mánudagur, nóvember 26, 2007

Veikindahelgi númer tvö

Algjör innipúkahelgi, en mamman samt með myndavélina á lofti!



Tobbi bóla!
Þarna var hann mikið að reyna að klifra upp í villidýrastólinn. Nú þegar hann er búinn að ná tökum á því að stíga upp á þrep eða koll þá vill hann alltaf vera að æfa sig. Fann m.a. út úr því um helgina að draga fram skúffurnar í sófaborðinu og standa upp á þeim!


Tobbi bóla orðinn þreyttur, ákvað að leggja sig á fína púðanum.

Kjartan vildi ekki að ég tæki mynd af sér, greinilega kominn með nóg!!!!


Ég mátti hins vegar taka mynd af Hrafnkatli!

Sem sagt, algjör leti-innipúka-veikindasunnudagur sem fór í mest lítið, nema smá flutningaundirbúning, smá tiltekt í geymslunni, leikfimitíma (Kjartan), leika, sofa út (mamman), borða eplaköku og elda Stroganoff í kvöldmatinn (pabbinn).

3 ummæli:

  1. Nafnlaus10:08 e.h.

    Mikið ertu nú dugleg að blogga og segja fréttir. Sem er fínt fyrir okkur hina letihaugana. :o)
    Ætla að leita að seríu til að hengja upp, það er dimmt allan daginn og ómögulegt að hafa enga seríu í gluggunum. Verst hvað Björgvin er duglegur að rífa allt niður til að skoða.... :o/
    Kær kveðja,
    Soffía

    p.s. Hlakka til að fá ykkur heim og bóka ykkur hér með í mat við fyrsta tækifæri. :oþ

    SvaraEyða
  2. Æjá, þessi fyrstu jól þarf allt jólaskrautið að vera í þeirri hæð að litlir tætarar nái ekki í skrautið!

    Fyrstu jólin hans Kjartans var t.d. ekkert skraut á neðri helming jólatrésins. :-D
    Spurning hvað við gerum núna, stofan er svo lítil. Kannski bara lítið tré í potti sem kemst upp á græjuskápinn...

    SvaraEyða
  3. Nafnlaus1:58 e.h.

    Gaman að sjá hvað þið eruð dugleg að skrifa fréttir, gott fyrir okkur sem erum léleg að skrifa fréttir (við Lúxarar þar efst á blaði). En sjáumst vonandi fyrir jól, spurning að fara að negla niður dag.
    Kv, Lúx-gengið

    SvaraEyða