miðvikudagur, desember 07, 2005
Jansen
Tuskudýrið Jansen er í miklu uppáhaldi hjá Kjartani þessa dagana. Fyrir utan að geta ekki sofnað án þess að hafa Jansen hjá sér þá drösslast hann með tuskumúsina með sér út um allt. Þessa dagana fer hann ekki á crèche nema Jansen komi með og auðvitað var Jansen með okkur í Amsterdam (og þurfti gott bað þegar heim var komið, eftir slæma meðferð!) Allt sem Kjartan gerir það þarf Jansen líka að gera... en það besta er að það virkar öfugt, ef Kjartan vill ekki borða er nóg að gefa Jansen að borða og þá vill minn maður skófla í sig! Í morgun settust þeir félagarnir að morgunverðarborðinu með jógúrtið sitt og Kjartan hóf að mata Jansen á jógúrt. Vandaði sig mikið en tókst samt að maka smá jógúrt á nebban hans Jansen. Heyrist þá ekki í litla dýrinu: "tubbi" (sem mamman túlkar sem "subbi") og Kjartan heimtaði að fá tissjú til að þurrka subbið af Jansen. Svona gekk þetta þó nokkuð lengi, alltaf þurfti Jansen sína skeið og svo Kjartan. Síðan fékk Jansen að hafa snudduna og þeir félagarnir héldu á crèchið.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
hmmmm ætli Kjartan SÉ Calvin
SvaraEyðahmmmm ætli Kjartan SÉ Calvin
SvaraEyðahmmmmm ætli Kjartan SÉ Calvin
SvaraEyðaVerð að segja að buxurnar frá ömmu er einstaklega sætar á svona snúllusrák, þú verður að þrýsta á fleiri svona frá henni. Hann er algjör tískustrákur
SvaraEyða