föstudagur, apríl 01, 2005

Stuttur bloggur!

Maður má ekkert vera að þessu! Það er geggjað veður, sól og um 20 stig í garðinum, enda er ég bara út í garði! Hei, hó, garðyrkja!

Var ég annars búin að segja ykkur hvað Kjartan er orðinn duglegur að borða? Hann liggur við hámar allt í sig. Nú er sú stefna í gangi að sleppa öllum krukkumat, hann borðar best þegar hann fær bara venjulegan mat, svo hann er bara að fá það sem við erum að borða, eða afgangana frá því kvöldinu áður. Áðan hámaði hann í sig franskri kjötsúpu, jumm jumm, og eitt það besta sem hann veit er tælenskur kjúklingur. Hann samþykkti þó ekki fiskinn í gær nema eftir að ég maukaði hann saman við grænmetið. En hann er orðinn alveg ótrúlega duglegur að borða! :-D

Jæja, farin aftur út í góða veðrið...

Engin ummæli:

Skrifa ummæli