Klukkan er ægilega snemmt og ég er samt sest niður við tölvuna og er að reyna að koma mér í lærdómsgírinn. Mín bíður að tækla þetta próf mitt, en því á að skila á þriðjudaginn! Úff. Helst vildi ég nú bara vera komin aftur undir sæng en það er ekki í boði eins og sagt er reglulega við Kjartan.
Þeir feðgarnir röltu hins vegar niður í bakarí, líklega með viðkomu á róló. Þeir koma eflaust heim á eftir með croissant og súkkulaðibrauð með kaffinu. Ekki leiðinlegt það á sunnudagsmorgni. Og mér veitir ekki af kaffi, er frekar mygluð.
Við létum hins vegar ekki lærdóm aftra okkur frá því að skella okkur í partý í gærkvöldi. Hér í Raufarhöfninni þá áttu 5 nýlendubúar stórafmæli í ár og þau héldu sameiginlegt boð fyrir aðra nýlendubúa í château hér í sveitinni. Matur og drykkur og skondin skemmtiatriði. Líka gaman að sjá framan í fólk sem maður sér ekki oft. Mikið kjaftað og hlegið. En við vorum nú ekki lengi, stungum af um miðnættið, enda ætlaði ég að vera í góðum gír núna í morgunsárið.
Í gær bárust mér kvartanir yfir því að ég bloggaði ekki nógu oft núorðið. Tja, ef ykkur langar að heyra oftar í mér og okkur og fá fleiri fréttir, þá megið þið endilega bara hringja eða kíkja í heimsókn! Og hananú!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli