fimmtudagur, júní 16, 2005

Nóg að gera!

Jæja, Kjartan kominn á crèche með öllum hinum rófunum og casalingan búin að taka smá til, vaska upp og setja í þvottavél! En nú er stefnan tekin út í góða veðrið. Það er nefnilega nóg að gera þessa dagana. Bæjarleiðangur númer 2! Eftir velheppnaðan skóleiðangur í gær þá er grillleiðangur í dag. Næsta föstudag eigum við von á sirka 50+ gestum í garðinn okkar, en þá verður haldin hin árlega grillveisla ESA í garðinum okkar! Og það er víst betra að eiga grill svo hægt sé að grilla ofan í alla þessa gesti! Og þar sem belgar eru ekki komnir svo langt á þróunarbrautinni að selja gasgrill á öllum bensínstöðvum þá tók það smá vinnu að leita uppi búðir sem selja gasgrill. Belgar eru nefnilega nýbúnir að uppgötva kolagrill, eiga langt í land að fara yfir í gasgrillin. En ég er komin með lista yfir 4 búðir víðsvegar um Brussel, svo ég verð í bílnum í dag!
Svo ætla ég nú líka að hitta sæta niðri í bæ og fara í smá fataleiðangur með honum. Kakíbuxur og fleira mikilvægt fyrir sumarið er á innkaupalistanum. Svo var ég að uppgötva að litla dýrið á ekki nema 3 stuttbuxur og þær voru allar skítugar í morgun. Sem betur fer eru þær með 1 aukapar á crèchinu og miðað við veðrið er hann eflaust kominn í þær! En ætli það sé ekki betra að bæta úr þessum skorti, sérstaklega í ljósi þess að spáin býður upp á 30° stiga hita og sól alla helgina.
Þegar heim er komið þá býður langur listi af hlutum sem þarf að undirbúa fyrir helgina, pakka og fleira svoleiðis skemmtilegt, því við ætlum að skreppa til Munchen, heimsækja góða vini og hana Theresu frænku! Gaman gaman!
Farin í bili, grillin bíða spennt!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli