miðvikudagur, júní 29, 2005

Vá!

Það er bara alltaf garðpartý hérna! Mikið stuð á þessum bæ.
En fyrst ég er heima og fyrir framan tölvuna ætli það sé ekki betra að bæta úr bloggleysinu.

Við erum enn að kafna, hér er heitt, heitt, heitt. Að vísu hafa gráðurnar á hitamælinum aðeins fært sig neðar en það er enn sama mollan. Og enn eru þeir að lofa okkur rigningu en ekki kemur dropi úr lofti. Að vísu var rigning og þrumuveður í nótt en ég svaf í gegnum það alltsaman svo það er ekkert að marka. Held samt að blómin séu mjög ánægð!!!! Og vonandi lifnar grasflötin okkar við aftur. Þetta er í fyrsta sinn á ævinni sem ég hreinlega bíð eftir rigningu, hef alltaf verið mikill sóldýrkandi og er það enn, en fyrr má nú rota en dauðrota. Kominn tími á að fríska upp loftið svo maður geti nú sofið almennilega!

Það er samt ekki að sjá á Kjartani að hann láti hitann á sig fá. Er alltaf sama sjarmatröllið, bara í færri fötum!
Hann þvílíkt stækkar og þroskast þessa dagana. Farinn að skilja svo miklu meira. Einn daginn var hann eitthvað að kvarta út á svölum, gekk illa að troðast með kerruna inn eða eitthvað álíka, svo ég sagði við hann hvort við ættum ekki bara að hætta þessu og fara frekar og lesa. "Farðu inn og sæktu bók og svo skal mamma lesa hana fyrir þig". Minn maður hvarf og kom aftur eftir smá stund, með Bingó, uppáhaldsbókina. Nú skildi lesið. Mamman var frekar hissa! Enda bjóst ég ekki við að hann skildi svona mikið!!!
Svo talar hann endalaust, út í eitt. Ég er alltaf í því að jánka honum og svara einhverju, spyrja og kommenta, en hef yfirleitt ekki hugmynd um hvað hann er að segja. Ef einhver á orðabók kjartaníska-íslenska má hinn sami senda hana í hraðpósti. Það koma samt orð inn á milli sem eru greinileg, "dida" - kisa- og "duda" sem ég er farin að skilja sem "þetta". Mikið notað! "Mi" er "ég" og "E-mi" er hreinlega "GEMMÉR". Ófá skiptin þar sem hann stendur æpandi fyrir framan ísskápinn "EMI EMI EMI"!!!! Þá eru menn svangir. "Ami" og "Abba" eru mamma og pabbi, en það er bara notað spari. Í gær datt svo upp úr honum "óvar" og við túlkuðum það sem "au revoir" því hann var að kveðja og loka hurðinni. Svo frönsku orðin fara greinilega að koma. En það er svo skemmtilegt að fylgjast með þessu, en það getur líka kostað talsverð heilabrot til að átta sig á hvað orðin virkilega þýða.
Þá eru litlir menn líka að átta sig á því að aðrir borða með hníf og gaflli en ekki höndunum, svo á matartímum er mikið bardúsast yfir því að láta gaffalinn rata upp í munninn með misjöfnum árangri. Góð helmingsprósenta sem lendir á gólfinu eða í smekknum, en tekst samt í ótrúlega mörgum tilfellum. Og þegar menn gefast upp er bara hægt að nota puttana. Þeir nýtast líka í að setja mat á gaffalinn og svo upp í munninn! Þyrfti að setja inn video af tilfæringunum inn á myndasíðuna.
Þessa dagana er mikið verið að kanna þyngdaraflið. Það vinsælasta í heimi er að henda hlutum fram af svölunum eða niður stigana. Sama hvað það er. Auðvitað er langskemmtilegast að láta bílinn eða vagninn húrra niður en svo eru mamma og pabbi svo leiðinleg að þau banna það alltaf! En nú orðið fylgir með í kvöldtiltektinni að týna upp leikföng úr grasinu. Að leika út í garði er alltaf gaman og búið að gera mikið af því í góða veðrinu undanfarið. Rólan er alltaf vinsælust en sandkassinn vinnur sífellt á. Þetta með að moka er nú reynt að einhverju marki, en mest eru ungir menn í sandflutningum. Enda eru komnar stórar hrúgur af sandi víða um garðinn. Svo er spurningin hversu oft yfir sumarið við þurfum að fylla á sandkassann???

Engin ummæli:

Skrifa ummæli