þriðjudagur, apríl 12, 2005

Góðir vordagar

Umm, það er búið að vera svo gott veður í gær og í dag, alveg frábært. Við Kjartan komum heim í gær eftir crèche og fórum bara beint út í garð að leika. Ég ætlaði reyndar að garðast en það tókst ekki. Kjartan fór alltaf beint strik í stigann og var í því að príla upp og niður. Voða stuð. Reyndi hvað ég gat að fá hann til að leika sér með bolta nálægt mér en það var lítill áhugi á því. Hins vegar var hann til í að róla. Vorum eflaust í hálftíma að róla, hann vildi ekki hætta, hágrét ef ég reyndi að taka hann úr rólunni. Algjör frekjurófa!
Í morgun fórum við svo í húsmæðrahitting. Mættum nú ekki nema þrjár plús Kjartan á kaffihúsið, svo að eftir einn kaffibolla ákváðum við að fara frekar út í góða veðrið, fórum út í park og höfðum það notalegt. Við skvísurnar kjöftuðum frá okkur allt vit á meðan Kjartan rölti um með kerruna á undan sér. Skemmti sér konunglega við þá iðju. Held að sumir sem áttu leið sína um garðinn hafi orðið undrandi á því að mæta kerru á ferð, án þess að sjá nokkurn sem keyrði kerruna! Loks endaði þetta með hádegismat. Kjartan svaf nú af sér megnið af þeim slúðurfundi en var svo ósköp ljúfur þegar hann vaknaði. Hann er alveg ótrúlegur hvað hann þolir manni allt flakkið. Var voða kátur og þótti þetta lítið mál.
Ég var svo voða góð við hann og leyfði honum bara að leika sér að vild þegar við komum heim. Hann lá ekkert á liði sínu við að drasla til í stofunni!

Hann er orðinn svo stór, það er alveg ótrúlegt. Breytist mikið við að fara að ganga. Að vísu tók hann smá verkfall í gær og labbaði varla nokkuð. Við pabbi hans tókum okkur því til fyrr í kvöld og létum hann labba á milli okkar. Það þótti honum voða sport, fá klapp og risaknús þegar hann "kom í mark"! Eftir 2 ferðir þá var þetta orðinn leikur og hann hætti varla. Meira meira meira!
Svo er líka að breytast svo mikið hvernig hann leikur sér. Hann er t.d. farinn að keyra bílunum sínum út um allt. Mikið í því að keyra brunabílinn á undan sér eftir gólfinu, yfir allar hillur og húsgögnin. Hann er samt ekki farinn að framleiða hljóðin sem fylgja, en ég hugsa að það sé ekki langt í það. Bílarnir fara hinsvegar ekkert endilega beint áfram við þessa iðju, oftast eru þeir á hlið, eða jafnvel á hvolfi! Smámunir að láta þá vera beina!!!
Eitt það vinsælasta sem hann gerir núna er að tala í símann. Hann segir samt ekki mikið. Hann heldur á símanum og setur hann næstum aftur á bak. Svo á ég að þykjast að tala í símann. Hann tekur stundum bakföll af hlátri þegar ég þykist vera að tala við einhvern í símann og segi svo "Kjartan, það er síminn til þín!" Alltaf jafn gaman. En það er ekki bara síminn sem virkar í þessa leiki, það er liggur við hvaða hlutur sem er sem er nýttur eins og sími. Einn morguninn tók hann símtækið sjálft og bar það upp að eyranu. Eða jafnvel bílana sína! Litli gormur!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli