Vá hvað tíminn líður hratt, þetta er síðasti dagurinn í janúar. Hafið þið gert ykkur grein fyrir því? Ég veit ekki hvað hefur orðin um þennan mánuðinn... úff tíminn líður svo hratt.
Við Kjartan vorum í okkar venjulegu dagsverkum í morgun, hann á garderíinu og ég fór í ræktina. Tók vel á því enda með gott pepp. Ég hlóð inn öllu U2 safninu inn á fína MP3 spilarann sem Kjartan var svo sætur að gefa mömmu sinni í jólagjöf og með U2 í eyrunum hreinlega flaug ég! Alltaf gott að fara í ræktina.
Við erum farin að telja dagana þar til amma og afi koma, þau mæta á fimmtudaginn í bæinn! Við Kjartan ætlum svo sannarlega að bíða eftir þeim á brautarstöðinni þegar þau koma. Hann veit ekki hverju hann á von á! Foreldrarnir gera sér hins vegar fulla grein fyrir því að litla dýrið verður fordekrað allan þann tíma sem þau verða hérna, á eflaust eftir að taka tíma að vinda ofan af því eftir að þau fara aftur.
En planið er að hafa þau bara í slökun og að leika við Kjartan. Mér skilst samt að mamma ætli að hafa með sér smá heimaverkefni, ekki alltaf auðvelt að gíra sig alveg út úr náminu. Og við erum smám saman að bæta á listann fyrir pabba hlutum til að bricolera, því auðvitað verður hann að hafa eitthvað fyrir stafni. Við Kjartan lögðum meira segja sérstaklega á okkur á föstudaginn að fara í ljósabúð sem er í einum af "Garðabæjum" Brussel... eða kannski er þetta meira "Kópavogur"... allaveganna, við brunuðum eftir hraðbrautinni sem liggur hringinn í kringum Brussel í sirka hálftíma til að komast í þessa búð, vorum í 10 mínútur að kaupa ljósið, og svo aftur rúman hálftíma á leiðinni heim! Svo það verður loksins komið ljós í borðstofuna á næstunni!
En næsta stóra verkefni er að plana afmælisdaginn. Fyrir utan ömmu og afa þá er búið að bjóða mömmuklúbbnum í afmæliskaffi svo við þurfum að fara að baka og undirbúa eitthvað skemmtilegt.... Innan við vika þar til litli prinsinn okkar á afmæli, ég trúi varla að það sé að verða ár síðan hann fæddist. Mér finnst eins og að það hafi verið í fyrradag en samt er alltaf eins og að hann hafi alltaf verið til. Mjög furðuleg tilfinning! En þetta litla ljós á gjörsamlega í manni hvert einasta bein....
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli