þriðjudagur, apríl 05, 2005

Jaxlar

Enn af vígstöðvum Kjartans... haldið ekki að jaxl númer eitt hafi kíkt upp í gær! Kjartan samt verið ótrúlega góður og í góðu skapi, ekki einu sinni vaknað upp á nóttunni og sá fyrsti bara kominn í gegn. En greyið er að farast í gómunum, alltaf með puttana upp í sér. Gómarnir eru líka mjög bólgnir, þetta er bara sá fyrsti af amk 3 sem ég hef séð að eru á leiðinni, plús augntennurnar! Verður fjör hérna á næstunni. Ef ég þekki minn mann rétt þá tekur hann þá alla í einu!!!

Svo á Tóta móða afmæli í dag!!! Til hamingju með daginn skvísa (aftur)!!!! Knús og kossar frá okkur í Brusslu!

1 ummæli:

  1. Nafnlaus8:41 f.h.

    Ein spurning, eruð þið hætt með myndasíðuna hans Kjartans? Hef ekki komist inn á hana seinustu daga og sakna þess að geta ekki aðeins fylgst með litla manninum :)
    Kv, Jóhanna

    SvaraEyða