föstudagur, desember 24, 2004

Styttist styttist!

Hér er allt orðið svo jólalegt, tréið orðið skreytt... nema auðvitað neðstu greinarnar. Voða jólalegt að ofanverðu og svo autt að neðan! Verð eiginlega að senda mynd af tréinu! En við erum voða ánægð með það.
Okkur tókst að ljúka nærri öllu í gær svo aðfangadagsmorgunn hefur verið frekar notalegur. Kertasníkir birtist öllum að óvörum í nótt og skildi eftir litla pakka fyrir heimilismeðlimi. Kjartani fannst þetta voðalega skrítið, en er ósköp ánægður með jólaskóna sína. Það eru bjöllur á þeim svo það heyrist í honum hvert sem hann fer!

Kjartan fékk pensilín í gær, lækninum var hætt að lítast á þennan hita, og strax eftir fyrsta skammtinn var barnið orðið miklu hressara. Hann var á útopnuðu í gær. Ætli það sé svona mikil orka í pensilíni??? Og hann er enn hressari í dag. Það er eins og þetta hafi losað um eitthvað, hann er orðinn hitalaus, fékk þvílíkt nefrennsli fyrst en það hefur minnkað og hóstinn líka. Miðað við magnið af hor sem hefur lekið úr honum dettur mér jafnvel í hug að ennisholur og kinnholur hafi verið orðnar stíflaðar og einhver sýking komin þar. Bara ágiskun. En við erum aðallega fegin að honum líður miklu betur. Við vorum bara ekki viðbúin litla orkubúntinu sem við fengum, bæði hálfsofin eftir vikuna, búið að vera mikið að gera og bæði að kvefast. Ég hef sjaldan verið jafn fegin að koma barninu í rúmið og í gærkvöldi!!!

Í morgun er hann svo búinn að vera á fullu. Finnst jólatréið voða flott og er alltaf að klappa því, en jólapakkarnir eru samt mest spennandi. Var fljótur að góma einn í morgunn, pakka frá ömmu, enda er svo fallegur pappír utan um hann, og er búinn að vera að hnoðast með hann og slaufuna af pakkanum í allan dag! Svo er hann líka að pota í hina pakkana, þetta er allt mjög skrýtið og spennandi.
En sama hvað við höfum reynt, það hefur ekki tekist að taka mynd af Kjartani með jólasveinahúfuna fyrir framan jólatréið! Ekki nokkur von að hann sitji kyrr... og svo finnst honum þessi húfa algjör móðgun!
Það verður svo gaman að sjá hann í kvöld þegar hann fer að opna pakkana.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli