Helgin var pabbalaus hjá okkur, enda heimilisfaðirinn að spóka sig á götum Nýju Jórvíkur og kaupa skemmtilegt dót handa okkur hinum í leiðinni.
En við létum pabbaskortinn ekkert aftra okkur frá skemmtilegheitum og vorum dugleg að spóka okkur.
Á laugardaginn rigndi eins og hellt væri úr fötu og varla hundi út sigandi. Tobbi hafði verið svo "skemmtilegur" að vakna klukkan hálf sjö og þar hefndist mér fyrir að hafa farið seint að sofa. Ég var því frekar mygluð þennan morguninn og ekki skemmtilegasta mamma í heimi. Um hádegið voru bæði ég og Kjartan orðin frekar pirruð á inniveru og hangsi, Kjartan farinn að henda leikföngum út um allt hús og reyna á þolrifin í mömmu sinni með öllum sínum uppátækjum. Svo það var ekki um annað að ræða en að skella drengjunum í regngallana, útbúa nesti og halda á róló. Út í rigninguna héldum við, vel gölluð, með kex og djús í nesti. Við röltum um litla "skóginn" okkar og alla leið á sjóræningjaróló. Rólóinn var auður, enda dettur engum nema Íslendingum í hug að fara út að leika í rigningunni. Reyndar hafði dregið aðeins úr regninu þegar við komum á rólóinn og strákarnir gátu skemmt sér í leiktækjunum. Kjartan klifraði í allar klifurgrindur og Tobbi vildi ólmur fylgja stóra bróður. Var hálf svekktur að komast ekkert hærra. Við reyndum líka öll vegasöltin, Kjartan heimtaði alltaf að vega salt við litla bróður enda skríkti Tobbi og skellihló allan tímann sem þeir veguðu salt. Að sjálfsögðu reyndum við rólurnar líka og vakti það mikla kátínu hjá Tobba. Þegar regnið jókst á ný leituðum við skjóls undir skyggni, settumst niður og fengum okkur nestið. Fljótlega steinsofnaði svo Tobbi í kerrunni en Kjartan hélt áfram að göslast í rigningunni. Að lokum tókst mér að sannfæra hann um að halda heim á leið. Þegar við vorum um það bil hálfnuð heimtaði hann að hvíla lúin bein í kerrunni og ég er ekki frá því að hann hafi dottað líka. Það var puð að ýta kerrunni alla leiðina heim en að sama skapi var það ágætis andleg hvíld og endurnærandi að labba heim í rigningunni og þögn - með bræðurna sofandi í kerrunni.
Þegar heim var komið þurfti að skipta um föt á öllu liðinu - allir orðnir vel blautir og drullugir - og þrífa fingur og lítil andlit. Svo vorum við svo heppin að eiga afganga í matinn frá kvöldinu áður, svo þeir voru bara njúkaðir í örbylgjunni og maturinn kominn á borðið á örskotsstundu. Svo voru rigningar-róló-farar baðaðir og sendir í bólið.
Á sunnudaginn hafði hins vegar stytt upp og birt til. Blár himinn og skínandi sól - enda afmælisdagur Tobba. Eftir morgunverkin - morgunmat og leik, lúr fyrir Tobba, sturtu fyrir mömmuna og Barbapabbagláp fyrir Kjartan - héldum við svo af stað út í Wezembeek en þangað fer Kjartan alltaf í leikfimi í Little Gym á sunnudögum. Kjartan ærslaðist í leikfiminn og var svo duglegur. Þau fóru í allskyns leiki, voru að ganga á slá, hoppa "apahopp", klifra og príla, snúa sér á slá, fara kollhnísa og fleira skemmtilegt. Á meðan var Tobbi á fleygiferð frammi, að leika sér í kubbahorninu, skríðandi um öll gólf og sjarmerandi fólkið á staðnum. Tobbi var orðinn svo örmagna eftir fjörið að hann steinsofnaði í bílnum á leiðinni heim. Ég stakk því upp á bíltúr við Kjartan og hann var vel til í það, enda held ég að hann hafi líka langað í smá hvíld í bílnum.
Bíltúrinn endaði svo í Cinquantenaire garðinum í góða veðrinu. Við röltum okkur aðeins um garðinn og lékum okkur í grasinu. Fengum okkur svo vöfflur í tilefni dagsins og héldum loks á róló. Þar hélt Kjartan áfram að klifra og príla á meðan Tobbi skreið um í sandinum og smakka aðeins á honum. Rólóferðin endaði svo í tárum þegar lítill gutti tók sig til og henti sandi í andlitið á Kjartani. Ég var heillanga stund að hugga Kjartan og þrífa framan úr honum en að lokum jafnaði hann sig. En hann vildi ekki vera lengur á róló, svo við röltum bara aftur af stað í garðinum, lékum okkur í laufblaðahrúgunum og fylgdumst með öllum skátunum leika sér. Héldum svo aftur heim á leið þar sem kvöldrútínan tók við - elda, borða, baða, svæfa! Ég sit svo hér og blogga á meðan Kjartan er að túmla og kúldrast og festa svefn. Ró og friður er loksins kominn yfir heimilið og ég get lagst í sjónvarpsgláp, leigði mér eina stelpumynd fyrst eiginmaðurinn er ekki heima.
P.S. skelli kannski inn myndum frá afmælisdeginum á morgun, of löt til þess núna.
sunnudagur, september 30, 2007
Pabbalaus helgi, drullumsull í rigningu og afmælisvöfflur í sól
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli