
Um síðustu helgi fórum við í "sumarbústað" með Óla og Laurence til
Maasmechelen. Pabbi hennar Laurence er frá Maasmechelen en fjölskyldan á ennþá gamla húsið þar sem amma hennar og afi bjuggu, og nota það sem n.k. sumarbústað. En það er hins vegar vanvirðing við húsið að kalla það sumarbústað, því þetta er stórt og glæsilegt hús, liggur við eins og lítill kastali, fullt af gömlum og fallegum húsgögnum, og með risastóran garð í kring.

Við lögðum af stað til Maasmechelen eftir að hafa borðað morgunmat og tekið okkur saman. Um hádegið vorum við mætt á svæðið og byrjuðum á að fá "grand tour" um húsið. Síðan settumst við niður og fengum okkur hádegismat og fórum svo út í garðinn. Kjartan fór strax í það að slá grasið fyrir foreldra hennar Laurence á meðan við kjöftuðum eða skiptumst á að lofa Tobba að labba.

Um 2-leytið héldum við til
Maastricht í Hollandi en þangað var einungis korters akstur og við tókum ekki einu sinni eftir því að hafa farið yfir landamærin! Í Maastricht röltum við um bæinn, og kíktum í litlar skrýtnar búðir. Vorum lengi inn í þessari hérna, en þetta er kirkja sem hefur verið "afhelguð" og er nú
bókabúð.

Kjartan skemmti sér konunglega við að labba upp og niður stigana eða fara í lyftuna - og alltaf var það Óli sem var dreginn með. Á meðan skoðuðum við hin bækur af ýmsum gerðum. Ég fann m.a. bæði Arnald Indriðason og Ævar Örn Jósepsson á hollensku!
Eftir bókabúðina settumst við niður á lítið kaffihús á ráðhústorginu og fengum okkur drykki. Héldum svo heim á leið í matseld og afslöppun. Þegar komið var aftur í húsið höfðu báðir strákarnir sofnað í aftursætinu, svo við leyfðum þeim að lúra aðeins, settumst út og kjöftuðum.

Þegar þeir vöknuðu aftur var hreinlega kominn kvöldmatartími, svo við fórum í það að gefa þeim að borða og koma þeim í rúmið. Þegar drengirnir voru sofnaðir í gamla herberginu hennar Laurence, hafði Hrafnkell töfrað fram hinn sígilda coq-au-vin, með dyggri aðstoð okkar hinna. Þá var sest að borðum og gætt sér á kokknum í víninu og öllu meðlætinu. Í desert var svo ostakaka og eftir matinn laumuðumst við svo í barinn sem afi hennar Laurence hafði átt og gæddum okkur á gömlum líkjörum og eðal-calvados. Við lögðum þó ekki í vínkjallarann en þar leynast birgðir af rauðvíni sem flest er orðið eldra en 30 ára!
Nóttin varð svo skrautleg því Tobbi vaknaði upp og það tók okkur örugglega 2 tíma að koma honum niður aftur. Allt var reynt en allt kom fyrir ekki, drengurinn neitað að sofna aftur. Loksins lognaðist hann þó út af og við gátum marið 2 tíma svefn áður en strákarnir vöknuðu. Það var myglaður pabbi sem fór niður með strákana en ég fékk að sofa á mitt græna í klukkutíma í viðbót.

Þegar allir voru vaknaðir fengum við okkur vænan morgunverð með öllu, bæði brauði og súkklaðibrauði, kaffi, djús og öllu tilheyrandi. Síðan var Tobbi sendur að lúra og karlpeningurinn fór út að leika. Fljótlega bættumst við Laurence í hópinn og við lékum okkur öll í garðinum.

Eftir smá hádegisbita héldum við svo til
Bokrijk, sem er risastór "fjölskyldugarður" rétt hjá Genk. Þar fórum við á risastóran róló og skemmtum okkur konunglega fram eftir degi. Kjartan var á fullu að leika sér í sandinum, að hífa upp sand og sturta honum niður rör, klifra í klifurgrindum, renna niður rennibrautir, sulla í vatni og ég veit ekki hvað. Þarna var nóg við að vera fyrir litla stubba...

en fullorðna fólkið skemmti sér ekki síður vel. Ófáar salíbunurnar sem við fórum, hlupum eða klifruðum með Kjartani og við Laurence prófuðum n.k. hoppirólu með Kjartani og það þótti honum mjög skemmtilegt. Það var auðvelt að finna barnið í sér í þessum garði.
Í lokin settumst við niður og fengum okkur einn drykk áður en við héldum aftur af stað. Fyrst fórum við aftur í húsið og sóttum dótið okkar, kvöddum Óla og Laurence og héldum svo heim á leið. Þegar heim var komið galdraði Hrafnkell fram spaghetti carbonara og síðan fór öll familían í rúmið og svaf á sitt græna eyra fram á morgun.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli