mánudagur, mars 10, 2008

Tilraun til matarboðs

Í síðustu viku vorum við orðin langeygð eftir heimboðum (matarboð, partý, hvað sem er, hint, hint!!) svo við ákváðum að minna á okkur. Buðum vinum okkar í mat á laugardagskvöldinu, plönuðum næturpössun og fundum út afskaplega girnilegan matseðil sem fól í sér heilt lambalæri, úrbeinað og fyllt með kúskús og allskyns próvensölsku grænmeti...

Og við fórum að hlakka til vitleysingakvölds með góðu fólki, góðum mat, góðu víni og full full fullt af spilum!

Nema hvað, á föstudaginn boðuðu tilvonandi gestir pössunarleysi og þau kæmust því ekki út úr húsi. Samtímis uppgötvunum við að amman og afinn voru ekki heima þetta kvöld (eitt af 5 kvöldum ársins þar sem þau eru ekki heima) svo næturpössun var fyrir bí. Því var ekki einu sinni í boði að skundrast heim til vinafólksins með matinn með sér. Við tókum því til við að hringja í mögulega staðgengla sem gætu hjálpað okkur að hesthúsa lambalærinu. En með stuttum fyrirvara á tímum árshátíða og annars skemmtanahalds var ekki hlaupið að því að finna mögulega matarboðsgesti. Okkur tókst það samt og amma Sía og Gunnar Snorri frændi og vinur mættu hér galvösk á laugardagskvöldið og hjálpuðu okkur með próvensalska fyllta lærið og eplakrömblið. Hvoru tveggja mjög gott (þótt ég segi sjálf frá) og ekki sakaði Chateau Malescot St Exupery 2002 sem við drukkkum með. (Við erum mjög fegin að eiga fleiri flöskur!!!) Félagsskapurinn skemmtilegur og stubbarnir stóðu sig vel í fínu boði. Gott kvöld í alla staði.

Næturpössunina fengum við hins vegar sólarhring fyrr, svo á föstudaginn fóru strákarnir yfir til ömmu og afa í E81 og höfðu það gott, en við hjónakornin tókum gott barnlaust kvöld, fengum okkur borgara á Vitabar, kíktum í púrtara á Starhagann og fórum svo í bíó, sváfum svo út, fengum okkur morgun-hádegismat á Kaffitári (eins og í gamla daga) og kíktum aðeins í búð áður en við sóttum strákana og héldum heim í eldamennskuna.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli