fimmtudagur, október 11, 2007

Lífið eftir afmæli....

Ég veit nú ekki hvort það er hægt að tala um líf eftir barnaafmælisveislu, það var varla líf á þessum bæ. Á mánudaginn var ég algjörlega eftir mig, enda búin að eyða orkunni í að gera veisluna sem skemmtilegasta, nema dagurinn fór ekki í neina leti, heldur tiltekt og skúringar. En slík óskemmtilegheit fylgja víst í kjölfarið á skemmtilegheitunum.....


Reyndar get ég ekkert kvartað því ég fékk skemmtilega pásu á mánudagskvöldið. Stebba frænka kom til okkar í 3 nætur, því hún var á fundi hér í borg, og á mánudagskvöldið fórum við stelpurnar saman út að borða og skemmtum okkur konunglega í slúðri og öðru spjalli.


Nema hvað, á þriðjudagsmorgun vöknum við Tobbi bæði með magapest. Litla greyið byrjaði daginn á því að æla yfir allt eldhúsgólfið og hafði þar að auki ælt í rúmið sitt um nóttina, nema svefndrukknir foreldrarnir höfðu ekki tekið eftir því í myrkrinu - og þið getið rétt ímyndað ykkur samviskubitið sem mamman hefur yfir því!!!! Svo við Tobbi eyddum deginum heima, sofandi mest allan daginn. Ég var svo slöpp að ég þurfti að kalla Hrafnkel heim til að passa strákana og hreinlega lá í móki í rúminu langt fram á kvöld.


Og þetta var dagurinn þar sem nóg var á dagskrá, kaffihúsadeit við stelpurnar í morgunkaffi, hádegismatur og búðarráp með Stebbu eftir hádegið... og svo ætlaði Stebba að passa strákana fyrir okkur á meðan við færum á Police-tónleika í Antwerpen!!! Svo ég lá heldur súr í rúminu yfir að missa af öllu þessu og þá sérstaklega tónleikunum!!!! Seinnipartinn reyndum við nú að koma miðunum út þar sem augljóst var að ég færi ekki langt, nema enginn gat stokkið inn og nýtt sér miðana með svo stuttum fyrirvara.....


Haldið ekki að Óli hafi þá ekki hringt með mjög gleðilegar fréttir, amk fyrir okkur! Laurence hafði séð í fréttunum að Sting hafi líka orðið veikur svo það var búið að aflýsa tónleikunum!!!! Ekki skemmtilegt fyrir hann... en gleðifréttir fyrir okkur!!!! Ætli greyið hafi ekki bara fengið í magann?


Svo þriðjudagskvöldinu eyddum við í rólegheitum og spjölluðum við Stebbu um alla heima og geima. Hún hélt svo aftur heim til Íslands á miðvikudagsmorgun. Kjartani finnst hún vera svo skemmtileg að hann hágrét við útidyrnar eftir að hún var farin!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli