Við fengum langa helgi að þessu sinni. Á fimmtudaginn var Allra heilagra messa, svo Hrafnkell var í fríi í vinnunni og tók sér svo líka frí á föstudeginum. Tilefnið var koma afa. Afinn var nefnilega á ráðstefnu í Antwerpen í vikunni og kom svo yfir til okkar í smá heimsókn.
Við byrjuðum því daginn á fimmtudaginn (eftir morgunkaffið) að keyra til Antwerpen og sækja afa. Það urðu því gleðilegir endurfundir fyrir utan hótelið hans afa þann morguninn og Kjartani þótti ekkert verra að hafa afa hjá sér alla leiðina til baka.
Afinn kom að sjálfsögðu færandi hendi, með kaffi og hlynsíróp handa mömmu og pabba, afmælisgjöf og bækur. Litlu gaurarnir urðu þó ríkastir, fengu senda boli og ullarföt frá ömmu, leikföng og bækur. Kjartan er greinilega farinn að þekkja sitt fólk því hann óskaði eftir því að afinn færi strax í það að taka upp úr töskunum. Vissi greinilega að það leynist ýmislegt í afa-tösku. Það fyrsta sem kom upp var Bubba byggis legó og þar hitti amman algjörlega í gegn, því það var varla leikið með annað alla helgina. Og Tobbi skríkti af gleði þegar hann fékk gírafann sinn!
Eftir hádegismat héldum við svo í leiðangur með afa á sjóræningjaróló. Kjartan þurfti að sýna afa öll tækin og hvað hann væri duglegur að klifra og príla. En lang mesta lukku vakti vegasaltið. Kjartan gat setið þar endalaust og Tobba þótti alls ekki leiðinlegt að vega salt. Hann hló og hló í hvert sinn sem hann var settur á vegasaltið. Kjartani þótti það ennþá skemmtilegra og vildi ítrekað fá bróður sinn með á vegasaltið. Þegar heim kom var svo bara leikið og slappað af. Kjartan fór út í garð að leika og þegar hann kom aftur inn voru þeir afi duglegir að leika saman, lesa bækur og skemmta sér. Eitthvað fékk Tobbi líka að vera með. Um kvöldið göldruðum við svo upp steik, kartöflur og salat handa afa og höfðum það svo náðugt fram eftir kvöldi.
Á föstudaginn sváfu allir út... eða lengur en nokkru sinni. Fólkið í húsinu var ekki komið á fætur fyrr en um 8 (þótt Tobbi vaknaði 7). Afinn hljóp í bakaríið eftir morgunbrauðum og með'í og eftir langt og gott morgunkaffi héldum við öll á markaðinn. Allur kræklingur var búinn hjá fisksölunum svo matseðlinum var snarlega breytt og við keyptum bæði skötusel og villisveppi.
Heima fóru afi og Kjartan í það að leika Bubba byggi. Tóku fram skiptilykla og skrúfjárn, lím og spartsl og hófu viðgerðir á hinum ýmsu hlutum. Kjartan fylgdist vandlega með og fékk að reyna sig við að skrúfa og spartsla og mála. Honum þótti það ekki leiðinlegt!!! Þegar þeir tóku sér pásu frá verkunum fóru þeir á róló og léku sér heillengi. Um kvöldið kokkuðum við svo skötusel í villisveppasósu og þótt 3 kokkar hefðu komið að sósunni varð hún hrikalega góð.
Á laugardeginum, afmælisdegi pabbans, brugðum við okkur af bæ. Fyrst áttum við náðuga stund yfir morgunkaffinu og gáfum svo pabbanum pakkana sína. Síðan keyrðum við til Kessel-Lo, sem er risastór leikjagarður og þar var sko heldur betur hægt að leika sér. Foreldrarnir og afinn fundu líka barnið í sjálfu sér og voru ekkert síður dugleg en Kjartan að fara salíbunur í rennibrautinni, róla eða príla. Síðan héldum við í smá rölt um garðinn og sýndum afa sullugarðinn, þar sem krakkarnir geta prófað vatnspumpur, stíflað árfarveginn og sullað eins og þeim lystir. Eftir dágóða stund á róló keyrðum við til Leuven, röltum inn í miðbæinn þar sem við fundum okkur kósí brasseríu og fengum okkur góðan hádegismat. Mikið var gott að fá góðan mat í magann og strákarnir stóðu sig þvílíkt vel, hegðuðu sér eins og englar og borðuðu vel. Eftir smá rölt um Leuven keyrðum við svo aftur heim áður en síðustu sólargeislarnir hurfu.
Heima tók svo afi við völdum í kotinu. Við hjónakornin fórum og shænuðum okkur til og héldum út að borða á voða góðan og notalegan spænskan matsölustað. Fengum að sjálfsögðu gott að borða og drekka með. Á meðan kokkaði afinn kjötbollur fyrir strákana, svo léku þeir sér og héldu svo í draumalandið.Snemma á sunnudagsmorgni hélt svo afinn í'ann á ný. Ég skutlaði honum á lestarstöðina strax 8 um morguninn, og eftir smá ævintýri komst afinn í lestina á leið til Schipol. Við hins vegar héldum okkar striki, sátum lengi yfir sunnudagsmorgunkaffinu og tókum því rólega. Seinnipartinn héldum við svo í túristastrætótúr um Brussel. Settumst um borði í tveggja hæða strætó og létum hann keyra okkur um borgina í fallegu haustveðri. Strákunum þótti þetta mikið sport, Kjartan sat andagtugur allan tímann og fylgdist með. Tobbi skríkti og hló og skemmti sér konunlega... lak að vísu út af og steinsvaf seinnihelming ferðarinnar... en þeir skemmtu sér vel.















