... að blogga sirka vikulega? Smá lífsmark héðan úr Brusslu, við erum bara svo busy þessa dagana að við megum ekki vera að fréttaflutningi. Ég er samt alltaf að hugsa um innihald næsta bloggs, en svo gefst aldrei tími til að pára það niður.
Tíminn. Tíminn líður líka hratt. Allt í einu er bara kominn október, mér fannst september vera að byrja í gær! Og ég sé á teljaranum að Kjartan er 20 mánaða í dag. Vá! Mér finnst svo stutt síðan hann var pínulítill ungi sem lá bara og hjalaði. Nú er sko hlaupið um allt, kjaftað, sungið og leikið. Og er alltaf brosandi.
Nýjasta nýtt hjá litlum manni er að telja. Honum finnst voða gaman að telja. Ömmur hans byrjuðu á þessu í sumar, að telja tásurnar og puttana. Nú réttir hann manni tásurnar svo maður geti talið þær og það þykir alltaf jafn fyndið. Hann og pabbi hans eru svo alltaf að telja tröppurnar þegar þeir fara upp og niður stigana. Og núnar er lítill maður farinn að telja sjálfur. Það heyrist alltaf eeen, vei, dí, vjo, .... Algjör rófa. Orðin eru líka öll að koma meir og meir. "Meia" er mjög vinsælt, sérstaklega þegar súkkulaðikaka á í hlut.
Aftur að busíinu. Við vorum áfram heima á fimmtudaginn en komumst út úr húsi á föstudaginn, svo sá dagur fór í stúss, leita að afmælisgjöf fyrir litla vinkonu, kaupa í matinn fyrir helgina og fleira skemmtilegt. Hef sjaldan séð barnið jafn ánægt yfir að komast í bílinn og út að keyra. Við fjárfestum líka í koppi því nú á að fara að prófa það. Koppurinn varð strax að vinsælu leikfangi og minn maður vissi alveg að maður átti að setjast þarna á. Næsta skref er svo að læra að pissa í koppinn.
Á laugardaginn fórum við á markaðinn eins og venjulega og í búðir. Húsmóðirin var m.a. kom í snyrtivöruþrot eftir langa inniveru og svona ýmislegt smálegt sem þurfti að redda. Örkuðum klyfjuð heim, m.a. með síðustu leifarnar af góðu "hversdagsvíni" sem við römbuðum á um daginn hjá Phil. Seinnipartinn fórum við svo í 2ja ára afmæli til Hönnu skvísu. Það var voða stuð, fullt af litlum (og stærri) krökkum, og Kjartan hafði nóg að gera. Hitti þar m.a. Jón William en þeim þykir orðið svo gaman að hittast og eru alltaf að bralla eitthvað. Foreldrarnir gátu hins vegar kjaftað og kjaftað við gamla vini og kynnst nýjum.
Á sunnudagsmorguninn brugðum við undir okkur betri fætinum og skelltum okkur í dagsferð til Þýskalands. Sverrir frændi minn býr í Krefeld ásamt fjölskyldu sinni en þar voru langamma og langafi stödd. Þau eru í Evrópureisu með Nenna frænda og Olgu konunni hans. Svo það var margt um manninn í Krefeld, hið fínasta ættarmót. Við kjöftuðum heilmikið, á íslensku, þýsku, ensku og norsku. Krakkarnir léku sér heilmikið og börnin hans Sverris voru voða dugleg að passa Kjartan og leika við hann. Okkur var svo boðið í vöfflukaffi og svo sunnudagssteik. Við mættum svo með belgískar kökur í eftirrétt en þær vöktu mikla lukku. Það var voða notalegt að hitta alla og mikið gaman, en það var þreytt fólk sem kom heim til sín um 10-leytið á sunnudagskvöldið.
Á mánudaginn fór allt í sinn vanagang. Hrafnkell í vinnu, Kjartan á crèche (og var svo feginn að komast þangað) en ég skellti mér í skemmtiferð með Helgu Ferd. svona til að bæta upp fyrir alla inniveruna. Við kíktum í búðir og sátum á kaffihúsum, kjöftuðum og versluðum. Voða gaman. Bætir og kætir sálina. Nenni og Olga komu svo hingað á mánudagskvöldið. Þau skildu langömmu og langafa eftir í Þýskalandi og skelltu sér í smá borgarhopp. Þau eyddu þriðjudeginum í bænum á meðan ég baslaði við námið, en um kvöldið slógum við upp smá veislu. Elduðum "hana í víni" (coq au vin), drukkum rauðvín og kjöftuðum fram á nótt. Norskan er búin að vera mál málanna enda talar Olga ekki íslensku. Og ég er bara að verða helv... góð í norskunni. Tala hana náttúrulega danskt afbrigði af norsku og vantar alveg syngjandann, en það skilst! Eini gallinn er að þetta virðist hafa ýtt út frönskunni tímabundið svo þegar ég kom á crèchið í morgun með Kjartan þá byrjaði ég að tala norsku!!!!
Svo er prógrammið þéttskipað á næstunni. Nóg að læra, fullt af hittingum og matarboðum og mikil plön um fjölskylduskemmtanir. Svo fer að styttast í gesti októbermánaðar. Fyrst ætla Helga og Grímur að koma og gúrmeiast með okkur í Brusslu. Svo ætlar afi (og vonandi amma með) að koma og leika við Kjartan í nokkra daga. Og áður en við vitum af verða komin jól!!!!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli