Sniff sniff. Strax farin að sakna hennar. Þetta er búið að vera svo notalegt. Alltaf einhver heima og svo er hún búin að vera að leika við Kjartan allan tímann held ég, skríður með honum um gólfin og þau hafa bara skemmt sér voða vel saman. Kjartan farinn að dýrka ömmu sína og er orðið alveg sama þótt við foreldrarnir séum ekkert nálægt, amma er svo skemmtileg. Leyfir honum svona stundum að gera það sem má ekki og svona, eins og að tosa í snúrur.
Svo fengum við skötuhjúin bæjarleyfi á föstudagskvöldið. Fórum út að borða á lítinn sætan stað þar sem allar innréttingar voru frá Belle Epoque, æðislegur staður, og sátum þar og jöpluðum á héra og fleiru góðu en skrítnu. Á eftir fórum við svo í partý sem einn vinnufélagi Hrafnkels hélt. Þau hjónin buðu bæði sínum vinnufélögum svo þarna var samansafn af allskyns fólki frá ýmsum löndum. Mikið stuð! Dansað og djammað fram á rauða nótt en það hef ég sko ekki gert LENGI! Skriðum heim rúmlega 3 sem er gott eftir langt djammhlé... enda var það eins gott, ég var vakin um 7! Get svarið það að ég var frekar ryðguð á laugardaginn!
Svo var helgin bara í rólegheitunum. Fórum til Leuven sem er lítill bær hér rétt hjá, voða sætur og gaman að rölta þar um. Tókum labbitúr á sunnudeginum og fórum í bæinn í gær. En við vorum bara mest í því að vera heima og leyfa Kjartani að brölta um. Nú er sko engin miskun, minn maður er farinn að standa upp við allt. Hann hífir sig upp við ofnana meira að segja. Sama hvað það er, hann reynir að standa upp. Svo krúsar hann meðfram öllum borðum og fer á milli húsgagna líka. Eini gallinn að stofan okkar er svo stór að það er oft of langt á milli. Svo er hann orðinn svo snöggur að skríða, ef hann sér áhugaverðar snúrur þá er hann fljótur þangað... og jafnvel farinn að plata mann, þykist vera að fara í eina átt en snýr þá skyndilega við og nælir sér í snúrur! Það er því fullt verk að fylgjast með honum þessa dagana!
Já, þetta er sko sannarlega búin að vera notaleg helgi. Verst hvað er langt þangað til amman kemur næst! En í millitíðinni koma jólin, nú getur maður lagst í jólaundirbúninginn....
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli