Haldiði bara að ég hafi ekki lagst í rúmið líka!! Bölvaðir vírusar, allsstaðar að angra mann. Fékk magakveisu og var varla ofanjarðar í heilan sólarhring. Skjögraðist svo loksins á lappir seinnipartinn í gær og hressist er leið á kvöldið. Grey fjölskyldan er orðin svo þreytt á að innipúkast, meira að segja Kjartan fór í gærkvöldi og reyndi að klæða sig í skó. Þegar ekkert gekk heimtaði hann að mamma klæddi sig í skóna, dró mig svo að útihurðinni og heimtaði út. ÉG VIL ÚT! Svo við ákváðum að henda öllum slappleika út um gluggann og fórum öll familían í bæjarleiðangur í morgun. Fyrsta stopp var auðvitað Pain Quotidien að fá sér kaffi og súkkulaðibrauð, ekkert eins gott til að byrja daginn.
Þessi veikindi hafa heldur betur sett strik í jólaundirbúninginn. Ég á enn smákökudeig inn í ísskáp sem á eftir að fletja út, skera og baka. Ýmislegt sem var á prjónunum hefur verið hent út af listanum og einungis því nauðsynlegasta verður reddað í dag og á morgun. Sæti passaði sig nú samt á því að framkvæma mikilvæga hluti, eins og að panta önd hjá fuglaslátraranum. Þemað í jólamatnum í ár var að hafa eitthvað sem væri belgískt og passaði vel með góðu Búrgúndar eða Rónarvíni... og appelsínu-önd varð fyrir valinu! Að sjálfsögðu verður foie gras í forrétt - nema hvað - og heimagerður ís í eftirrétt - sem minnir mig á það, ég þarf að koma ísvélinni inn í pínulitla, troðfulla frystinn okkar. Sönn gúrmet jól, en þannig eiga líka jól að vera!
Jólagjafirnar verða hins vegar fáar. Við sæti ætlum að skiptast á loforðum.... og efna þau þegar gott tækifæri gefst. Svo verður annar í pakkadegi þegar ömmurnar og afi koma 29. des en flestir íslensku pakkarnir verða með í för. Ekki að það komi að sök, litli stubbur er enn svo lítill að honum er eflaust alveg sama þótt hann fái ekki fleiri pakka fyrr en þá. Það er ekki komin mikil alvara í málið ennþá!!! Foreldrarnir ætla að gefa honum þríhjól og það verður spennandi að sjá hann opna þann pakka, því honum þykja hjól mjög spennandi! Sá pakki á eflaust eftir að duga honum á aðfangadagskvöld!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli