég við lærdóminn.
Í dag er samt extra kalt, það er þvílík þoka að maður sér varla næstu hús. Og út í þessa þoku fórum við fjölskyldan af stað extra snemma í morgun. Það eru nefnilega verkföll í Belgíu í dag, engir strætóar, lestir, metró, allir bankar, pósthús og súpermarkaðir lokaðir! Voða fjör!
Svo við fórum af stað í morgun um 20 mínútur í 8 að skutla Hrafnkatli í vinnuna. Umferðin var nú ekki svo slæm, við vorum bara 50 mínútur þessa leið sem venjulega tekur korter. Svolítil stappa en mjakaðist þó áfram. Svo voru göturnar auðvitað auðar á leiðinni til baka svo Kjartan var alveg kominn tímanlega á crèche. En einmitt á leiðinni til baka var ég fegin að við vorum snemma á ferðinni, því þá voru komnar miklu lengri raðir! Það verður svo fjör að sjá hvernig þetta verður í kvöld. Við Kjartan förum að sækja Hrafnkel og svo ætla þeir feðgar að skutla mér í tíma. Þriðjudagstíminn minn var nefnilega færður í þessari viku. Venjulega er alveg heví traffík á þeim tíma sem ég fer í skólann, veit ekki hvernig það verður þegar engar almenningssamgöngur eru og ALLIR á bílum! Úff púff!

Kjartan er kominn í fína rútínu á crèchinu. Nú bara hoppar hann glaður og kátur í fangið á fóstrunum á morgnana. Stundum þarf hann nú að hafa með sér snuð eða bangsa. Í morgun voru menn frekar súrir, vöknuðu snemma og höfðu verið að vakna í nótt, svo hann fór bæði með snuddu og bangsa með sér. Algjör rófa. Eflaust miklu skemmtilegra að vera þar en einn heima hjá mömmu, í dag ætluðu þau að fara að mála og baka pönnukökur. Í gær var afmælisveisla og lítill stubbur kom heim úttroðinn af köku. Voða stuð.

En ég er farin í námsbækurnar... miðannarprófin bíða handan við hornið!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli