mánudagur, janúar 10, 2005

Farið að vora?

Það er geggjað veður hérna, sól og bara heitt miðað við árstíma. Mælirinn í bílnum áðan sagði 16°! Þokkalegt það! Ég var þvílíkt að kvarta í gær að það væri ekki komið vor. Jólin búin og ég hreinlega nennti ekki þessu hálf-eitthvað veðri, vildi bara fá vor og gott veður! Ósk mín virðist vera að rætast!

Ég var dugleg í hádeginu, fór í ræktina og tók Kjartan með. Setti hann í pössunina í ræktinni og hann var bara voða ánægður með það. Fyrst var hann nú bara einn með barnapíunni, voða gaman hjá þeim, en svo bættust 2 strákar í hópinn og það var sko líf og fjör þegar ég sótti hann. Á meðan var ég dugleg og puðaði. Það er svo skondið, nokkur hlaupabretti standa upp við gluggana en búið er að setja sandblásna filmu fyrir efrihelminginn svo enginn vegfarandi sjái mann svitna. Hins vegar hefur maður gott útsýni yfir neðri helminginn af hverjum þeim sem gengur hjá. Ég datt í það þegar ég puðaði á hlaupabrettinu að ímynda mér hvernig efri helmingurinn af fólkinu sem þarna gekk hjá liti út. Þarna fóru hjá allskyns fólk, kona í pilsi og háum hælum, karlar í jakkafötum og blankskóm, strákar á strigaskóm, gellur á pinnahælum o.fl. o.fl. Í eitt skiptið gekk par hjá og það hreinlega leið yfir stelpuna þarna fyrir utan gluggan!!! Veit ekki hvað gerðist, kannski varð henni svona um alla þessa fætur sem hlupu þarna fyrir innan!!!!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli