laugardagur, júní 02, 2007

Nótt á slysó

Þetta var ævintýraleg nótt!

Tobbi vaknaði upp einu sinni sem oftar um hálf þrjú leytið, skælandi. Í svefnrofunum og myrkrinu læddist ég upp til hans, losaði hann úr kuðlinu neðst í rúminu, lagði hann út af með sængina yfir sér og stakk snuðinu upp í hann. Minn maður var sofnaður um leið. Læðist svo niður aftur og veit ekki fyrr en ég ligg öskrandi af sársauka og grenjandi eins og smábarn í miðjum stiganum, en þá hafði ég runnið í einu þrepinu og flogið á hausinn. Rak handlegginn (og rassinn) illilega í þrepin og var alveg að farast. Hrafnkell kom hlaupandi og reyndi að koma mér aftur í rúmið, en ég var nokkrum sinnum við það að líða út af, skjálfandi og skælandi af sársauka. Fyrst vildi ég nú bara fara aftur í rúmið, fékk mér verkjatöflu og setti kælikarlinn hans Kjartans á handlegginn... en eftir klukkutíma af sársauka, þrátt fyrir 2 verkjatöflur, og dofna og auma hendi, ákváð Hrafnkell að það væri nú gáfulegra að láta líta á þetta og sendi mig á slysó. Einhent keyrði ég á St-Luc og sat þar svo og beið innan um drukkin ungmenni. Biðstofan lyktaði svoleiðis eins og brugghús, en þau voru nú alveg til friðs. Ég beið eflaust í rúman klukkutíma og hafði sem betur fer verið svo forsjál að taka bók með mér. Undir 5 var loksins kallað á mig og læknirinn hóf að pota í mig og snúa hendinni á alla kanta. Þar sem ég æpti ekkert stórkostlega mikið og gat hreyft bæði fingurna og hendina, þá var úrskurðað að ég væri ekki brotin, heldur bara illilega marin. Hjúkkan varð ekkert smá fegin að þurfa ekki að sauma neitt saman eða setja í gifs enda mikið að gera hjá þeim þessa nótt. Svo ég var send heim með bólgueyðandi krem og sagt að binda um hendina fyrsta sólarhringinn og hlýfa henni aðeins. Um hálf 6 var ég svo komin aftur heim og undir sæng....

Get ekki sagt að ég sé mjög fersk í dag, ósofin, krambúleruð og bryðjandi verkjatöflur!

2 ummæli:

  1. Nafnlaus6:53 f.h.

    Jesús, greyið mitt, þetta hefur verið hræðileg nótt. En gott að þú ert allavega ekki brotin. Vona að þér batni sem fyrst :)

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus11:31 e.h.

    varstu að æfa gömul súperman múv?

    SvaraEyða