föstudagur, október 14, 2005

Föstudagur og nóg að gera

Ok, smá blogg bara til að kæta ykkur!

Ég er á fullu að læra, er alveg í ofurgír. Búin að massa eitt verkefnið, nú er það komið í hendurnar á þeirri sem er að vinna það með mér og hún ætlar að setja lokahöndina á verkið. Jei! Svo er bara eftir að kynna það í tíma í fyrramálið!
Næst á dagskrá er að klára þetta fína próf mitt og helst að komast í að vinna aðeins í öðru verkefni sem ég á að skila daginn eftir að Helga og Grímur fara. Jepp, allri vinnu er raðað þannig að ég geri sem minnst þegar gestirnir eru hjá okkur! Sá tími mun fara í að kjafta, shopping, að túristast, vínsmakk og borða góðan mat. Enginn lærdómur!!!

Svo það er busy helgi framundan. Í fyrramálið þarf ég að mæta í tíma, galinn við að hafa svona busy kennara að þeir þurfa að flytja til tíma fram á laugardagsmorgna. Svo þarf ég helst að koma inn vænum skammti af lærdómi líka. Og líka slaka aðeins á með strákunum mínum.

Við Kjartan fórum í leiðangur í gær eftir crèche að kaupa á hann nýja skó. Hann er nefnilega að vaxa upp úr skónum sem hann fékk í vor, er kominn alveg fram í tána og er orðinn frekar pirraður á þeim. Hann var farinn að vera voða súr þegar hann átti að fara í þá og heimtaði sí og æ að ég tæki hann úr þeim, sem er alveg öfugt við hvað hann er mikill skóáhugamaður og vill helst alltaf vera í skóm. Svo við fórum í fínu skóbúðina niðri á torgi og fundum voða sæta vetrarskó. Nema minn maður var ekkert glaður yfir því að vera dreginn þangað inn og neitaði að fara í nýju skóna. Ég endað á því að troða honum í þá nema þá gerðist hann ennþá þrjóskari og neitaði að labba í þeim! Sama hvað við reyndum að lokka hann, afgreiðslustúlkan bauð honum meira að segja blöðru, þá neitaði hann að labba eitt skref! Ég keypti nú samt skóna og hann fór í þeim út (sitjandi í kerrunni), en það var ekki fyrr en við komum á róló sem hann samþykkti að labba í skónum. Þá voru of spennandi hlutir í boði til að sleppa því. Eftir smá stund var hann farinn að labba um eins og herforingi og mér sýndist hann nú vera nokkuð ánægður með skóna í morgun, fór og sótti þá sjálfur þegar við vorum á leiðinni út.
Jamms, stundum er þetta keppni um hvor er þrjóskari, stubbur eða mamma!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli