mánudagur, desember 12, 2005

Margklukkaður

Ég á greinilega ekki að komast upp með að humma þessar klukkanir fram af mér. Þar sem ég hef nú verið klukkaður tvisvar vegna sama klukks (?) og sit auk þess heima í kvefpest og aumingjaskap (þetta er líklega 7. eða 8. skipti sem ég fæ magnað kvef/hálsbólgu eftir að við fluttum hingað - sýklaflóran hér er greinilega banvæn) er ekki um annað að ræða en að hefjast handa.

Sem sé, 7 sinnum 7:

Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:

1.Læra að dansa almennilega
2.Eignast trommusett aftur
3.Gróðursetja tré
4.Smakka góðan árgang af Romanée-Conti
5.Standa á Macchu Picchu og horfa yfir Andesfjöllin
6.Gera son minn að erkigourmet
7.Flytja til Suður-Frakklands eða Ítalíu

Sjö hlutir sem ég get gert:

1.Skipt um vatnskassa í bíl
2.Búið til béarnaisesósu
3.Hermt eftir Valla í Fræbbblunum
4.Sofið mér til (r)óbóta
5. Klippt hekkið nokkurnveginn beint
6. Haldið fyrirlestur um samkeppnisreglur EES-samningsins
7. Pantað kaffi á 8 tungumálum

Sjö hlutir sem ég get alls ekki gert:

1.Komið upp ferðabarnarúmi án þess að taka amk. eitt blótsyrðakast
2.Sýnt skynsemi í bifreiðakaupum
3.Komið mér að verki nema vera með “deadline” á bakinu
4.Sungið skammlaust
5.Haft áhuga á því hvernig íslensku frjálsíþróttafólki vegnar á sk. erlendum stórmótum
6.Logið
7.Notið þess að versla í IKEA

Sjö frægar sem heilla:

1.Helen Hunt
2.Faye Dunaway
3.Gwyneth Paltrow
4.Cindy Wilson, söngkona úr B-52s
5.Ellen Kristjánsdóttir
6.Ellen Barkin (ég er mikið fyrir Ellur eins og sjá má)
7.Diana Krall

Sjö hlutir sem heilla mig við aðrar manneskjur:

1.Húmor
2.Frumleiki
3.Heiðarleiki
4.Að hugsa út fyrir kassann
5.Að horfa í augun á fólki
6.Víðsýni
7.Að alhæfa ekki (nokkuð sem ég þyrfti sjálfur að æfa mig í)

Sjö frasar sem ég nota mikið:

1.Gott og vel
2.Jájá!
3.Jesus Chrysler!
4.Vanillukeimur í nefinu, talsverð sýra, meðallangt eftirbragð
5.Kjart-AN!
6.Þarna sérðu, þarna sérðu
7.Ne-í

Sjö hlutir sem ég sé:

1.Belgacom símann okkar
2.Penna og merkipenna á víð og dreif
3.Hillu með B-deildinni af geisladiskasafninu okkar
4.Standlampa frá (***argh***) IKEA
5.Tölvuna með tilheyrandi fylgihlutum
6.Veggfóður með fiskbeinamynstri
7.Talandi trommuna hans Kjartans

Engin ummæli:

Skrifa ummæli