Ég gleymdi aðeins að monta mig áðan. Fóstrurnar í morgun voru svo yfirsig hrifnar af Kjartani, hvað hann væri duglegur, og fannst alveg ótrúlegt hvað hann héldi áfram þótt hann dytti á hausinn. Þær sögðu að svo mörg börn hættu alveg við að gera hlutina í smá tíma ef þau dyttu og meiddu sig. En ekki Kjartan. Hann heldur bara áfram. Svona eftirá þá er ég ekki svo viss um að það sé kostur!! Amk ekki fyrir foreldrana. Og þær voru alveg á því að þessi gaur væri farinn að ganga 1 árs! Ég sem var að vona að hann tæki sér tíma í það, en þær vonir virðast verða að engu. Sjáum til...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
.. ég man hvað ég var fegin þegar Rakel byrjaði að labba. Ég var orðin svo þreytt að halda á henni út um allt. Svo er það bara svo ægilega krúttlegt :D Mér finnst persónulega betra að sitja í sófanum og fylgjast með þeim, heldur en að þurfa alltaf að standa uppúr sófanum og koma þeim á milli staða ;) Kv, Inga Lata
SvaraEyða