laugardagur, apríl 26, 2008

Rólegheit - fjör - rólegheit

Undanfarna mánuði hefur þetta verið þróunin á helgunum hjá okkur, aðrahvora helgi er brjálað stuð og mikið sósíalíserað, hinar eru rólegheit höfð í hávegum. Kannski er maður orðinn svona gamall að maður þarf jafnvel helgina á eftir til að jafna sig eftir stuðið!!! ;-)

Helgin á undan þeirri síðustu var einmitt rólegheitahelgi og við gerðum sem minnst.

(Augnablik á meðan ég skoða myndirnar mínar og rifja upp helstu atriði).

Kjartan fór upp í sumarbústað að klippa með ömmu og afa á laugardeginum, svo við hin vorum í rólegheitum, fórum m.a. út á róló með Frey og Helgu Hrönn, þar sem þeir litlu guttarnir æfðu sig að vera á Sunnuborg, en þeir byrja þar saman í júní. Helgin var almennt notuð í leti og leiki, við tókum til og þrifum og nutum þess að vera til, elda góðan mat (jummí jummí maríneraða smálúðu) og stúta góðum vínflöskum með.

Síðasta helgi var heldur betur fjörug. Gamlir menntaskólavinir mínir hittust í kokteilapartýi, þar sem skverað var saman í heila hljómsveit á stofugólfi í Hafnarfirði, mikið spilað og sungið, hrisstir kokteilar og skemmt sér fram á morgun.

Á meðan foreldrarnir djömmuðu eins og þau væru í menntó, gisti Kjartan hjá ömmu Síu og höfðu þau það mjög notalegt saman. Lásu og lögðu leiðslur, fóru í göngutúr og bökuðu vöfflur. Tobbi fór í pössun til Halla frænda, og lék sér svo með ömmu Siggu allan sunnudaginn.

Á sunnudeginum sváfu foreldrarnir út, en héldu svo á flakk að safna saman eigum sínum, sækja bíl (hljóðfæri og trommusett) í Hafnarfjörð, einn strák í Vesturbæinn og annan inn í Sund. Á Grenimel voru amma Sía og Kjartan búin að leggja á borð vöfflur og kaffi, og þar hittum við fyrir Óskar og Sunnefu. Mættum Kjartani og Óskari í stiganum þar sem þeir lögðu rafmagn niður í kjallara. Kjartani þótti mjög skemmtilegt að hafa svona stóran frænda til að leika við.
Í Efstasundinu fannst Tobbi glaðbeittur út í garði að moka í sandkassanum og þar enduðum við í sunnudagsmat.

Þessi helgi verður svo með öllu rólegra móti. Tobbi varð lasinn í gær, kominn með 39° hita. Við ætluðum upp í sumarbústað í gær að hitta ömmuna en ekkert varð úr því. Kjartan var hins vegar að fríka út yfir innihangsi og mjög svekktur að missa af sumarbústaðnum, svo það varð úr að Tóta frænka kom að passa lasinn Tobba á meðan herra Kjartani var skutlað upp í sumó til ömmu sinnar. Hann ætlar að vera þar yfir helgina að hjálpa ömmu og afa að koma bústaðnum í stand fyrir sumarið. Það er því mjög rólegt yfir heimilinu. Tobbi er enn lasinn svo hann verður víst innandyra, ásamt foreldrunum, í góða veðrinu.

Í kvöld fáum við svo matargesti, Soffíu og Begga, og eigum eflaust eftir að kokka upp eitthvað skemmtilegt handa þeim. Svo spái ég áframhaldandi rólegheitum á morgun, með smá líkamsrækt á köflum.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli