fimmtudagur, apríl 10, 2008

Líf og fjör

Við heldur betur tókum okkur á síðustu helgi og sósíalíseruðum sem mest við máttum.

Á föstudaginn fóru strákarnir til ömmu og afa í næturpössun, en við hjónakornin klæddum okkur upp, fórum fyrst út að borða á hverfisveitingastaðinn okkar Laugaás. Þvílíkt góður matur á sanngjörnu verði. Mæli eindregið með honum. Enda var fullt út úr dyrum og biðröð eftir borðum! Við fengum okkur bæði fiskrétti sem voru hver öðrum betri... og drukkum með ástralskt hvítt húsvín sem var bara nokkuð gott.
Eftir matinn héldum við svo í Borgarleikhúsið þar sem við sáum allra síðustu sýninguna af Kommúnunni. Stykkið var algjör snilld og leikararnir fóru á kostum, staðfæringin góð, sviðsmyndin flott og ótrúlegt hvað þeim hefur tekist að grafa upp af "propsi" frá "hippatímanum" á Íslandi. Við skemmtum okkur konunglega, amk lá ég í hláturskasti allan tímann. Ef þið misstuð af þessu leikriti misstuð þið af miklu.

Á laugardeginum fengum við svo að sofa út.... Algjörlega langþráð. Á meðan skemmtu strákarnir sér konunglega í Laugardalnum með ömmu og afa. Tobbi reyndi víst mikið að faðma og knúsa gæsir en þær voru ekki eins hrifnar, flýðu í umvörpum undan barninu. Þegar við komum svo að sækja drengina um 2-leytið var Kjartan ennþá út í garði að leika sér og ætlaði varla að fást inn. Það eina sem dró hann inn að lokum voru vöfflurnar hennar ömmu.

Eftir vöfflukaffi héldum við svo heim á leið með viðkomu í búð. Búið var að rigga upp ræbbblahitting með engum fyrirvara. Það sem fyrst átti að vera grill-samkrull með börnum og allt endaði í barnlausu matarboði heima hjá okkur. Og fyrst það var svo gott veður urðum við að grilla. Því fóru Hrafnkell og Kjartan í það að redda gaskút og þrýstijafnara á meðan við Tobbi tókum aðeins til og hófum matseldina. Við keyptum tilbúið grillkjöt hjá Nóatúni - sem var mjög gott - og dessertinn áttum við til í frystinum. Því þurfti bara að rigga upp kartöflum, meðlæti og forrétti. Auk þess að fóðra strákana og koma þeim í bælið. Gestirnir mættu í sitthvoru lagi. Grímur kom snemma, fékk bjór og var settur í að tengja grillið. Helga Hrönn kom svo skoppandi klst síðar, beint af blakmóti. Hún fékk þá það hlutverk að fóðra Kjartan á meðan foreldrarnir bardúsuðu í eldhúsinu.

Þegar Tobbi var kominn í rúmið var borin fram forrétturinn, hörpuskel með sesamfræjum. Uppskrift sem ég rakst á í Gestgjafanum heima hjá mömmu fyrr um daginn og við urðum bara að prófa, hrikalega góð. Með var drukkinn riesling frá Joggerts vini okkar.

Milli rétta var svo Kjartani komið í rúmið og á meðan hann byllti sér og velti, endurraðaði í herberginu sínu, skipti um náttföt og skoðaði bækur, borðuðum við aðalréttinn, slaterskar kartöflur, grillað grænmeti með rauðvínsedikmarineringu og tómatrauðvínslegið lamb à la Nóatún. Mjög gott og rann ljúflega niður með Chateau Fombrauge 2001.

Í dessert var svo borið fram mangó-peru-speculoos "crumble" sem við áttum til í frystinum. Og það stóð alveg fyrir sínu. Eftir matinn var svo orðið algjörlega nauðsynlegt að fá sér einn amaro!
Svo var bara setið og kjaftað þar til syfjan varð öllu yfirsterkari og ræbbblar ákváðu að skríða í koju.

Feðgarnir fóru snemma á fætur á sunnudeginum en mamman lúrði áfram. Þegar hún loksins skreið út úr rúminu var pakkað í töskur og haldið í sund í blíðunni. Ólíkt fyrri sundferð þá var Kjartan mjög brattur og hlakkaði mikið til. Fór um alla barnalaugina alveg sjálfur og var alveg til í að hoppa út í, komst meira að segja upp á lagið. Vildi ólmur leika með dótið, busla og leika sér. Þegar leið á vildi hann prófa sundlaugina og pottana úti, stóð svo dolfallinn og fylgdist með krökkunum fara í stóru rennibrautina, en hann þarf aðeins að stækka - eða læra að kafa og synda áður en hann fær leyfi til að prófa hana!!! Tobba þótti mjög gaman í sundi, buslaði og spriklaði og skellihló þegar pabbi hans skvetti vatni á okkur Kjartan. Skríkti af kæti þegar hann fékk að prófa að hoppa út í og skemmti sér konunglega. Það voru þreyttir strákar sem komu upp úr - og vildu ólmir fá ís áður en haldið var heim.

Á meðan Tobbi lagði sig, kokkaði pabbinn kjötsósu en við Kjartan lékum okkur í rólegheitum. Um 5-leytið komu amma Sía og Svanhildur í lasagna og var heldur betur gaman að fá þær í heimsókn. Eftir matinn hélt Svanhildur svo á kóræfingu en amma sat lengur hjá okkur og horfði me okkur á Mannaveiðar.

Sem sagt, fjörug helgi og batteríin vel endurhlaðin þegar hversdagurinn tók við á mánudaginn.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli