mánudagur, mars 31, 2008

Ekki eins fjörug helgi og upphaflega var planað!

Meira hvað kvefpestir geta sett mikinn strik í reikninginn! Tobbi var orðinn mjög kvefaður fyrir helgina og smám saman bættist öll familían í hópinn, þegar helgarfríið byrjaði voru allir komnir með kverkarskít og kvef. Ég hafði haft uppi mikil áform um helgina, enda veðurspáin góð; fara í sund með strákana, langan göngutúr í góða veðrinu, kíkja í húsdýragarðinn og fleira slíkt skemmtilegt. En öllum áformum um útivist var slaufað og við héldum okkur að mestu innandyra, með hausverk, rennandi nef og illt í hálsinum.

Þrátt fyrir heilsuleysið tókst góða veðrinu að draga okkur út úr húsi. Rétt fyrir hádegi á laugardaginn dúðuðum við okkur upp og héldum í smá göngutúr í Elliðaárdalinn. Tobbi var settur í burðarpokann (Tobba-carrier) en við hin ferðuðumst um á tveim jafnfljótum. Við röltum um í "skóginum", önduðum að okkur fersku (og köldu) lofti og uppgötvuðum ýmsa undraheima.
Kjartani fannst skógarferðin æðisleg og vildi helst aldrei ganga eftir stígnum, heldur inn á milli trjánna - fann þar ljón og tígridýr og ýmsa undraheima.
Heldur minna fór fyrir Tobba, hann undi sér vel í burðarpokanum enda sá hann vel yfir og var með besta útsýnið yfir uppátæki bróður síns. En þegar útihrossið Kjartan var farinn að kvarta yfir kulda og vildi helst láta mömmu halda á sér, var ákveðið að blása til undanhalds og halda heim á leið.

Restina af laugardeginum eyddum við í innipúkaleiki, púsl, lestur, og smá sjónvarpsgláp, byggðum hús-kastala úr legó-kubbunum og svo tók Kjartan alla familíuna í læknisskoðun. Um kvöldið elduðum við okkur svo góðan mat, steiktum lúðu og höfðum hana með salsa verde og bökuðum kartöflum. Afar ljúffengt! Við vorum meira að segja verið svo dugleg að kokka upp epla-mangó-speculoos crumble í eftirmat, sem var afar ljúffengt. Kjartan tók það hins vegar fram að hann vildi ekki "svona eftirmat úr ofninum, heldur venjulegan eftirmat". Hann fékk því ekkert crumble heldur bara ísinn. Og þeir bræður borðuðu vel af ísnum.

Sunnudagsmorguninn fór í áframhaldandi letilíf og innipúkastand. Um hádegið var Kjartani orðið nóg boðið og óskaði eftir því að fara út að leika með afa. Við hringdum því í afa sem kom fljótlega og sótti stráksa. Eftir lúrinn fór Tobbi líka til ömmu og afa á meðan við hjónakornin kíktum á 2 íbúðir. Eftir að hafa lesið fasteignaauglýsingar í nokkra mánuði ákváðum við að nú væri kominn tími á að fá smá fílíng fyrir þessu og ákváðum að skoða 2 íbúðir þar sem auglýst var opið hús. Hvorug þeirra reyndist nú draumaíbúðin svo það er engra mikilla breytinga að vænta á okkar högum! Við erum nú líka ekkert að flýta okkur, en ágætt að koma sér í gírinn, sjá íbúðirnar með eigin augum og gera sér grein fyrir hvað maður vill og vill ekki. Skemmtilegir tímar framundan í því....

Þegar við vorum búin að skoða íbúðirnar var svo tími til kominn að halda í Efstasundið aftur en þar var matarboð til heiðurs Tótu frænku, en hún á afmæli eftir tæpa viku. Afmælisbarnið verður fjarverandi í Finnlandi á afmælisdaginn svo hún fékk fyrirfram afmælisveislu. Þar var margt um manninn, auk okkar voru langamma og langafi, 2 ömmubræður og annar frændi. Að sjálfsögðu göldruðu Efstasundsbúar fram dýrindis veislurétti allt eftir óskum Tótu frænku. Og svo var boðið upp á afmælisköku. Kjartan var svo spenntur fyrir afmæliskökunni að hann borðaði ekki einu sinni "steinaís" (ís með daimkúlum) sem annars er hans uppáhaldseftirmatur. Eftir notalega stund í Efstasundinu héldum við heim á leið með þreytta gaura og komum þeim í bælið. Foreldrarnir héngu svo dauðþreytt í sitthvorri tölvunni fram eftir kvöldi... og misstu af Mannaveiðum!!!! Urr, hvernig átti mann að gruna að þættirnir yrðu á sunnudagskvöldi þegar þeir voru síðast sýndir á mánudagskvöldi!!!!

2 ummæli:

  1. Nafnlaus2:34 e.h.

    ohhh... ég hætti við að taka þáttinn upp og ákvað bara að glápa á hann í beinni svo ég get ekki reddað ykkur núna...
    Kv. Helga Hrönn

    SvaraEyða
  2. Oh, djö!!

    Auglýsi hér með eftir einhverjum sem tók þáttinn upp og er tilbúinn að lána!

    SvaraEyða